Skoðun

Má bjóða þér klukk­stund í við­bót við daginn?

Íris Róbertsdóttir skrifar

„Hamingjan er fundin!'' Mér hlýnaði í hjartanu þegar ég las þessa fyrirsögn um umfjöllun niðurstöðu íbúakönnunar landshlutasamtaka sveitarfélaga. Þar kom fram að Vestmannaeyingar eru ánægðastir allra á landinu með sín búsetuskilyrði; og svo erum við líka hamingjusömust!

Þetta kemur heim og saman við niðurstöður í annari könnun sem ég kynnti nýlega og Gallup gerði á þjónustu sveitarfélaga. Þar er Vestmannaeyjabær efstur á lista yfir 20 stærstu sveitarfélög landsins þegar spurt er um þjónustu við barnafjölskyldur og fatlaða. Sveitarfélagið er í öðru sæti yfir landið þegar kemur að þjónustu við eldri borgara, þjónustu leikskóla og aðstöðu til íþróttaiðkunar. Á heildina litið eru mjög margar jákvæðar niðurstöður í könnuninni. Við þurfum hins vegar líka að huga að því sem betur má fara, svo sem sorphirðumálum.

Til viðbótar þessum jákvæðu niðurstöðum er Vestmannaeyjabær að stíga ný skref í skólaþróun í samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Háskóla Íslands og Samtök atvinnulífsins. Þetta er þróunar- og rannsóknarverkefni til að efla læsi og bæta líðan nemenda og er í þeim efnum m.a. horft sérstaklega til stöðu drengja. Skipulagi skóladagsins verður breytt, ný nálgun tekin upp og ný skref verða tekin. Verkefnið er einstakt og mun nýtast öllum íslenskum skólum. Mikil metnaður er fyrir þessu verkefni í Grunnskóla Vestmannaeyja og verður spennandi að fylgjast með framvindu málsins þar.

Það er gott að búa í Eyjum. Mikil samkennd er í samfélaginu og við erum stolt af bænum okkar. Það er spennandi kostur fyrir barnafólk að horfa til Eyja þegar velja á sér búsetu. Ofan á allt sem áður er nefnt má bæta þeim verðmætu lífsgæðum sem felast í því að græða heilan klukktíma á dag vegna skemmri vegalengda og engra tafa í umferð sé miðað við höfuðborgarsvæðið. Þann klukkutíma má nota í ýmislegt þarfara og skemmtilegra en að sitja fastur í bíl! Það ætti líka að freista barnafólks að í Eyjum er hægt að fá leikskólapláss fyrir börn strax frá 12 mánaða aldri.

Í fréttum núna um helgina kom svo fram að í Vestmannaeyjum er lægsta tíðni afbrota á öllu Íslandi!

Þarf frekari vitnanna við? Verið velkomin - sjáumst í Eyjum!

Höfundur er bæjarstjóri Vestmannaeyja.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×