Skoðun

Má ekki lengur segja móðir?

Karl Gauti Hjaltason skrifar

Nokkur frumvörp hafa verið til umfjöllunar á Alþingi sem tengjast lögum um kynrænt sjálfræði. Þar kennir ýmissa grasa. Meðal annars er verið að hreinsa út úr ýmsum lögum orð eins og móðir, kona, karl, barn, kvæntur maður og gift kona, faðerni og móðerni, kvenmaður, eiginkona, eiginmaður, sambúðarkona og sambúðarmaður.

Orðið móðir hreinsað út

Í mörgum tilfellum er um tiltölulega saklausar breytingar að ræða, en í öðrum tilfellum hreint alls ekki. Sérstaklega fer illa á því að taka út orðið móðir í nokkrum greinum hegningarlaga, orð sem er rótgróið í vitund landsmanna. Í hegningarlögunum er orðið notað í hefðbundnum skilningi þess og haft um þá manneskju sem ber barn undir belti eða fæðir barn.

Fórn

Ekki verður séð að orðið móðir í skilningi hegningarlaga þurfi að hreinsa úr lögunum. Hvaða máli skiptir í því sambandi hvernig kynfæri manneskjunnar líta út? Eða hvaða kynskráningu sú manneskja sem ber barn undir belti kýs sér? Manneskjan er verðandi móðir ef hún ber barn undir belti og móðir þegar hún fæðir barn. Orðið móðir er fallegt og lýsandi íslenskt orð og óviðunandi ef því á að fórna fyrir öfgar.

Krukkað í refsilög

Til þess að skýra þetta nánar má í þessu sambandi líta til lagabreytingar á 192. gr. hegningarlaga sem leggur refsingu við því ef einhver rangfærir sönnun fyrir faðerni eða móðerni barns, t.d. með rangri skýrslu fyrir yfirvaldi. Þarna er verið að fella brott orðin faðerni og móðerni. Í stað þess er sett inn orðið foreldrastaða! Hér er um afkáralega breytingu að ræða. Orðið foreldrastaða kemur hér ekki í stað orðanna móðerni eða faðerni og afbakar refsiákvæðið og það verður markleysa. Engin sérfræðingur á sviði refsiréttar veitti umsögn um þessar breytingar á refsilögum. Er slíkt mál tækt til afgreiðslu á Alþingi? En það skiptir líklega engu máli, því tilgangurinn helgar meðalið.

Öfgar í fyrirrúmi

Eins og stundum áður er hér gengið allt of langt og má vel tala um öfga í því sambandi. Ákvæðið leggur refsingu við því að leggja stein í götu yfirvalda þegar þau grennslast fyrir um faðerni eða móðerni barns og þar hefur verið átt við líffræðilegan föður eða móður. Ef átt er við eitthvað annað en það, þá er búið að breyta algerlega um hugsun í ákvæðinu. Er þá ekki lengur átt við að leitast sé við að grennslast fyrir um blóðtengsl móður eða föður við barnið. Öfgar? Já, allir ættu að geta séð að hér eru á ferðinni glórulausir öfgar.

Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×