Skoðun

Er meiri­hlutinn í Hafnar­firði að villa um fyrir fólki?

Sigurður P. Sigmundsson skrifar

Stjórnmálamenn eiga það til að gefa loforð sem þeir vita að ekki verði staðið við. Hver man ekki eftir göngum milli lands og Eyja, Sundarbraut og flutningi flugvallarins úr Reykjavík. Ekkert af þessu hefur gengið eftir. Nú bregður svo við að bæjarstjórnarmeirihluti sjálfstæðismanna og framsóknar í Hafnarfirði auglýsir grimmt þessa dagana byggingaráform þar sem stefnt er að því að bæjarbúum muni fjölga um 17 þúsund fyrir árið 2040. Til samanburðar þá fjölgaði íbúum Hafnarfjarðar um rúm 10 þúsund á árunum 2000 til 2022.

Besta mál að eitthvað sé loksins að gerast í byggingu íbúðahúsnæðis í bænum en fjölgun um 17 þúsund manns á 18 árum er algerlega óraunhæft. Slíkt myndi setja alltof mikinn þrýsting á uppbyggingu innviða. Þegar svona tölum um byggingaráform er slegið fram verður að gera kröfur um að nánari upplýsingar fylgi um hvað þurfi til að slíkt raungerist. Skoðum nokkur atriði:

  1. Hafnarfjarðarbær á mjög fáar lóðir á Hraun-vestur svæðinu, Flensborgarsvæðinu og Óseyrarsvæðinu. Hefur vissulega skipulagsvaldið en stýrir ekki hraða uppbyggingar. Lóðareigendur ráða þar för.
  2. Téður meirihluti virðist treysta á að Borgarlínan muni leysa að mestu aukna ferðaþörf á höfuðborgarsvæðinu. Um það ríkir óvissa auk þess sem Hafnarfjörður er aftarlega á framkvæmdaráætlun.
  3. Ekki hefur náðst samkomulag við Garðabæ og Vegagerðina um vegstæði ofanbyggðarvegar. Ólíklegt að niðurstaða fáist í það mál í bráð enda búið að vera í umræðunni í fjölda ára.
  4. Í samgönguáætlun ríkisins eru 12.600 m.kr. áætlaðar árin 2024-2029 í Reykjanesbrautina milli N1 Lækjargötu og Kaplakrika. Enn ekki búið að ákveða hvort vegakaflinn verði lagður í stokk eða önnur útfærsla valin. Stokkur yrði óhemju dýr og forsendan er sú að búið verði að leggja ofanbyggðarveginn til að taka við umferðarþunganum í tvö ár eða svo.

Þetta eru einungis nokkur atriði sem upplýsa þarf almenning um áður en slegið er upp glæstum byggingaráformum. Við í Bæjarlistanum leggjum áherslu á vönduð og heiðarleg vinnubrögð.

Höfundur er oddviti Bæjarlistans í Hafnarfirði.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×