Valdís leiðir á heimavelli en tveir jafnir í karlaflokki Anton Ingi Leifsson skrifar 22. maí 2020 21:14 Valdís fann sig vel á heimavelli. [email protected]
Haraldur Franklín Magnús og Hákon Örn Magnússon leiða í karlaflokki og Valdís Þóra Jónsdóttir í kvennaflokki á B59-hótel mótinu á Akranesi en mótið er fyrsta mót tímabilsins á stigamótaröð GSÍ 2020. Golfklúbburinn Leynir er framkvæmdaraðili mótsins og fór fyrsti hringur helgarinnar fram í dag. Haraldur Franklín og Hákon Örn leika báðir úr Golfklúbbi Reykjavíkur en þeir léku á fimm höggum undir pari. GR-ingar eru áberandi í toppbaráttunni en fjórir af fimm efstu eru úr GR að loknum fyrsta keppnisdeginum. Topparnir voru tveimur höggum frá því að jafna vallarmetið sem Kristján Þór Einarsson, GM, setti árið 2016, en það er 65 högg eða -7. Haraldur Franklín lét til sín taka á æfingasvæði Leynis https://t.co/hvz71Eg8Bm via @golf.is— Golfsamband Íslands (@Golfsamband) May 22, 2020 Í kvennaflokki eru þrír atvinnukylfingar efstir eftir fyrsta keppnisdaginn á Garðavelli á Akranesi. Valdís Þóra Jónsdóttir, sem er á heimavelli á þessu móti, er efst á 67 höggum eða fimm höggum undir pari. Valdís Þóra hjó nærri vallarmetinu af bláum teigum í kvennaflokki. Guðrún Brá Björgvinsdóttir á það met en það setti hún árið 2012 en það er 66 högg. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er höggi á eftir á -4 og Guðrún Brá, Íslandsmeistari í golfi undanfarin tvö ár, er þriðja á -1. Staða efstu kylfinga í karlaflokki: 1.-2. Haraldur Franklín Magnús, GR 67 högg (-5) 1.-2. Hákon Örn Magnússon, GR 67 högg (-5) 3. Hlynur Bergsson, GKG 68 högg (-4) 4.-5. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR 69 högg (-3) 4.-5. Dagbjartur Sigurbrandsson (GR) 69 högg (-3) 6.-9. Aron Emil Gunnarsson, (GOS) 70 högg (-2) 6.-9. Bragi Arnarson, (GR) 70 högg (-2) 6.-9. Ragnar Már Ríkharðsson, (GM) 70 högg (-2) 6.-9 Jóhannes Guðmundsson, (GR) 70 högg (-2) 10.-14. Kristófer Tjörvi Einarsson, (GV) 71 högg (-1) 10.-14. Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, (GS) 71 högg (-1) 10.-14. Sverrir Haraldsson, (GM) 71 högg (-1) 10.-14. Lárus Ingi Antonsson, (GA) 71 högg (-1) 10.-14. Andri Þór Björnsson, (GR) 71 högg (-1) Staða efstu kylfinga í kvennaflokki: 1. Valdís Þóra Jónsdóttir, (GL) 67 högg (-5) 2. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, (GR) 68 högg (-4) 3. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, (GK) 71 högg (-1) 4.-5. Saga Traustadóttir, (GR) 73 högg (+1) 4.-5. Andrea Ýr Ásmundsdóttir, (GA) 73 högg (+1) 6.-7. Hulda Clara Gestsdóttir, (GKG) 74 högg (+2) 6.-7. Ragnhildur Kristinsdóttir, (GR) 74 högg (+2) 8. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, (GR) 75 högg (+2) 9.-12. Hafdís Alda Jóhannsdóttir, (GK) 76 högg (+4) 9.-12. Heiðrún Anna Hlynsdóttir, (GOS) 76 högg (+4) 9.-12. Berglind Björnsdóttir, (GR) 76 högg (+4)
Golf Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Fór holu í höggi yfir húsið sitt Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira