Skoðun

Fátækum neitað um réttlæti

Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar

„Stjórnvöld eiga ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi að bíða eftir réttlæti.“ Þetta sagði Alþingiskonan Katrín Jakobsdóttir í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra 13. september 2017, skömmu fyrir síðustu þingkosningar. „Núverandi áætlanir þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr gera ráð fyrir því að öryrkjar og aldraðir eigi að halda áfram að hokra og búa við skammarleg kjör,“ hélt þingkonan áfram.

Tíu vikum síðar varð Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í ríkisstjórn Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Ríkisstjórnin tók við mjög góðu búi – staða ríkissjóðs var sterk, skuldir lágar og hagvöxtur mikill. Það var því ekki að ástæðulausu að öryrkjar bundu miklar vonir við hinn nýja forsætisráðherra. Var biðin eftir réttlæti loks á enda? Myndi félagshyggjukonan Katrín Jakobsdóttir standa við stóru orðin?

Svikin loforð

Fyrsta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur olli öryrkjum gríðarlegum vonbrigðum. Meðan ríkissjóður var rekinn með 48 milljarða króna afgangi sáust í frumvarpinu engin merki um efndir á fögrum fyrirheitum þingkonunnar Katrínar Jakobsdóttur um réttlæti fyrir fátækt fólk. Í stað þess að nýta hina sterku stöðu ríkissjóðs í þágu réttlætis fyrir fátækt fólk lagði Katrín fram nákvæmlega sömu áætlun og hún gagnrýndi réttilega fyrr um haustið. Enn mátti fátækt fólk bíða eftir réttlæti.

Síðan þá hefur bilið milli örorkulífeyris og lágmarkslauna haldið áfram að breikka. Í síðustu viku lagði ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fram sitt fjórða og síðasta fjárlagafrumvarp á kjörtímabilinu. Verði það samþykkt óbreytt verður óskertur lífeyrir almannatrygginga orðinn 86 þúsund krónum lægri en lágmarkslaun á næsta ári. Ráðstöfunartekjur öryrkja verða 233 þúsund krónur á mánuði. Katrín hefur fjórum sinnum fengið tækifæri til að binda enda á bið öryrkja eftir réttlæti. Fjórum sinnum hefur hún valið að gera það ekki.

Viðbrögð öryrkja við fjárlagafrumvarpinu eru sár vonbrigði – fjórða árið í röð. Stjórn Þroskahjálpar segir að „verði frumvarpið og áætlunin samþykkt óbreytt af Alþingi þýðir það að örorkulífeyrisþegar dragast enn meira aftur úr hvað lífskjör varðar og eru dæmdir til áframhaldandi fátæktar.“Öryrkjabandalagið lýsir sömuleiðis yfir „gríðarlegum vonbrigðum með að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ætli öryrkjum áfram að treysta á matargjafir til að lifa af.“

Sorgleg arfleifð

„Þegar þetta fátæka fólk er beðið um að bíða eftir réttlætinu er verið að neita því um réttlæti,“ sagði þingkonan Katrín Jakobsdóttir í fyrrnefndri ræðu á Alþingi 13. september 2017. Sorgleg er sú arfleifð forsætisráðherrans Katrínar Jakobsdóttur að hafa neitað þessu fátæku fólki um réttlæti í heilt kjörtímabil í viðbót.

Höfundur er jafnaðarmaður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×