Skoðun

Skjátími er ekki bara skjátími

Salvör Nordal skrifar
Mikil umræða hefur átt sér stað undanfarið um notkun barna á skjátækjum. Embætti umboðsmanns barna hefur ítrekað fengið fyrirspurnir um skjánotkun barna og mögulegar takmarkanir á henni en ákall hefur verið frá fagfólki og foreldrum um setningu viðmiða um skjánotkun og skjátíma barna.

Á læknadögum 2018 var skjánotkun barna og unglinga meðal umfjöllunarefna en umboðsmaður barna tók þátt í þeirri umræðu. Samkvæmt lögum um umboðsmann barna er honum ætlað að hafa frumkvæði að stefnumarkandi umræðu um málefni barna. Eftir læknadaga kallaði umboðsmaður barna saman ýmsa sérfræðinga með það að markmiði að mynda faghóp um setningu viðmiða um skjánotkun barna. Mikill áhugi var innan hópsins sem fundaði reglulega á starfstímanum og var það niðurstaða hópsins að miða ekki við tímatakmarkanir á skjánotkun enda sýna rannsóknir að það sem gert er í skjátækjum skiptir meira máli en tímalengdin. Líkt og fullorðnir nota börn skjátæki sín á margvíslegan og uppbyggilegan hátt eins og til að semja tónlist, búa til stuttmyndir, eiga í samskiptum við vini og félaga, sækja sér fræðslu um eigin réttindi og ýmiss konar upplýsingar fyrir nám og daglegt líf.

Viðmiðin voru kynnt í síðasta mánuði og taka þau mið af mismunandi aldursskeiðum barna. Viðmiðin má finna á heimasíðunni www.heilsuvera.is og á heimasíðu umboðsmanns barna, www.barn.is, en að þeim standa Embætti landlæknis, umboðsmaður barna, Barnaheill, Heilsugæslan, Heimili og skóli og SAFT.

Í umræddum viðmiðum er byggt á nýjustu rannsóknum og ályktunum sérfræðinga á þessu sviði. Áhersla er lögð á að skjátími bitni ekki á grunnþörfum barna eins og heilbrigðu líferni, samveru við foreldra, nægum svefni og félagslegum samskiptum. Þá er mælt með því að foreldrar og börn setji sér eigin reglur um skjátíma á heimilum. Foreldrar eru fyrirmyndir og því afar mikilvægt að þeir hugi jafnframt að eigin skjánotkun.

Bandarísku barnalæknasamtökin hafa gefið út stefnuyfirlýsingu þar sem lögð er áhersla á mikilvægi þess að börn taki þátt í tómstundum og hreyfingu, fái nægan svefn og að foreldrar og börn fái fræðslu um skjánotkun. Þá voru nýlega sett fram viðmið í Bretlandi um skjánotkun barna og unglinga af „The Royal College of Paediatrics and Child Health“, sem sér um þjálfun sérfræðinga í barnalækningum, án viðmiða um tímalengd skjánotkunar, en ekki er talið fullsannað að mikil notkun skjátækja sé börnum skaðleg. Þess í stað var farin sú leið að aðstoða fjölskyldur við að móta sér eigin reglur um skjánotkun með áherslu á grunnþarfir barna eins og svefn, næringu og samverustundir fjölskyldu.

Umboðsmaður barna bindur vonir við að umrædd skjáviðmið nýtist sem flestum foreldrum við að eiga samtal við börn um uppbyggilega notkun skjátækja á heimilum.

Höfundur er umboðsmaður barna.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×