Skoðun

Mistök í borginni

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Blessunarlega er mikil andstaða við þau áform að reisa hótel á Landsímareitnum, hjá þeim reit sem áður var Víkurkirkjugarður. Þeir sem gagnrýna þessa ákvörðun hvað harðast segja helgispjöll að byggja yfir kirkjugarð og raska ró þeirra sem þar hvíla. Forsvarsmenn fyrirtækisins sem standa að byggingu hótels á svæðinu fullyrða hins vegar að það muni ekki rísa á sjálfum grafreitunum. Þannig er deilt um það hvort hótel verði í nálægð við grafreiti eða á grafreitum, en það breytir engu um það að forkastanlegt er að planta þarna niður hóteli. Ef það er eitthvað sem miðbærinn þarf síst á að halda þá er það enn eitt hótelið, og allra síst á þessum stað.

Nýlega var haldinn fjölmennur mótmælafundur í Víkurgarði, enn ein tilraun til að koma viti fyrir þá stjórnmálamenn sem lögðu blessun sína yfir að hótel yrði reist þar. Þar tók til máls Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, gáfuð og merk kona sem Íslendingar hafa í miklum hávegum. Hún hvetur borgaryfirvöld til að falla frá áformum um hótelbyggingu á þessum stað. Hún segist jafnframt vera tilbúin að vera í forsvari fyrir því að safna fyrir skaðabótum til framkvæmdaaðila þurfi að greiða þær. Víst er að almenningur myndi glaður leggja Vigdísi lið í þeirri söfnun. Þetta er mál sem vert er að berjast fyrir.

Ekki er þó hægt að treysta á öfluga liðveislu stjórnmálamanna í þessu máli. Í Ráðhúsinu mæta stjórnmálamenn gagnrýni á hótelbyggingu á dýrmætu svæði með muldri um að ómögulegt sé að breyta því sem þegar hafi verið ákveðið. Það er máttlaust svar. Ef stjórnmálamenn gera mistök verða þeir að hafa manndóm í sér til að stíga fram, viðurkenna þau og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að leiðrétta þau. Því miður er ekki nægur dugur í íslenskum stjórnmálamönnum og nær óþekkt er að þeir viðurkenni mistök, hvað þá að þeir sjái sóma sinn í því að bæta fyrir þau.

Þegar kemur að skipulagsmálum miðbæjarins er engu líkara en borgarfulltrúar meirihlutans hafi glatað sjálfstæðri hugsun og séu orðnir strengjabrúður í höndum verktaka sem fá óheftir að valsa um miðbæinn og leggja sína dauðu hönd á verðmæt svæði. Nýtt pólitískt afl í borginni, Viðreisn, sem einhverjir bundu vonir við að hefði vott af samvisku í þessu máli, virðist vart með meðvitund. Úr þinghúsinu heyrist svo ekki margt, þingmenn láta nær allir eins og þeim komi málið ekki við. Þar hefur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verið svo að segja sá eini sem hefur látið í sér heyra þegar kemur að skipulagsmálum í borginni. Varnaðarorðum hans hefur verið mætt með hæðnishlátri pólitískra andstæðinga.

Meirihluti borgarstjórnar hefur margbrugðist í þessu máli og furðulegt er að sjá hann gera sitt ýtrasta til að svipta miðbæinn sjarma sínum og sérstöðu. Gamli bærinn í Reykjavík er það fallegasta við borg sem í auknum mæli er farin að minna á hverja aðra hótelborg. Í stað þess að leyfa miðbænum að njóta sín virðist ætlunin að leyfa hótelbyggingum að gleypa hann.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×