„Ég er ekkert að slæpast“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 14. nóvember 2023 07:01 Ragnheiður Jónsdóttir er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Vísir/Vilhelm „Ég er algjör fréttafíkill, ég hlusta á hvern einasta fréttatíma,“ segir hin 90 ára Ragnheiður Jónsdóttir, grafíker og kolamálari, sem stendur fyrir sýningunni Kosmos/Kaos á Listasafni Árnesinga. Ragnheiður er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.
Hér má sjá viðtalið við Ragnheiði í heild sinni: Ragnheiður hefur alla sína ævi verið fróðleiksfús og er óhrædd við að vera gagnrýnin í sinni listsköpun. Hún hefur sett upp fjöldann allan af sýningum og spannar sýningin Kosmos/Kaos verk frá hennar fyrstu einkasýningu árið 1976 til nýlegra verka. Aldur heimilsfólksins spannaði öld Ragnheiður bjó fyrstu æviárin sín í Reykjavík með móður sinni. „Við mamma vorum bara tvær og ég segi alltaf að við höfum verið farandssaumakonur. Það var lítið um kjólaverslanir þá í Reykjavík, það eru auðvitað gjörbreyttir tímar núna.“ Mamma Ragnheiðar fór þá með hana litla með sér í hús víða um bæinn þar sem hún saumaði á alla fjölskylduna fyrir hin ýmsu tilefni. „Svo flytjum við í sveitina þegar ég var fjögurra og hálfs árs. Við flytjum austur í Þykkvabæ og mamma giftist ungum bónda, Jóni Óskari Guðmundssyni, sem seinna varð kjörfaðir minn og var yndislegur.“ Ragnheiður Jónsdóttir segist alla tíð hafa verið þakklát fyrir það að hafa fengið alast upp hjá gömlu fólki. Vísir/Vilhelm Á heimilinu voru þrjú gamalmenni, sem öll voru mótandi aðilar í lífi Ragnheiðar. „Ég er svo þakklát fyrir það alla tíð að hafa alist upp með gömlu fólki. Það var enginn skyldur mér en ég fékk þarna heila fjölskyldu. Afi var 96 ára þegar hann dó og svo var yngsti fjölskyldumeðlimurinn, litli bróðir minn, á fyrsta ári. Þannig að þetta spannaði heila öld, aldurinn á fólkinu á heimilinu. Þetta finnst mér svo dýrmætt, að hafa upplifað að alast upp með þessu gamla fólki. Ég var hrikalega forvitin, það var ekkert að gerast og ég hafði engan til þess að leika við. Þannig að ég sat á borði við hliðina á rúminu hans afa. Ég átti fastan punkt þar, lærði og las upphátt fyrir afa.“ Segir margt slæmt gerast í gegnum pólitíkina Eitt af þekktustu verkum Ragnheiðar ber heitið Lýðforingjar og er frá árinu 1976. Uppeldi Ragnheiðar hafði mótandi áhrif á viðfangsefnið. „Önnur gamla konan á heimilinu las öll blöð fyrir afa því hann vildi fylgjast með. Hann var alltaf að hlusta á fréttir og ég var því alltaf að hlusta á fréttir, frá því ég var smákrakki. Það gerist svo fátt í sveitinni og maður notar hvert einasta tækifæri til þess að fá tilbreytingu. Þannig byrjar þetta og svo heldur þetta áfram, ég er algjör fréttafíkill. Ég hlusta á hvern einasta fréttatíma. Og þá fór ég náttúrulega að hugsa um þjóðmálin og svona leit þetta út 1976,“ segir Ragnheiður og bendir á verkið sitt Lýðforingjar. View this post on Instagram A post shared by Ragnheiður Jónsdóttir (@ragnheidur.studio) „Mér finnst svo margt slæmt gerast í gegnum pólitíkina. Svona baktjaldamakk og hrossakaup, mér finnst að fólk sem leggur pólitíkina fyrir sig megi gæta sín. Þetta skiptir náttúrulega öllu máli, að fólk sé mjög heiðarlegt og skyldurækið, þannig að það sé til góðs en ekki til ills. Að það sé ekki með bundið fyrir augun og brosi bara út í loftið.“ Áhyggjurnar týnist í streðinu Ragnheiður hefur sem áður segir verið öflug í listasenunni síðustu hálfa öld. „Ég vona að ég geti haldið áfram og ég er ekkert að slæpast. Því þetta er svo gefandi, þetta er svo skemmtilegt og gleðjandi. Það er líka svo krefjandi að vera að einbeita sér svo við það sem maður er að gera. Ef maður er að hafa áhyggjur af einhverju en er að vinna þá bara gleymir maður áhyggjunum. Þær týnast í þessu streði öllu.“ View this post on Instagram A post shared by Ragnheiður Jónsdóttir (@ragnheidur.studio)
Kúnst Myndlist Menning Sýningar á Íslandi Mest lesið Ilmaðu eins og frambjóðendur: Snorri Másson með sama ilm og Svandís Svavars Lífið Í skýjunum með sigurinn og stefnir á útgáfu í vor Lífið Fréttatían: Kosningar, verðbólga og körfubolti Lífið Auðir og ógildir með kosningakaffi Lífið „Án okkar verður ekki til miðjustjórn“ Lífið Ilmaðu eins og frambjóðendur Lífið „Ég hef ekki verið svona hot síðan ég var unghommi“ Lífið Minnist föður síns: „Til hamingju með daginn hvar sem þú ert“ Lífið Kosningavökur flokkanna: Pílustaðir, hótel og kirkjur Lífið Myndir: Svona var baksviðs á kappræðum leiðtoganna Lífið Fleiri fréttir Í beinni: Dagur íslenskrar tónlistar Reykjavík samdi til þriggja ára við Borgarleikhúsið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið Sjá meira