Skoðun

Saman til heilsu­eflingar

Sigrún V. Heimisdóttir, Katrín Ösp Jónsdóttir og Inga Dagný Eydal skrifa

Umræða um álagsáhrif og minnkandi úthald ákveðinna hópa, hefur verið áberandi í samfélaginu undanfarið. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO varar við flótta úr framlínustörfum í heilbrigðisþjónustu vegna álags og veikinda starfsfólks og mögulegt er að slíkt gæti einnig átt við um aðrar starfsstéttir.

Oft þegar álagi linnir koma afleiðingarnar fram t.d. í líkamlegri- og sálrænni þreytu og jafnvel breytingum á hegðun. Langflestir komast þó í gegnum álagstíma án langvarandi neikvæðra afleiðinga og mikilvægt er að hafa það í huga. Aðrir upplifa lítinn kraft eftir, til uppbyggingar og eiga hættu á langtíma afleiðingum á heilsu og lífsgæði.

Einkenni geta birst í breytingu á hegðun og þátttöku í daglegu lífi og þau geta verið dulin. Líkamleg einkenni geta m.a. komið fram sem þróttleysi, þreyta, meltingaróþægindi, vöðvabólga eða verkir. Sálræn einkenni svo sem breytingar á skapi, tilfinningalegu jafnvægi, einbeitingu og minni eru algeng. Við drögum okkur í hlé, finnum afsakanir og hörfum inn í heim sem krefst ekki mikils af okkur. Höfum kannski ekki mikið að gefa hvort sem er. Afleiðingar langvarandi álags og streitu þar sem við upplifum litla stjórn, geta komið fram í alvarlegum veikindum.

Mikilvægast er að hunsa ekki merkin sem líkaminn og taugakerfið senda okkur og muna hvað við skiptum miklu máli. Að huga að okkur sjálfum. Við eigum líklega flest allskonar bjargráð í pokahorninu. Til dæmis er gott er að tala við þá sem við treystum s.s. fjölskyldumeðlimi eða vini. Huga að lífsstílnum, halda rútínu og sköpun og iðja skiptir einnig miklu máli. Ef við þurfum frekari stuðning þá er mikilvægt að leita sér aðstoðar.

Við viljum leggja okkar af mörkum og bjóða starfsfólki í heilbrigðisþjónustu og í skólum, á Akureyri, á stuðningsfundi þar sem rætt verður um áhrif langvarandi álags, hvernig við getum þekkt viðvörunarmerkin og brugðist við. Unnið verður með sjálfsumhyggju, rætt um hugtakið „samúðarþreytu“og hvað er hjálplegt til varnar neikvæðum áhrifum álags á heilsu og líðan.

Fundirnir verða í sal Heilsu og sálfræðiþjónustunnar á Akureyri þann 9. og 10. febrúar nk. kl. 17:00. Nánari upplýsingar og skráning á heimasíðunni www.heilsaogsal.is.

Heilbrigðisstarfsfólk sem og aðrar fjölmennar stéttir sem vinna við að hlúa að öðru fólki eru sérfræðingar í eigin starfsumhverfi og mikilvægt að rödd þessara hópa heyrist. Því hvetjum við til samtals um það hvað er hjálplegt til varnar neikvæðum áhrifum álags og til eflingar heilsu og lífsgæða.

Tökum höndum saman, tölum saman og verið velkomin á stuðningsfund!

Fh. streituteymis Heilsu og sálfræðiþjónustunnar

Sigrún V. Heimisdóttir, sálfræðingur

Katrín Ösp Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur

Inga Dagný Eydal, hjúkrunarfræðingur




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×