Skoðun

Sam­staða um tafar­laust vopna­hlé

Orri Páll Jóhannsson skrifar

Alþingi samþykkti í dag þingsályktun um afstöðu Íslands til átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs þar sem kallað er eftir vopnahléi af mannúðarástæðum án tafar á Gaza-svæðinu svo tryggja megi öryggi almennra borgara. Og það er vel. Ísland hefur verið í fararbroddi þeirra þjóða sem styðja Palestínubúa, við vorum fyrsta vestræna þjóðin til að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki árið 2011. Og nú er íslenska þjóðþingið meðal þeirra allra fyrstu í heiminum til þess að kalla eftir tafarlausu vopnahléi.

Ástandið á Gasa hefur oft verið skelfilegt en aldrei eins og núna og það gengur öllum djúpt inn að hjartarótum að horfa á fréttir, sjá og lesa vitnisburði þeirra sem eru í aðstæðunum þar sem gegndarlaust og hryllilegt ofbeldi á sér stað. Eitt ofbeldisverk réttlætir aldrei annað og þegar börn og aðrir saklausir borgarar lenda í víglínunni er afstaða með mannúð og gegn stríði eina afstaðan sem hægt er að taka. Eina.

Það hefur verið þyngra en tárum taki að fylgjast með fréttum af framgangi stríðsins í vanmætti sínum hér lengst norður í hafi. Íslensk stjórnvöld hafa gert vel með því að auka framlög til Palestínuflóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna og með ályktuninni sem við samþykktum í dag er ríkisstjórninni falið að beita sér fyrir viðbótarframlagi til mannúðaraðstoðar. Til að þau framlög nái að nýtast sem best er nauðsynlegt að komið verði á vopnahléi svo hægt sé að veita bráðnauðsynlega neyðarstoð strax.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur alltaf látið sig málefni Palestínu varða og hreyfingin var einmitt í ríkisstjórn þegar Íslendingar lýstu yfir stuðningi við sjálfstætt ríki Palestínu. Ísland hefur í sögulegu samhengi staðið með Palestínu og palestínskum borgurum. Það er því í fullu samræmi við almennan vilja íslensku þjóðarinnar, sem var lýst í afgreiðslu Alþingis árið 2011, að við stöndum þétt með íbúum Palestínu. Og við verðum að muna að þó athygli heimsins beinist að Gasa-svæðinu núna þá er staða íbúa Vesturbakkans ekki góð heldur. Það er því áfram verk að vinna við að gera hvað í okkar valdi stendur svo líf palestínsku þjóðarinnar geti orðið mannsæmandi, bæði þeim og okkur öllum sem byggjum þennan heim.

Ég hef sagt það áður að allt þref um texta og orðalag er hjóm í samhengi þess hryllilega ástands sem er fyrir botni Miðjarðarhafs. Því er ánægjulegt að það skyldi nást einróma samstaða milli allra flokka á Alþingi um þessa tillögu. Mér finnst það þinginu til sóma. Þetta eru skýr skilaboð frá Íslandi til umheimsins um það hver afstaða okkar er til átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs.

Höfundur er þingflokksformaður Vinstri grænna.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×