Skoðun

Mitt eigið ferðaheit

Inga Hlín Pálsdóttir skrifar

Núna getum við loksins hugað að því ferðast hvort sem það er innanlands eða erlendis. Á Covid tímum voru höfð uppi stór orð um það alþjóðlega að enginn áfangastaður ætlaði sér aftur í offjölgun ferðamanna og unnið yrði að mun sjálfbærari framtíð. Allir vænta þess að áfangastaðir séu nú orðnir skipulagðir og vel undirbúnir undir heimsóknir ferðamanna. Margar greinar og loforð hafa verið gefin um slíkt hvort sem það er á Íslandi eða erlendis. Í fullkomnum heimi, munum við hafa gert ráð fyrir öllum þáttum en raunveruleikinn er aldrei þannig. Við munum alltaf eiga við einhverjar áskoranir eða horfa til nýrra tækifæra þegar áfangastaðirnir og ferðalög þróast.

Margir áfangastaðir hafa búið til sín eigin ferðaheit fyrir áfangastaði sína og þar með talið Ísland undir heitinu „The Icelandic Travel Pledge“ frá árinu 2018. Þar eru ferðamenn m.a. hvattir til þess að virða náttúruna, keyra ekki utanvegar og sína ábyrgð í allri ferðahegðun. Það sem hefur minna verið talað um er hvernig við sem ferðamenn getum sjálf tekið ákveðna ábyrgð og ferðast á ábyrgari og sjálfbærari hátt.

Þetta hefur fengið mig til þess að velta fyrir mér hvernig ég sjálf get tekið þátt í þróun áfangastaða í stað þess að bíða eftir því að áfangastaðirnir eða ferðaþjónustufyrirtækin segi mér hvernig ég eigi að haga mér. Því þróunin liggur mun meira hjá okkur sjálfum en við höldum. Ég ákvað því að prófa að gera mitt eigið ferðaheit fyrir sumarið.

Ferðaheitið mitt er því:

  • Að velja áfangastaði sem sýna umhyggju fyrir framtíð áfangastaðarins
  • Að velja hótel og afþreyingu sem hafa umhverfisvottanir
  • Að velja staðbundnar vörur, afþreyingu, gistingu eða leiðsögn
  • Að skoða og njóta en ekki skilja nein ummerki eftir mig
  • Að lágmarka matarsóun eins og hægt er
  • Að flokka og plokka rusl sem verður á vegi mínum
  • Að velja umhverfisvænni ferðamáta þar sem kostur er
  • Að kolefnisjafna ferðamátann minn
  • Að biðja um umhverfisvænni valkosti þar sem ég dvel eða er í afþreyingu
  • Að senda þakkir til þjónustu aðila ef ég er ánægð eða ef þeir geta bætt sig á einhvern hátt er varðar sjálfbærni og ábyrgð.

Þetta er ágætis byrjun en mögulega mun þetta þróast með tímanum. Hvað myndi vera ykkar ferðaheit þetta sumarið?

Höfundur er alþjóðlegur ráðgjafi í ferðamálum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×