Skoðun

Ekki mis­nota sam­eigin­legar eigur

Ingibjörg Þ. Þorleifsdóttir skrifar

Það er mikilvægt fyrir sveitarfélag eins og okkar í Ölfusi að íbúar og samtök þeirra tali saman um málefni sem okkur varða, og til þess höfum við meðal annars flokka og önnur stjórnmálasamtök.

Það skiptir líka miklu máli að umræður og skoðanaskipti fari fram á jafnræðislegum grunni. Sérstaklega ber að gæta þess að sameiginlegur vettvangur íbúanna allra og eigur þeirra, sveitarfélagið og stofnanir þess, séu lausar við átökin sem eru því miður fylgifiskur pólitíkurinnar.

Mér finnst þess vegna langt gengið þegar á vefsvæði Ölfuss, olfus.is, birtist ritgerð sem ekki er hægt að líta á öðruvísi en innlegg í umræður milli Íbúalistans og Sjálfstæðisflokksins um ástandið í málefnum aldraðra, fyrst á vefsvæði Íbúalistans með grein Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur, og svo í grein í Hafnarfréttum eftir „fulltrúa D-lista“ 23. mars. Ritsmíðin á olfus.is er nánast eins og skrifuð upp úr grein „fulltrúanna“, enda lætur höfundur hennar ekki nafns síns getið.

Ég ætla mér ekki að meta hér rök og mótrök um frammistöðu sveitarstjórnarinnar í málefnum aldraðra, en vil hins vegar mótmæla því að vefsvæði sveitarfélagsins sé nýtt í þágu eins af framboðslistunum í kosningunum nú í maí. Og alveg sérstaklega orðalaginu í ritsmíðinni á Ölfusvefnum, sem einkennist af hroka, steigurlæti og „hrútskýringum“.

Nánast öll sveitarfélög landsins eiga sér vefsvæði, og þau nýtast bæði íbúum og gestum oftast frábærlega, og þá er vefsvæði okkar ekki undan skilið þótt ýmislegt mætti bæta. Ég veit hins engin dæmi um það annars staðar að vefsvæðið sé notað fyrir pólitík meirihlutans eða eins meirihlutaflokksins. Það yrðu engin smá-læti ef vefsvæði Reykjavíkur undir forystu Dags B. Eggertssonar væri notað svona gegn einhverjum minnihlutaflokkanna þar. Eða ef Gísli Halldór Halldórsson skrifaði slíka nafnlausa grein á Árborg.is, eða Kjartan Már Kjartanssn á vef Reykjanesbæjar, þannig að nefndir séu bæði kosnir bæjarstjórar og ráðnir í nokkrum grannbyggðum okkar. Ætli það hitnaði ekki svo undir þeim að þeim yrði varla sætt í stólnum.

Ég tel að ráðamenn Sveitarfélagsins Ölfuss skuldi okkur íbúunum skýringar á þessari ritsmíð, þar sem sagt væri frá höfundi hennar og tilefni, og því lýst hver lét birta hana. Mér finnst ótækt að sameiginlegar eigur okkar séu misnotaðar með þessum hætti.

Höfundur er íbúi í Ölfusi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×