Pepsi Max-deild karla átti að hefjast með stórleik á Hlíðarenda í kvöld Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. apríl 2020 12:30 Pálmi Rafn Pálmason tryggði KR Íslandsmeistaratitilinn á Hlíðarenda í fyrra. vísir/bára
Keppni í Pepsi Max-deild karla átti að hefjast í kvöld með leik Vals og Íslandsmeistara KR á Origo-vellinum á Hlíðarenda. Kórónuveirufaraldurinn setti hins vegar allt úr skorðum og liðin hafa ekki mátt æfa saman í nokkrar vikur. Banni við skipulögðum æfingum verður aflétt að hluta 4. maí og 3-4 vikum síðar mega liðin væntanlega byrja að æfa án allra takmarkana. Stefnt að því að hefja keppni í Pepsi Max-deild karla 14. júní. Mótið hefst væntanlega í miðjum klíðum og leikirnir sem áttu að vera búnir að verða færðir aftar eða skotið inn á milli. Eins og áður sagði áttu Valur og KR að mætast í upphafsleik Pepsi Max-deildar karla í kvöld. Fjórir leikir áttu að fara fram á morgun, sumardaginn fyrsta, og 1. umferðinni átti svo að ljúka með leik Stjörnunnar og Fylkis á föstudagskvöldið. KR tryggði sér 27. Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins með sigri á Val á Origo-vellinum 16. september á síðasta ári. Pálmi Rafn Pálmason skoraði eina mark leiksins. KR vann Pepsi Max-deildina með miklum yfirburðum, fékk fjórtán stigum meira en liðið í 2. sæti, Breiðablik. Valur olli miklum vonbrigðum í fyrra og endaði í 6. sæti. Eftir tímabilið var Heimir Guðjónsson ráðinn þjálfari Vals í stað Ólafs Jóhannessonar sem færði sig yfir til Stjörnunnar.
Pepsi Max-deild karla KR Valur Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Fleiri fréttir Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Sjá meira