Skoðun

Þrisvar sneri ég við í tröppunum

Hilmar Kristensson skrifar

Í fyrsta skiptið komst ég upp hálfar tröppurnar en sneri þá við. Líka í annað skiptið.

„Nei andskotinn, ég get þetta ekki,“ hugsaði ég með mér, með hjartað í buxunum.

Í þriðja skiptið komst ég alla leið á stigapallinn, en sneri strax við og hljóp niður. Hitti þá á Þuríði Aradóttur vinkonu mína sem var líka á leiðinni upp. „Ég get þetta ekki,“ stundi ég. „Ekkert kjaftæði,“ sagði hún. „Þú getur þetta víst, komdu með mér.“ Og svo tók hún í höndina á mér og hreinlega dró mig upp.

Ég var mættur á dansnámskeið hjá SÁÁ. Edrú. Það erfiðasta sem ég hafði gert á ævinni. Bara hugsunin um að dansa edrú fékk mig til að rennsvitna. En ég lét vaða, þökk sé Þuríði. Og mætti aftur. Eftir þriðja skiptið leið mér allt í einu eins og skipt hafi verið um peru í hausnum á mér. Þetta var semsagt hægt, að vera edrú innan um fólk að dansa og skemmta sér. Kannski eins gott, eftir allar meðferðirnar.

Hvert er ég að fara með þessari upprifjun af dansnámskeiðinu örlagaríka árið 1985? Jú, að minna á hvað edrú félagslíf getur skipt miklu máli í batanum. Ef fólk sem fer í meðferð við fíknsjúkdómnum ætlar að ná árangri, þá segir það skilið við vímugjafatengdar skemmtanir og félagsstarf. En hvað kemur þá í staðinn?

Þörfin fyrir félagsskap fer ekkert

Maður er nefnilega manns gaman, ölvaður sem edrú. Frumherjarnir í SÁÁ áttuðu sig á þörfinni fyrir alkóhólista í bata að hittast og eiga góðar stundir saman við vímugjafalausar kringumstæður. Dansnámskeiðin urðu til, útihátíðirnar, skemmtikvöldin, árshátíðirnar, leiklistarnámskeið, fluguhnýtingarnámskeið, þorrablót, kvennakvöld, bingó, félagsvist, kótilettukvöld...

Þannig hefur þetta verið alla tíð. SÁÁ hefur haldið úti félagsstarfi sem hluta af bataferlinu. Í raun má segja að félagsstarfið geri SÁÁ að því sem samtökin eru. Þetta félagsstarf hefur skiljanlega þróast í samræmi við tíðarandann og almennan áhuga. Í þessum efnum skiptir fjáröflun samtakanna gríðarmiklu máli og að margra mati eru fjáraflanir á borð við Álfasöluna hápunktur félagsstarfsins með mörg hundruð þátttakendur.

Á fulla ferð eftir heimsfaraldur

Heimsfaraldurinn hafði mikil áhrif á félagsstarfið innan SÁÁ, líkt og annars staðar. En um leið og fór að slakna á sóttvarnaklónni, þá spýttum við í lófana. Óhætt er að segja að félagsstarfið blómstri sem aldrei fyrr og þörfin fyrir það er sú sama og alltaf áður. Fólk á öllum aldri tekur þátt í félagsstarfinu og það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hvað unga fólkið í SÁÁ er hugmyndaríkt og hvetjandi í þeim efnum. Nokkur úr þeim hópi eru byrjuð með metnaðarfullt hlaðvarp undir heitinu „Taka tvö“ þar sem þau láta gamminn geisa um edrúlífið. Þetta er stórskemmtilegt og fræðilegt hlaðvarp sem er að finna á öllum efnisveitum.

Danskennslan er á sínum stað, skákin, félagsvistin, fluguhnýtingarnar, briddsið og tónleikarnir. Það verða tónleikar með Bubba 20. maí, vorfagnaður28. maí, barnaskemmtun í Fjölskyldugarðinum, útihátíð á Skógum um verslunarmannahelgina og golfmót síðsumars. Svo má nefna að bakhjarlar SÁÁ hittast á tveggja vikna fresti. Með haustinu verður svo gefið enn betur í, enda vantar ekki hugmyndirnar.

Starfsemi SÁÁ er jafn mikilvæg og nauðsynleg og við stofnun fyrir 45 árum. Félagsstarfið er órjúfanlegur þáttur í því sem tekur við að lokinni meðferð.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×