Skoðun

Skattar á reiknaða lottóvinninga

Helgi Tómasson skrifar
Ég hef fengið álagningarseðil fyrir fasteignagjöld ársins 2019. Gjöldin hækka umfram verðbólgu tíunda árið í röð en þjónusta sveitarfélagsins við fasteign mína er óbreytt. Töfraformúla sveitarfélaganna reiknar mér aukinn auð og rýrir ráðstöfunartekjur mínar með skattahækkun. Ég þarf að borga skatt af lottóvinningi sem ég ekki fékk. Þessu til viðbótar þarf ég að fjármagna skattgreiðslur af reiknuðum lottóvinningum annarra fasteignaeigenda sem engan vinning fengu heldur. Ég þarf að borga hækkaðan fasteignaskatt kaupmannsins á horninu sem verður að velta honum á viðskiptavinina. Það verður viðskiptabanki minn og öll önnur fyrirtæki sem ég á viðskipti við líka að gera.

Sumir halda að einhverjir aðrir borgi skatta fyrirtækja, en staðreyndin er að fyrirtækin verða að sækja allt sitt til viðskiptavina sinna. Leigusalar verða að hækka húsaleigu þegar fasteignaskattur hækkar og leigjendur að borga. Allir sem nota húsnæði borga fasteignaskatt, eigendur og leigjendur. Ég borga líka bankaskattinn, hátekjuskatt stjórnenda, innviðagjöld, bráðum kannski veggjöld og marga svipaða skatta. Þessir skattar eru ekkert tengdir tekjum. Þeir eru hærra hlutfall af tekjum lágtekjufólks en hátekjufólks. Skatta verður að borga með tekjum. Allir þessir skattar krefjast innheimtukerfis og fjölda sérfræðinga sem reikna út og innheimta skattana. Þessi flækja er fokdýr fyrir samfélagið. Formaður Sambands sveitarfélaga, Aldís Hafsteinsdóttir, orðaði þetta svo í Morgunblaðinu 19. desember 2018: „... fasteignaskatturinn er snúinn tekjustofn sem sveitarfélögin ráða engu um ... og byggist á flóknum reiknireglum ...“

Það þarf herdeildir iðinna opinberra starfsmanna til að framkvæma þessar flóknu skattareglur. Ófyrirsjáanlegar stökkbreytingar skatta eru hvorki hinu opinbera né skattgreiðendum til góðs. Áætlanagerð verður flóknari og óvissari hjá öllum. Áætlað eignaverð er vondur skattstofn. Flest ríki Evrópusambandsins hafa sem betur fer afnumið eignaskatta. Draugar fortíðar, eins og fasteignagjöld, háð áætluðu verðmæti, eru þó sums staðar enn við lýði, en lúta víðast takmörkunum, en fullyrða má að hvergi tíðkist að þeir leiki lausum hala eins og á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×