Lífið

Alma Möller og Inga Sæ­land í mesta stuðinu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stemningskonurnar og pólítíkusarnir Alma Möller, Samfylkingunni, og Inga Sæland, Flokki fólksins, voru í rosalegu stuði á kosningavöku á laugardag!
Stemningskonurnar og pólítíkusarnir Alma Möller, Samfylkingunni, og Inga Sæland, Flokki fólksins, voru í rosalegu stuði á kosningavöku á laugardag! SAMSETT

Reykjavíkurborg iðaði af tilhlökkun, kvíða, eftirvæntingu, gleði og öllum tilfinningaskalanum á kosningavökunni síðastliðið laugardagskvöld. Ljósmyndarar Vísis kíktu í nokkur kosningapartý og náðu ósvikinni stemningu á filmu.

Alma Möller, landlæknir og verðandi þingkona, var stórglæsileg í Kolaportinu á kosningavöku Samfylkingarinnar. Hún var í skýjunum með velgengni flokksins og náðust ótrúleg augnablik af henni fagna ákaft. 

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er sömuleiðis ósvikin stemningskona og var að sjálfsögðu í sjöunda himni yfir kosningunum. 

Hér má sjá vel valdar myndir frá nokkrum kosningateitum: 

Ósvikin gleði. Alma Möller, Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Jóhann Páll Jóhannsson.Vísir/Anton Brink
Guðlaugur Þór lagar bindi Bjarna í kosningapartýi Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Vilhelm
Það var stappað á kosningavöku Viðreisnar í Gyllta salnum á Hótel Borg.Anton Brink/Vísir
Skvísur á kosningavöku Viðreisnar.Vísir/Anton Brink
Kosningavaka Framsóknaflokksins var haldin á staðnum Oche í Kringlunni. Einar Bárðason fylgdist einbeittur með tölum kvöldsins.Vísir/Anton Brink
Gleðin var við völd í kosningavöku Flokks Fólksins.Vísir/Vilhelm
Magnea Gná Jóhannsdóttir, Framsókn, fremst til hægri rokkaði græna litinn á kosningavöku flokksins í Kringlunni.Vísir/Anton Brink
Samfylkingin í stuði.Vísir/Anton Brink
Yrsa Ósk og Saga voru í góðum gír í Sjálfstæðissalnum.Vísir/Vilhelm
Diljá Mist Einarsdóttir í góðum félagsskap.Vísir/Vilhelm
Lilja D. Alfreðsdóttir brosti í gegnum krefjandi kosningakvöld.Vísir/Anton Brink
Inga Sæland brosti sínu allra breiðasta.Vísir/Vilhelm
Framsóknarskvísur í grænu.Vísir/Anton Brink
Alma Möller í geggjuðum gír ásamt Kristrúnu Frostadóttur formanni Samfylkingarinnar og Jóhanni Páli Jóhannssyni.Vísir/Anton Brink
Ein í bláu og önnur skálaði í Sommersby hjá Sjálfstæðisflokknum.Vísir/Vilhelm
Sjálfstæðisfólk rokkaði blátt.Vísir/Vilhelm
Alma Möller og Jónas Már Torfason í stuði!Vísir/Anton Brink
Sjálfstæðismennirnir Áslaug Arna, Bjarni og Guðlaugur í gír á gamla Nasa.Vísir/Vilhelm
Kristrún Frosta glitraði í Kolaportinu.Vísir/Anton Brink
Flokkur fólksins í MEGA stuði!Vísir/Vilhelm
Áslaug Arna í góðum félagsskap.Vísir/Vilhelm
Alma Möller og Kristrún Frosta í faðmlögum.Vísir/Anton Brink
Þessar voru í stuði á kosningavaka Viðreisnar í Gyllta salnum á Hótel Borg.Vísir/Anton Brink
Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur á kosningavöku Framsóknar.Vísir/Anton Brink
Viðreisnarmenn fylgjast grant með nýjustu tölum.Vísir/Anton Brink
Egill Trausti og Marteinn hjá Sjálfstæðisflokknum í partýi.Vísir/Vilhelm
Kristrún Frostadóttir einbeitt.Vísir/Anton Brink
Samfylkingin hélt kosningavöku fyrir stuðningsfólk í Kolaportinu. Ragna Sigurðardóttir var í skýjunum og flaug inn á þing. Vísir/Anton Brink
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Viðreisn, brosti breitt.Vísir/Anton Brink
Glæsilegt Samfylkingarfólk í stuði.Vísir/Anton Brink
Tyggjótattú fyrir Samfó!Vísir/Anton Brink
Marinella Arnórsdóttir, Sunna Mjöll Sverrisdóttir og Valgerður Bjarnadóttir voru í gír á kosningavöku Samfylkingarinnar og studdu sína konu Rögnu Sigurðardóttur.Vísir/Anton Brink





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.