Skoðun

Þar sem hjartað slær – í­þrótta­starf í Garða­bæ

Stella Stefánsdóttir skrifar

Það má með sanni segja að skipulagt íþróttastarf í Garðabæ sé mikilvæg stoð í samfélaginu og hlutverk íþróttastarfs sé í raun mikið stærra en að veita „bara“ íþróttalegt uppeldi. Íþróttir hafa mikið forvarnargildi, auka samkennd og samheldni íbúa og hafa oftast jákvæð áhrif á bæjarbrag. En oft og tíðum hefur sál og hjarta samfélagsins í Garðabæ einmitt slegið í takt við gengi Stjörnunnar eða annarra íþróttafélaga.

Byggjum upp sterka einstaklinga

Bærinn á áfram að hlúa vel að afreksíþróttafólki. Halda áfram að styðja við bakið á því í víðum skilningi með það að markmiði að byggja upp sterka eintaklinga með heilbrigða sjálfsmynd til framtíðar. Bærinn á að leggja metnað í að bjóða iðkendum framúrskarandi aðstöðu til æfinga og keppni árið um kring.

Fjölbreytt íþrótta- og frístundastarf

Það hentar hins vegar ekki öllum að stefna á íþróttaiðkun á afreksstigi. Fjöldi barna, ungmenna, og í raun fólks á öllum aldri stundar allskyns íþróttir og heilsurækt af öðrum ástæðum eins og t.d. til að efla hreysti eða út af góðum félagsskap. Styrkja þarf áframhaldandi samstarf Garðabæjar við frjáls félög sem vinna að skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi í Garðabæ.

Þátttaka fólks í íþróttum, frístundastarfi og hreyfingu hefur forvarnargildi óháð aldri. Þess vegna þarf að leggja áherslu á að efla virkni fólks á öllum aldursskeiðum, ekki síst þegar árunum fjölgar. Brottfall úr skipulögðu íþróttastarfi er algengt á aldursbilinu 15 til 18 ára. Leita þarf leiða til að grípa þessi ungmenni og aðra sem finna sig ekki í „hefðbundnu“ starfi í einhverskonar skipulagt íþrótta- eða frístundastarf eða til að stunda heilbrigða hreyfingu. Þess vegna á Garðabær að styðja ríkulega við og tryggja fjölbreytta nálgun á íþrótta- og frístundastarfi fyrir íbúa á öllum aldri. Þá þarf að standa vörð um jafnrétti kynja og fylgja því markvisst eftir þegar stuðningur er veittur.

Hlúum að klappstýrunum

Á bak við iðkendur eru foreldrar, systkini, börn og jafnvel heilu fjölskyldurnar. Þessi hópur á bak við iðkendur sem nær í raun langt út fyrir íþróttavöllinn er mikilvægur stuðningur við íþróttastarf og er oft uppspretta viðburða, ferðalaga og góðra vintatengsla. Hlúa þarf að og styðja við öflugt starf sjálfboðaliða og stuðningsmanna íþróttafélaga enda er stuðningur þeirra ómetanlegur fyrir félögin og ákaflega mikilvægur hlekkur í samheldni og samkennd íbúa og bæjarbrag.

Hugsum íþróttamannvirki sem samfélagsmiðstöðvar

Í Garðabæ hefur verið lagður metnaður í að byggja upp góða íþróttaaðstöðu. Tilkoma Miðgarðs mun stórefla aðstöðu til íþrótta- og frístundastarfs í Garðabæ. Það má segja að öll íþróttamannvirki séu einhverskonar samfélagsmiðstöðvar. Þar hittist fólk og tekur púlsinn á málefnum líðandi stundar. Við þurfum að bæta aðstöðu fólks til félagslegrar samveru í íþróttamannvirkjum bæjarins.

Tryggja þarf áfram greiðan aðgang íbúa á öllum aldri að góðri íþrótta- og félagsaðstöðu í nærumhverfinu, sé þess kostur. Það þarf að huga vel að viðhaldi íþróttamannvirkja, leggja kapp á að að yngri börn geti stundað stærri íþróttagreinarnar í nálægð við heimili sitt og að umfang íþróttamannvirkja vaxi í takt við fólksfjölgun. Þá er einnig löngu tímabært að fá spennandi líkamsrækt miðsvæðis í Garðabæ.

Höfundur er varabæjarfulltrúi og gefur kost á sér í 3.-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×