Skoðun

Það þarf meiri töffara í okkur

Davíð Már Sigurðsson skrifar

Við kennarar þurfum að fá okkur góðan slurk af hroka. Að tala um hvað við erum miklir naglar. Kennarastarfið er gífurlega töff starfsvettvangur. Þú þarft að vera með bein í nefinu til að endast. Við þurfum að koma því á dagskrá í almennri umræðu.

Að geta svarað með kjarki og hrakið ómálefnaleg rök, skítkast og skilað því til föðurhúsanna. Auðvitað þurfum við áfram að vera málefnaleg og fagleg. Við erum sérfræðingar og fræðimenn. Fagstétt með langa glæsta sögu. Starf sem mönnum stóð stuggur af. Það er ekki að ástæðulausu að rætt var um prestinn, sýslumanninn og kennarann sem toppana hér áður fyrr.

Þetta er okkar bolti til að halda á lofti. En við erum ekki fórnarlömb og við þurfum ekki að auglýsa hvað við erum góðar manneskjur til þess að heyja þessa baráttu. Hvað með BÖRNIN er að mínu mati þreytt tugga sem er alltaf kastað í báðar áttir. Sem var einmitt það fyrsta sem spyrill Ríkisútvarpsins reyndi að grilla formanninn okkar með þegar verkfallsaðgerðir voru upprunalega kynntar.

„En er það sanngjarnt?“

Það er að mínu mati barnaleg nálgun á erfitt mál. Ég spyr þá einfaldlega, hefði verið betra fyrir Ísland ef allir nemendur landsins hefðu misst úr skóla þvert á línuna. Svo ástandið væri jafn glatað fyrir alla. Ég er ekki viss um að það væri eitthvað betra. Er ekki betra að takmarka skaðann sem aðgerðir munu hafa frekar en að allir hafi það jafn skítt. Síðan má ekki gleyma því að þegar kennarar hafa farið í allsherjar verkfall hefur sú vegferð iðulega endað með lagasetningu. Sem er ekkert rosalega sanngjarnt, er það nokkuð?

Mig langar til að mynda að benda á eina létta vitleysu sem hefur verið hent fram í ljósi sanngyrnis röksemdafærslunnar. Veikindahlutfall kennara. Var sérstaklega sanngjarnt að slengja fram tölum frá 2020. Sennilega ekki í ljósi þess að öllum nema framlínufólki var boðið að vinna heima.

„Við erum öll í þessu saman.”

Það er enginn hvati til að hringja sig inn veikan þegar viðkomandi þarf ekki að yfirgefa húsið til að mæta í vinnuna. Mér fannst allavega meira töff að þurfa að mæta á staðinn. En það er bara ég. En hey, þetta var vel spilað viðskiptaráð. Fast skot sem málaði kennara upp sem lata vesalinga. Var það ekki annars meiningin? Við kennarar ættum að geta borið virðingu fyrir öflugri spilamennsku. Svo sjáum við hvað næsta lota ber í skauti sér.

Við erum töff, við tökum þetta á kassann.

Hvað með ykkur?

Höfundur er kennari.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×