Skoðun

Vöndum til verka

Unnur Pétursdóttir skrifar
Töluverð umræða hefur orðið vegna þeirrar ákvörðunar Sjúkratrygginga Íslands að bjóða út þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara á höfuðborgarsvæðinu, með tilvísan í lög um opinber innkaup frá 2016. Lögin eru skýr um þetta efni: Sértæk þjónusta sjúkraþjálfara við sjúklinga er útboðsskyld. Það er sama hversu réttmæt eða ógeðfelld okkur þykir sú ráðstöfun að bjóða út þjónustu við sjúklinga á þessum örlitla heilbrigðismarkaði , við verðum að una því að sinni.

Sjúkraþjálfarar vilja eiga gott samstarf við Sjúkratryggingar Íslands og önnur yfirvöld um það hvernig staðið verður að þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfunarfyrirtækja við sjúklinga. Öll viljum við að sjúklingar fái góða þjónustu á viðráðanlegu verði og ekki síður að almannafé sé vel varið. En til að þessi markmið náist verður að vanda til verka þegar kemur að útboði á þjónustunni. Okkar óskir eru einfaldar: Við þurfum að fresta útboðinu. Það er ekki forsvaranlegt að umbylta starfsumhverfi sjúkraþjálfara, ætla starfsstéttinni að endurskipuleggja alla sína starfsemi, á aðeins fáeinum vikum. Sjúkratryggingar Íslands tilkynntu seint í ágúst að útboðið færi fram og einhliða framlengdur starfssamningur við sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara rynni út í lok þessa mánaðar. Svo stuttur fyrirvari dugar ekki. Rétt er að gildandi lög hafa legið fyrir frá 2016, en það varð ekki ljóst fyrr en nýverið hvernig þeim á að framfylgja. Fjölmargt þarf að skýra betur.

Útboðsgögnin þarf að bæta og til þess þarf að fá sjúkraþjálfara að borðinu, þá sem þekkja starfsemina og það sem taka verður með í reikninginn. Ég nefni nokkur atriði: Taka verður tillit til menntunar, reynslu og sérhæfingar sjúkraþjálfara, líka mismunandi húsnæðiskostnaðar stofanna, sem starfa í ólíkum hverfum á höfuðborgarsvæðinu. Þá hafa sjúkraþjálfarar áhyggjur af því hvernig tryggja eigi öllum sem á þurfa að halda aðgang að þjónustu í nýju samkeppnisumhverfi.

Er ekki skynsamlegt að hinkra með útboð þar til fyrir liggur hver stefna ríkisins er í endurhæfingarmálum - að útboð miðist við markaða stefnu? Skýrsla um stefnumótun í endurhæfingu er væntanleg í mars á komandi ári. Þó fullyrt sé að þar sé ekki fjallað um greiðsluþátttöku eða rekstrarform , þá er ómögulegt að horfa framhjá þeim þáttum þegar um er að ræða forgangsröðun í útboði. Hvaða þjónustu ríkið ætlar að kaupa hlýtur að taka mið af stefnu heilbrigðisyfirvalda í endurhæfingarmálum.

Sjúkraþjálfarar hafa skiljanlegar áhyggjur af því að útboðið sé ekki nógu vel undirbúið og grundað. Allir þurfa meiri tíma. Það hlýtur að vera sameiginlegt hagsmunamál okkar allra, sjúklinga, sjúkraþjálfara og yfirvalda að þessi viðamikla breyting á kerfi sjúkraþjálfunar gangi vel og verði til heilla.

Höfundur er formaður Félags sjúkraþjálfara.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×