Rafíþróttir

Dvergarnir voru of stór biti fyrir Coup de Brains að kyngja

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Enn er hart barist í báðum riðlum Litlu-Krafvéladeildarinnar í hinum flókna leik Dota2 en svo skemmtilega vill til að lið Alltof heimskra er efst í öðrum riðli.
Enn er hart barist í báðum riðlum Litlu-Krafvéladeildarinnar í hinum flókna leik Dota2 en svo skemmtilega vill til að lið Alltof heimskra er efst í öðrum riðli.

Lið Snorra & Dverganna og Coup de Brains tókust á í 5. um­ferð Litlu-Kraft­véla­deildarinnar á sunnu­daginn og voru úr­slitin í sam­ræmi við stöðu liðanna á töflunni.

Snorri & Dvergarnir, efsta liðið í 1. riðli Litlu-Kraftvéladeildarinnar í Dota 2, mætti því neðsta, Coup de Brains, í 5.umferð í gær og eins og ætla mátti reyndust dvergarnir og Snorri of stór biti að kyngja og unnu viðureignina 2-0.

Staða efstu liða í riðlinum er þá þannig að Snorri & Dvergarnir eru í 1. sæti með 8 stig eftir 10 leiki en á eftir koma Kuti með 5 stig úr 6 leikjum og Lína & Durtarnir með 5 stig eftir 8 leiki.

Staða liða í 1 riðli.

Alltof heimskir eru síðan ekki vitlausari en svo að þeir tróna á toppi 2. riðils með Hendakallana á bakinu en bæði lið eru með 7 stig úr 10 leikjum. TSR Akademían vermir síðan 3. sætið með 5 stig úr 6 leikjum.

Staðan í riðli 2.

Tengdar fréttir

Tæknin varð Breið­nefjum fjötur um fót í Dota2

Lið Kidda Karrí og Mím­klúbbsins Breið­nefs skildu jöfn, 1-1, í viður­eign sinni í 2. riðli fimmtu um­ferðar Litlu Kraft­­véla­­deildarinnar í Dota 2 á sunnu­daginn.






×