Skoðun

Betri bær fyrir börn og unglinga

Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar

Félagsmiðstöðvar og forvarnarstarf sveitarfélaga hefur á síðastliðnum áratugum lyft grettistaki í forvarnarmálum á Íslandi í samstarfi við skólana, foreldra og annað íþrótta- og æskulýðsstarf. Með markvissu samstarfi og átaki í félags- og forvarnarmálum hafa unglingadrykkja og tóbaksreykingar snarminnkað og þátttaka ungs fólks í jákvæðu tómstundastarfi aukist til muna. 

Þátttaka í öflugu tómstundastarfi er einn af lykil verndandi þáttum þegar kemur að farsæld barna og ungmenna ásamt því að tómstundastarf skapar öruggan vettvang fyrir börn og ungmenni til að takast á við krefjandi verkefni á eigin forsendum, fræðast, vaxa og þroskast.

Á Seltjarnarnesi er rekin öflug félagsmiðstöð og ungmennahús sem lenti í niðurskurðarhníf meirihluta Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi árið 2020 en þá var 40% af starfsgildum félagsmiðstöðvarinnar skorin út og staða æskulýðsfulltrúa lögð niður. Þessum niðurskurði mótmæltu íbúar og bæjarfulltrúar harðlega og bent var á þá hættu að niðurskurðurinn myndi bitna á farsæld barna og ungmenna á Seltjarnarnesi. 

Nú tveimur árum seinna hefur foreldrafélag grunnskóla Seltjarnarness, starfsfólk unglingadeildar grunnskólans og starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar sent inn áskorun til bæjarstjórnar um að endurráða eigi í þau stöðugildi sem skorin voru niður. Í áskorun foreldrafélagsins kemur fram að niðurskurðurinn hafi bitnað á faglegri forystu og stefnu í forvarnarmálum á Seltjarnarnesi og dregið hafi verið úr opnun félagsmiðstöðvarinnar ásamt getu starfsfólks til að sinna forvarnarmálum með sama hætti og áður. 

Einnig segir í áskoruninni að vísbendingar séu uppi um að vímuefnanotkun sé búin að aukast hjá unglingum á Nesinu.

Nýr meirihluti bæjarfulltrúa á Seltjarnarnesi

Þessu ákalli hefur nýr meirihluti bæjarfulltrúa svarað með tillögu sem samþykkt var á bæjarstjórnarfundi miðvikudaginn 27. apríl um að endurráða æskulýðsfulltrúa á Seltjarnarnesi og efla þannig aftur faglegt tómstundastarf á Nesinu.

Þennan nýja meirihluta skipa bæjarfulltrúar Samfylkingar, Neslista/Viðreisnar og Bjarni Torfi Álfþórsson sem sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum fyrr í vetur og er nú í framboði á lista Samfylkingar og óháðra. Þessi sami meirihluti hækkaði útsvarsprósentu bæjarbúa lítillega síðastliðið haust, þ.e. úr 13,7% í 14,09%. Sú hækkun var gerð til að stoppa hallarekstur bæjarsjóðs sem er um 1400 milljónir á síðastliðnum 4 árum og skapa svigrúm til þess að sækja fram í þjónustu við íbúa. 

Nýr meirihluti bæjarfulltrúa á Seltjarnarnesi hefur þannig með tveimur ákvörðunum náð jafnvægi á rekstur bæjarins, skapað svigrúm til þess að mæta þjónustukröfum íbúa og nýtt það svigrúm til að svara ákalli foreldra og fagfólks. 

Við erum stolt af þessum ákvörðunum og óskum eftir umboði íbúa til að starfa áfram svona eftir kosningar, með íbúum og fyrir íbúa við að skapa betri bæ fyrir börn og unglinga.

Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingar og óháðra á Seltjarnarnesi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×