Albumm

Mælginn og GKR sameina krafta sína

Ritstjórn Albúmm.is skrifar
Viktor Mælginn.
Viktor Mælginn.

Tónlistarmaðurinn Mælginn var að gefa út nýtt lag sem ber nafnið Efstaleiti. Lagið er pródúserað af rapparanum GKR og nutu þeir aðstoðar við gítarleikinn frá hinum bandaríska pródúsent Max Back.

„Ég og GKR erum búnir að vera vinir lengi og höfum við verið að vinna að tónlist saman seinustu árin og hér má heyra fyrsta afraksturinn af því samstarfi og það er nóg á leiðinni,“ segir Mælginn

Lagið er í poppaðri kantinum en áður hefur heyrst frá Mælginn og mætti jafnvel líkja því við hálfgerðu Amerísku háskóla rokk/rapp lagi.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.