Skoðun

Sumu er auðsvarað

Bjarni Benediktsson skrifar
Vegna fækkunar ferðamanna og aflabrests í mikilvægum veiðistofni, loðnunni, verður ekki hagvöxtur á þessu ári eins og spáð hafði verið. Hagkerfið hefur á hinn bóginn verið í miklum vexti undanfarin ár. Það er merkileg staðreynd að hagkerfið er orðið um 25% stærra en það var árið 2013.

Sá tímabundni samdráttur sem nú er gert ráð fyrir er í engu sambærilegur erfiðum samdráttarskeiðum sem við höfum gengið í gegnum áður. Um þetta eru allir sammála.

Ja, nema mögulega Samfylkingin sem hélt fund á mánudaginn var undir yfirskriftinni: „Er annað hrun í vændum?“ Ekkert hefur spurst út um niðurstöðu fundarins. En þessu er auðsvarað. Tvennt stendur upp úr þegar horft er yfir sviðið um þessar mundir:

Horfur til næstu ára eru ágætar. Spáð er hóflegri verðbólgu, áframhaldandi hagvexti, lækkandi vöxtum og með því skilyrðum fyrir aukinn kaupmátt. Við munum lækka tekjuskatt, tryggingagjald lækkar aftur um næstu áramót og áfram verður haldið við styrkingu innviða.

Hins vegar er mikilvægt að gera sér grein fyrir því hve vel við erum í stakk búin til að takast á við breytingar í ytra umhverfinu. Við höfum dregið lærdóm af sögunni, breytt lögum, aukið aga í opinberum fjármálum, innleitt fjármálareglur og búið í haginn fyrir erfiðari tíma. Á undanförnum árum hefur margt gerst:

Við höfum greitt upp 660 milljarða af skuldum og stórlækkað vaxtagreiðslur.

Rekið ríkissjóð með rétt um 390 milljarða afgangi frá 2014.

Erlendar eignir okkar umfram skuldir nema um 600 milljörðum.

Eiginfjárstaða heimila og fyrirtækja hefur stórbatnað og sparnaður vaxið.

Við höfum opnað landið fyrir aukin viðskipti með niðurfellingu vörugjalda og tolla.

Aðlögun að breyttum horfum í hagkerfinu verður ekki með öllu sársaukalaus. Við þurfum að skapa ný störf, sækja fram og halda verðmætasköpun í landinu áfram.

Til þess þarf frumkvæði, bjartsýni og kraft. Það þarf réttar áherslur.

Það getur líka skipt máli að kunna að spyrja réttu spurninganna.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×