Skoðun

Gleði­lega Álfa­há­tíð

Hilmar Kristensson skrifar

Kæru samherjar og vinir.

Í vikunni verður Álfasala SÁÁ í 34. skiptið, en frá upphafi hefur Álfasalan verið eitt mikilvægasta fjáröflunarverkefnið á vegum SÁÁ. Ég vil hvetja alla landsmenn til að kaupa Álfinn og styðja og styrkja þannig það mikilvæga starf sem fram fer á vegum SÁÁ.

Það er mér mikill heiður að hafa verið virkur þáttakandi í starfi SÁÁ i nær fjörutíu ár. Einnig er mér í fersku minni undirbúningur okkar að stofnun samtakanna árið 1977 í húsi Ölgerðarinnar við Frakkastíg.

Síðan þá hefur SÁÁ átt ákveðinn sess í huga mínum og hjarta. Sama ár tók ég að mér að breiða út boðskapinn um þetta nýja hjálpræði í baráttunni við Bakkus. Þræddi ég flesta bæi og híbýli manna í Árnes- og Rangárvallasýslum, fór einnig um Skaftafellssýslur og bar mönnum fagnaðarboðskapinn.

Á þessum tímum var voru engin SMS, tölvupóstar eða Facebook skilaboð til að flýta fyrir - ekki einu sinni faxtæki. Þá þurfti einfaldlega að skeiða yfir völlinn á „vélfákum“ renna í hlað og ganga í bæinn.

Í dag þekkjum við mörg hve hve mikið SÁÁ hefur gert fyrir okkur og hefur það verið mér hugleikið í gegnum tíðina. Snemma fór ég að hugsa um hvað ég gæti gert fyrir samtökin. Eftir að ég hafði upplifað endurreisn og fundið gleðina að nýju var efst í huga mér að endurgjalda „lífgjöfina“. Einhenti ég mér því í þjónustu í þágu SÁÁ og tók að mér margvísleg verkefni sem þurfti að leysa, svo sem fjölbreytta fjáröflun, Álfasölu, skemmtikvöld, sumarmót, forstöðumennsku áfangaheimila, starf á sviði útbreiðslu- og kynningarmála, umsjón með dansnámskeiðum, Þorrablótum og fjölmörgu öðru sem fyrir lá hverju sinni.

Á þessum langa tíma sem liðinn er hef ég notið þess að vinna með einstaklega mörgu góðu og heilsteyptu dugnaðarfólki í þágu SÁÁ, fólki sem hafði sömu þrá og ég að endurgjalda þessari góðu stofnun frelsi út úr dimmum dal.

Hugarfarið er breytt

Tíðarandinn í dag gagnvart alkóhólismanum er heldur betur annar en 1977. Mér er minnisstætt þegar ég var starfsmaður Kaupfélagsins á Hvolsvelli og tók að mér að hengja upp nokkrar auglýsingar um stofnfund SÁÁ.

Ég hafði ekki límt margar upp þegar kaupfélagsstjórinn komst á snoðir um það. Hann kallaði mig á teppið og sagði með þjósti: ERTU DRYKKJUSJÚKLINGUR EÐA HVAÐ??? Taktu þessa snepla niður strax og ef þú ert í þessum hópi þá er starfsferli þínum hér lokið!!

Á stundu sem þessari er gott að líta um öxl og hugsa til þess hve margir einstaklingar, afkomendur og fjölskyldur eiga SÁÁ líf sitt að launa. Einnig að hugsa með hlýhug og þakklæti til þeirra sem ruddu brautina til frelsis.

Í dag er ástæða til að gleðjast og fagna þeim mikla árangri sem hefur náðst og óska SÁÁ farsældar um ókomin ár. En höfum samt í huga að baráttan við fíknsjúkdóminn þarf áfram á öllum kröftum okkar að halda. Þess vegna skiptir Álfasalan jafn miklu máli og alltaf áður.

Höfundur er álfasölustjóri SÁÁ.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×