Skoðun

Hægri stjórn?

Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar
Nýverið slitnaði upp úr kjaraviðræðum ríkis og BSRB og lýsir það vel afstöðu stjórnvalda til þessara lykilstétta hins opinbera. Formaður BSRB sagði meira að segja að þetta sýndi að „ríkið hefur ekki verið í kjarasamningsviðræðum af heilum hug“ sem eru stór orð. Í BSRB eru á þriðja tug þúsunda opinberra starfsmanna og þar af 2/3 konur. BSRB er ekki aðeins stærstu heildarsamtök opinberra starfsmanna heldur einnig stærsta verkalýðssamband kvenna hérlendis.

Hugur þessarar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins undir forystu Katrínar Jakobsdóttur til ríkisstarfsmanna kemur vel fram í nýkynntu fjárlagafrumvarpi. Þar stendur svart á hvítu að einungis er gert ráð fyrir að opinberir starfsmenn fái 3% launahækkun. Á sama tíma gerir þetta sama fjárlagafrumvarp ráð fyrir hærri verðbólgu en þessi 3% eru. Fjárlagafrumvarpið þýðir því beinlínis kjararýrnun til opinberra starfsmanna.

3% eða 80%

Til viðbótar berast fréttir um ótrúlega háar launahækkanir ríkisforstjóra, sem í sumum tilvikum nema 30-80% á 2 árum. Sum þessara launa hækkuðu um heil kennaralaun á mánuði við síðustu hækkun.

Nýtt launakerfi tók gildi um áramótin en það hafði í för með sér að tveir af hverjum þremur ríkisforstjórum hækkuðu í launum, allt að 27% í sumum tilvikum. Við síðustu launahækkun voru stjórnendur og ráðuneytin (ráðherrarnir), beinlínis beðin um athugasemdir en við það hækkuðu laun ríkisforstjóranna enn meira. Þetta gerist á vakt Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins. Og þetta gerist þrátt fyrir breytingar á kjararáði sem stjórnarliðar stærra sig af að hafa gert.

Hvernig stendur á því að stjórnvöld standa að hækkun launa ríkisforstjóra um 30-80% á sama tíma og kennarar, sjúkraliðar, slökkviliðsmenn, sjúkraflutningsmenn, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, lögreglumenn, tollverðir og þroskaþjálfarar eiga að fá 3% launahækkun?



Verk ríkistjórnarinnar tala

Það kristallast í þessari umræðu hvaða hagsmunir verða hér ofan á. Tökum fjögur dæmi.

1. Við höfum ríkisstjórn sem telur fullkomlega eðlilegt að fjármagnstekjuskattur sé lægstur á Íslandi af öllum Norðurlöndunum. Og enn einu sinni stefna stjórnvöld á að verja fjármagnseigendur, einn hópa, gegn komandi verðbólguskoti.

2. Lækkun bankaskatts er sett í forgang á sama tíma og aðhaldskrafa er sett á sjúkrahús og skóla.

3. Við erum með ríkisstjórn sem finnst fullkomlega eðlilegt að upphæð veiðileyfagjalda hefur lækkað um 40% síðan þessi ríkisstjórn tók við völdum.

4. Við erum með ríkisstjórn sem finnst fullkomlega eðlilegt að 5% ríkustu landsmanna eigi svipað af hreinum eignum og hin 95%. Ríkustu 10% Íslendinganna eiga um 60% af eigin fé landans. Og núna er það allt í einu heilmikið forgangsmál að lækka erfðafjárskatt. Hagsmuni hverra er verið að verja?

Af hverju ganga Vinstri græn ekki einfaldlega í Sjálfstæðisflokkinn?

Þetta gerist allt á sama tíma og félagsmenn BHM og BSRB, og sérstaklega kvennastéttirnar, eiga að sitja eftir, því að mati ríkisstjórnarinnar er það víst þeirra að halda uppi hinum meinta stöðugleika hagkerfisins.

Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×