Erlent

Kosningabaráttan kostað tugi lífið

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Þrátt fyrir mikla öryggisgæslu og reynslu frá síðustu kosningum hefur ekki tekist að fyrirbyggja árásir undanfarinna daga. Nordicphotos/AFP
Þrátt fyrir mikla öryggisgæslu og reynslu frá síðustu kosningum hefur ekki tekist að fyrirbyggja árásir undanfarinna daga. Nordicphotos/AFP Vísir/EPA
Að minnsta kosti 70 fórust í hryðjuverkaárás á kosningafund Lýðflokks Balúkistan (BAP) í bænum Dringarh í Balúkistan í Pakistan í gær. Siraj Raisani, frambjóðandi flokksins, var á meðal þeirra sem létust, að því er bróðir hans staðfesti í samtali við Al Jazeera í gær.

Árásin var sú mannskæðasta í Pakistan í rúmt ár og var ekki sú fyrsta sem beindist sérstaklega gegn kosningunum þar í landi. Á þriðjudaginn voru 20 myrt á kosningafundi Almenna lýðflokksins (ANP) í Pesh­awar, meðal annars Haroon Bilour, frambjóðandi flokksins. Á fimmtudag var svo talsmaður fyrrverandi þingmannsins Alhaj Shah Jee Gul Afridi myrtur í skotárás.

Hin mannskæða árás í Dringarh var hins vegar ekki sú eina í gær. Að minnsta kosti fjórir fórust í sprengjuárás á bílalest Akrams Khan Durrani, frambjóðanda Sameinaða aðgerða­ráðsins (MMA), í bænum Bannu í Balúkistan.

Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á þeirri árás en Íslamska ríkið lýsti yfir ábyrgð á árásinni í Dringarh. Talíbanar lýstu svo yfir ábyrgð á árás þriðjudagsins.

Árásirnar í gær vekja, samkvæmt Al Jazeera, óhug meðal heimamanna og minna á árásaröðina sem kostaði 158 lífið í aðdraganda kosninga árið 2013. Hryðjuverkamenn tengdir al-Kaída, Íslamska ríkinu og Talíbönum hafa gert vart við sig í Balúkistan. Þá hafa ýmis samtök Balúka barist gegn pakistönsku ríkisstjórninni.

Ellefu dagar eru nú til kosninga og er útlit fyrir að Múslimabandalag Pakistans (PML-N) fái flest atkvæði, ef marka má skoðanakönnun sem IPOR birti fyrr í mánuðinum. Flokkurinn myndaði ríkisstjórn undir forsæti Nawaz Sharif. Sá hlaut hins vegar dóm fyrir hæstarétti í umgangsmiklu skattsvikamáli og var sparkað úr sætinu í fyrra.

Shehbaz Sharif, bróðir Nawaz, leiðir nú PML-N. Samkeppnin í pakistönskum stjórnmálum er hins vegar hörð og mældist Pakistanska réttlætishreyfingin (PTI), flokkur Imrans Khan, eins helsta andstæðings Sharif-bræðra í stjórnmálum, með 29 prósenta fylgi í fyrrnefndri könnun. Þriðji stærsti flokkurinn er svo Þjóðarflokkur Pakistans (PPP) undir forystu Bilawals Bhutto Zardari, sonar, fyrrverandi forsætisráðherrans Benazhir Bhutto.

PML-N stendur fyrir íhaldssemi og þjóðernishyggju og PPP fyrir jafnaðarmennsku á meðan PTI, popúlistaflokkurinn, sem er sá yngsti þessara þriggja turna pakistanskra stjórnmála, stendur fyrir andstöðu gegn ráðandi öflum og auknum umsvifum í velferðarkerfinu.

Þrátt fyrir að hafa verið dæmdur í tíu ára fangelsi í síðustu viku sneri fyrrnefndur Nawaz Sharif aftur heim til Pakistans í gær.

Mikill fjöldi stuðningsmanna PML-N freistaði þess að hylla leiðtogann fyrrverandi þrátt fyrir bann lögregluyfirvalda þess efnis. Á fimmtudag hafði lögregla í Lahore handtekið hundruð stuðningsmanna hans. [email protected]


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×