Skoðun

Vilja Ís­lendingar að allar þjóðir heims byrji hval­veiðar?

Andri Snær Magnason skrifar

1. Hvalir eru tignarlegar skepnur, jafnvel stærstu og tignarlegustu skepnur sem jörðin hefur alið af sér. Hvalirnir hefðu átt að vera fyrir löngu teknir inn í þjóðarvitundina með lóunni, Herðubreið og Gullfossi. Að neita okkur um að sjá og skilja tign hvalanna hefur gert okkur fátækari, rétt eins og við værum fátækari ef við sæjum Herðubreið aðeins sem hentuga grjótnámu. Hvalveiðimenn hérlendis hafa ítrekað talað um hvali af óvirðingu, nú síðast látið eins og þeir séu hluti af loftslagsvandanum með því að menga á við 30 bíla. Veiðarnar eru ekki að dýpka skilning okkar á flóknu vistkerfi hafsins heldur þvert á móti, áróðurinn með hvalveiðum er farinn að gera okkur heimskari. Þráhyggja einstaklings sett fram sem þjóðarhagsmunir. Hvert fer kjötið, í hvaða samhengi? Sushi eða hundamatur? Við höfum ekki hugmynd.

2. Vantar okkur mat? Erum við svöng? Væru Bændasamtökin glöð ef 5000 tonn af ódýru hvalkjöti flæddi inn á markaðinn? Alveg örugglega ekki. Hefur hvalkjöt einhverja menningarlega þýðingu fyrir okkur í einhverju samhengi? Nei, ekki eins og í Færeyjum eða Grænlandi.

3. „Við“ ætlum að veiða langreyðar en viljum við í alvöru að þjóðir heims hefji veiðar á þeim? Við höfum ítrekað sent hagsmunaaðila á erlend þing til þess eins að vera með kjaft og dólgslæti. Viljum við að langreyðarnar verði hundeltar á öllum þeim þúsundum kílómetra sem þeir ferðast um árlega? Viljum við að alþjóðlegir markaðir opnist fyrir kjötið? Það myndi strax opna fyrir rányrkju og sjóræningjaveiðar og ef það ætti að skipta alþjóðlegum stofnum jafnt milli allra þjóða, hversu marga hvali mættum ,,við" veiða?

4. Þótt þú skjótir ekki hval þá er ekki þar með sagt að þú sért ekki að drepa hval. Hættan sem steðjar að hvölum á heimsvísu eru ekki þráhyggjuveiðar á Íslandi. Mesta hættan er hnattræn hlýnun, þrávirk efni og þungmálmar, ofveiði, súrnun sjávar, rusl í höfum og skipaumferð. Hagsmunir hvalanna og hagsmunir Íslendinga fara þannig saman. Heimurinn er að miklu leyti áhugalaus og ábyrgðarlaus hvað varðar framtíð hafsins en hvalir eru skepnur sem fanga athygli og áhuga fólks.

Við eigum að semja frið við hvalina og fá þá í lið með okkur í baráttu gegn því sem ógnar heimshöfunum.

Höfundur er rithöfundur.


Tengdar fréttir

Hvalasöngur

Íris Ásmundardóttir dansari fjallar um hvalveiðar Íslendinga.

Reikistjörnur

Sjón skrifar um hvalveiðar Íslendinga.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×