Skoðun

Gerum betur – breytum þessu

Arnar Páll Guðmundsson skrifar

Núna eru Alþingiskosningar á næsta leiti og flokkarnir í óða önn að gera sig klára fyrir lokasprettinn. Frambjóðendur keppast við að ræða við kjósendur um stefnumál sín og hvað sé best fyrir Ísland. En hvaða málefni eru það sem skipta mestu? Hvernig viljum við hafa framtíðina?

Vextir og verðbólga er eitt af því sem þarf að ná tökum á til þess að bæta lífskjör almennings. En þá má spyrja hver sé hinn stóri orsakavaldur hárra vaxta og verðbólgu síðustu missera. Svarið við þeirri spurningu er ósköp einfalt, íslenska krónan. Krónan er eins og sakir standa að sliga íslensk heimili og kostar ríki og sveitarfélög tugi, ef ekki hundruð milljarða á ári. Það þjónar hagsmunum og lífsgæðum okkar allra ef við gætum nýtt þessar fjárhæðir í önnur og mikilvægari verkefni, bæði í þágu fyrirtækja og heimila og styrkt um leið grunnstoðir samfélagsins.

Heilbrigðismál, sérstaklega geðheilbrigðismál, eru eitt af því sem þarf að gera gangskör í að styrkja. Til að mynda þarf að bæta aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og taka á biðlistum sem eru orðnir allt of langir og virðast því miður lengjast ár frá ári. Niðurgreiðsla á sálfræðiþjónustu er eitt þeirra mála sem lagt var fram og samþykkt einróma við þinglok vorið 2020. Þingheimur var sammála um þetta mikilvæga mál, en hvað svo? Í stað þess að láta kné fylgja kviði, var málinu ýtt til hliðar og því liggur það nú ofan í skúffu, ófjármagnað. Þessu þurfum við að breyta. Það er lífsnauðsynlegt.

Frelsi og frjálslyndi eiga undir högg að sækja og sáum við það einna helst í nýafstöðnum forsetakosningum í Bandaríkjunum. Við eigum að tala fyrir frelsi og samkeppni, þannig sköpum við tækifæri fyrir komandi kynslóðir og ýtum undir nýsköpun.

Þetta eru einungis nokkur af þeim mikilvægu málum sem fráfarandi ríkisstjórn hefur ekki sinnt nægilega vel síðustu sjö árin. Fráfarandi ríkisstjórn má auk þess lýsa sem ferðafélögum á afleitri vegferð eða fararstjórn þar sem hópurinn villist af leið, enda ferðalýsing ómarkviss og tilviljanakennd.

Gerum betur – breytum þessu

Höfundur er viðskiptafræðingur og kjósandi Viðreisnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×