Örlög WOW hafi ekki „veruleg bein áhrif“ á Arion Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. mars 2019 09:18 Höfuðstöðvar Arion í Borgartúni. FBL/Arion
Stöðvun rekstrar WOW Air mun ekki hafa veruleg bein áhrif á afkomu Arion banka. Þessu er haldið fram í tilkynningu frá bankanum sem send var á Kauphöllina í morgun. „Í ljósi umfjöllunar í fjölmiðlum um málefni WOW Air og skuldbindingar félagsins við Arion banka vill bankinn taka fram að stöðvun rekstrar WOW Air mun ekki hafa veruleg bein áhrif á rekstrarafkomu bankans að teknu tilliti til annarra þátta í rekstri bankans.“ Í tilkynningunni segir ennfremur að Arion banki verði fyrir einskiptiskostnaði vegna stöðunnar sem upp er komin hjá WOW. Hver sá kostnaður verður liggur þó ekki fyrir og mun væntanlega ekki gera það fyrr en afkoma Arion á fyrsta ársfjórðungi verður kynnt þann 8. maí næstkomandi. Kostnaðurinn hafi þó ekki bein áhrif á reglulegar tekjur og almennan rekstrarkostnað bankans. Fjárhagsleg markmið bankans til næstu ára, t.a.m. varðandi þróun eiginfjár, eru því óbreytt. Óvíst er þó um áhrif þess að WOW Air hættir starfsemi á ferðaþjónustu og íslenska hagkerfið í heild.
Íslenskir bankar WOW Air Tengdar fréttir WOW air heyrir sögunni til WOW air hefur hætt starfsemi að fullu. 28. mars 2019 08:25 Tilfinningaþrungið bréf Skúla til starfsmanna Skúli Mogensen segist aldrei geta fyrirgefið sjálfum sér. 28. mars 2019 09:06 Mest lesið „Hápunktur morgunsins er síðan rómantíski kaffibíltúrinn“ Atvinnulíf Haukur kveður íþróttafréttamennskuna Viðskipti innlent Áhrif kosninga á starfsfólk og vinnustaði í næstu viku Atvinnulíf Driffjöður Vertonet: „Við erum að setja kjöt á beinin núna“ Atvinnulíf „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Atvinnulíf Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Viðskipti erlent Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Uppsagnir hjá þjónustumiðstöð Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu Viðskipti innlent Tryggja tólf milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá þjónustumiðstöð Íslenskrar erfðagreiningar Tryggja tólf milljarða króna fjármögnun Hafa samið við Fossvélar um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu „Við megum ekki gleyma að lifa og njóta sko“ Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Tóku fyrstu skóflustunguna að einu stærsta vinnsluhúsi landsins Steyptu fyrsta gullmolann Verðbólgan komin undir fimm prósent Gengið frá kaupum Haga á færeyska verslanarisanum Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Helena til Íslandssjóða Two Birds verður Aurbjörg Hafa sótt milljarð í nýtt hlutafé Ósætti með vinnubrögð Blackbox sem virðist á barmi gjaldþrots Hrókeringar í framkvæmdastjórn Eimskips Fyrrverandi ferðamálastjóri opnar ráðgjafarstofu með syninum Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Birta Ósk og Jenna Kristín til Akademias Afkoma Orkuveitunnar 44 prósentum betri en í fyrra Kosningapróf Viðskiptaráðs: Mikil andstaða við sölu á Landsvirkjun Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Sjá meira
Tilfinningaþrungið bréf Skúla til starfsmanna Skúli Mogensen segist aldrei geta fyrirgefið sjálfum sér. 28. mars 2019 09:06