Skoðun

Krabbameinsvaldandi efni

Teitur Guðmundsson skrifar
Það er vandlifað nú til dags þegar svo mörg efni og efnasambönd eru allt í kring um okkur, sum hver meinlaus. Önnur talin valda skaða eins og bruna, ertingu, bólgu og svo jafnvel krabbameini. Þá er einnig oft rætt um að við getum með fæðuvali skapað okkur áhættu á krabbameini og er vel þekkt að nýlega er búið að merkja til dæmis neyslu á rauðu kjöti í óhófi sem krabbameinsvaldandi. Áfengi er talið geta stuðlað að krabbameini og ýmis önnur neysluvara til viðbótar.

Þá er ekki úr vegi að velta fyrir sér hvort eitthvað í þeim snyrtivörum eða efnum sem við notum í kremi eða áburði og viðlíka geti haft áhrif. Margir telja að mörg þeirra efna og efnasambanda sem eru í þess háttar vöru geti truflað hormónastarfsemi líkamans og þannig óbeint stuðlað að vexti. Við þekkjum æxli líkt og brjósta- og blöðruhálsmein sem og eggjastokkamein sem eru að hluta talin hormónanæm og meðferð að hluta byggir á að blokkera hormón í líkamanum til að hamla vexti þeirra og viðgangi.

Umræða um litarefni og hársnyrtivörur hefur verið hávær en erfitt er að benda á beint orsakasamhengi í rannsóknum, en yfir 5.000 efni eru notuð í snyrtivöruheiminum hvað varðar t.d. þessar vörulínur. Húðvörur ýmsar innihalda efni líkt og 1,4 díoxan en í rannsóknum vestanhafs sýndi sig að allt að 28% af slíkum vörum innihéldu það þekkta krabbameinsvaldandi efni. Sjampó, sápur, hrukkukrem og vörur sem eiga að draga úr öldrun húðar sýndu að í allt að 40% þeirra voru efni sem talin eru heilsuspillandi. Polyethylene, glycol-efni og ýmis önnur, þ. á m. parabenefni, hafa verið nefnd til sögunnar. Plastefni líkt og þalöt höfum við rætt einnig á undanförnum vikum.

Það verður að horfa til þess að efni sem við berum á okkur frásogast í gegnum húð og berast með þeim hætti í blóðrás og um líkamann. Eðlilega eru áhrifin að miklu leyti magnbundin og líklega í langflestum tilvikum lítilvæg. Það er þó engu að síður eðlilegt að benda á þá áhættu svo að neytendur séu vakandi fyrir því sem getur mögulega valdið heilsutjóni.

Margar vörur í gegnum tíðina hafa innihaldið formaldehýð, sem er vel þekktur skaðvaldur, og einnig asbest og tjara sem hafa verið notuð í snyrtivörur. Evrópa virðist vera lengra komin í þessum efnum en til dæmis Bandaríkin þar sem einungis 11 efni eru bönnuð þar en 1.328 í Evrópu vegna gruns um heilsuspillandi áhrif. Niðurstaðan gæti þá verið, a.m.k. þar sem neytandinn hefur ekki hugmynd um hvernig hann skuli almennt túlka innihald eða áhættu við hverja vöru fyrir sig, að velja evrópska framleiðslu. Við erum með þá löggjöf hér á Íslandi líka svo það er líklegt að við náum að verjast sæmilega. Aðalatriðið er að vera meðvitaður og líklega er orðatiltækið enska „less is more“ hér ágæt nálgun.

Höfundur er læknir




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×