Skoðun

Kósýheit… svo kemur janúar

Ósk Heiða Sveinsdóttir skrifar
Eins og ég hef gaman af skemmtilegum auglýsingum þá eru vel framkvæmdar markaðsherferðir enn betri. Herferðirnar sem þar sem allar aðgerðir og skilaboð styðja hvort annað, allir snertifletir við viðskiptavininn (og ekki viðskiptavininn) eru nýttir til þess að koma skilaboðum herferðarinnar á framfæri vekja hughrif og hafa áhrif í samræmi við skilgreind markmið. Það er auðveldara að kaupa vef borða og jafnvel splæsa í heilsíðu, bíða og vona að fjárfestingin skili sér, en ég mæli með að skoða einnig fleiri leiðir til að ná til viðskiptavina. Hvernig er t.d. innra markaðsstarfið, eru fólkið þitt upplýst um það hvað stendur til, hvaða aðgerðir eru á döfinni og hvernig þau geta haft áhrif á að markmið herferðarinnar náist? Á bak við vel útfærða markaðsherferð liggur mikil vinna og oft á tíðum er hún ekki sýnilegt fyrir en loksins er ýtt á „play“ og allt fer í loftið.

Ef undirbúningurinn er góður og vandað hefur verið til verka, getur verið erfitt fyrir samkeppnina að svara því það tekur tíma að bregðast við og koma fram með svar. Þá áttu dansgólfið ein/n í dýrmætan tíma og það er bæði verðmætt og afskaplega skemmtilegt.

Undanfari jólavertíðarinnar býður upp á mörg tækifæri til þess að byggja tengsl og segja þína sögu. Gott að hafa það í huga á haustmánuðum að þú vilt vera búin/n að koma þér á kortið þegar markhópurinn ákveður að standa við áramótaheitið, byrja að hlaupa aftur eins og sumarið 2014. Að það sé þitt vörumerki sem þau velja sér þegar kemur að því að kaupa hlaupaskó eða skipta út sykruðum gosdrykkjum fyrir kolsýrt vatn.

Skilaboðin verða að vera skýr og markviss í gegnum alla snertifleti. Hver er sagan sem fyrirtækið er að segja? Hafðu áhuga á viðskiptavininum þínum, segðu söguna þína og byggðu upp tengsl. Ef vel tekst til þá mun tilfinningin og tengingin við vörumerkið hafa jákvæð áhrif sem skila sér vonandi í því að þegar kemur að kaupum, horfir viðskiptavinurinn fram hjá vöru samkeppnisaðilans og kaupir þína vöru.

Svo er alltaf möguleiki að leggja í það verkefni að skapa nýja eftirspurn og þörf eftir þinni vöru í stað þess að bítast við samkeppnina um sömu viðskiptavinina. Því hvort sem það er að búa til þitt eigið dansgólf eða synda í bláum sjó, þá eru tækifærin endalaus fyrir þá sem þora að sækja fram og breyta. Fyrir stjórnendur sem kunna að meta áskoranir og vilja ná árangri, er það mjög skemmtilegt verkefni. Tala af reynslu, mæli með því.

Þetta voru hugleiðingar markaðsstjóra í desember, góðar stundir.

Höfundur er markaðsstjóri Trackwell.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×