Skoðun

Er Euro­vision komið út í öfgar?

Valerio Gargiulo skrifar

Síðan Hera Björk var valin til þátttöku í Eurovision hefur hatursherferð gegn henni hafist, meira að segja eru myndir af söngkonunni við hlið palestínskra barna sem voru drepin á Gaza. Hér er fólk að slátra henni á samfélagsmiðlum og gera hana samseka ríkisstjórn Ísraels sem eru sökudólgarnir í þessu máli fyrir það að ætla að taka þátt í undankeppni Eurovision.

Ég velti því fyrir mér hvort þetta sé ekki öfgafullt ofbeldi gegn konu. Mikið er talað um að bera virðingu fyrir konum og baráttu þeirra gegn jafnræði, en í þessu tilviki leggja margar íslenskar konur (og menn) Heru Björk í einelti, saka hana um að hafa unnið söngvakeppni út frá pólitískum ástæðum og kenna henni um pólitík og stríðsáróður sem hún ber enga ábyrgð á. Mér finnst þetta einum of öfga- og ofbeldisfullt. Hefur einhver verið að hugsa um hvernig þessari konu líður að fá ásakanir sem hún ber enga ábyrgð á? Hvað hefur hún gert til þess að eiga þessa framkomu skilið, fyrir utan að vinna söngvakeppnina og ætla að taka þátt í Eurovision? Hefur hún verið með hatursáróður sem ég hef misst af?

Eins og ég hef oft haldið fram í færslum mínum áttar fólk sig ekki á því að það er mjög auðvelt að berjast fyrir réttindum eins hóps og á sama tíma beita ofbeldi gegn öðrum hópi sem þú kannski studdir áður (í þessu tilviki kona sem vinnur starf sitt sem söngkona).

Og svo, þegar Hera Björk býr sig undir að koma rödd sinni og list á svið Eurovision, ættum við að velta því fyrir okkur hversu auðvelt það er að falla í hræsni og hatur sem líkist félagslegu réttlæti. Enginn á að verða fyrir ofbeldi, sérstaklega ekki vegna eins fallegs og sameiningar eins og tónlist. Það er kominn tími til að hætta að ýta undir þessa hatursherferð og virða rétt hvers listamanns til að tjá sig frjálslega, án ótta við pólitískar hefndaraðgerðir eða munnlegt ofbeldi.

Þó svo að það það sé með ólikindum af hverju Ísrael fær að taka þátt í Eurovision þá er það ekki Heru Björk að kenna og hún á ekki að vera myrt á samfélagssmiðlum vegna þessa. Þetta heitir ekki að sína samstöðu, berjast fyrir friði eða virða náungann.

Höfundur er skáld, rithöfundur og þýðandi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×