Innlent

Grunaður morðingi á­fram bak við lás og slá

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eldri hjón fundust látin á heimili sínu í Neskaupstað þann 22. ágúst síðastliðinn. 
Eldri hjón fundust látin á heimili sínu í Neskaupstað þann 22. ágúst síðastliðinn.  Vísir/Vilhelm

Norðfirðingur á fimmtugsaldri sem grunaður er um að hafa myrt hjón á áttræðisaldri á heimili þeirra í Neskaupstað í ágúst hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 20. desember. Ganga í málinu er beðið en rannsókn hefur teygt sig vel yfir tólf vikna viðmið um hámarkslengd í gæsluvarðhaldi án útgefinnar ákæru.

Það var fimmtudaginn 22. ágúst sem Lögreglan á Austurlandi fékk útkall vegna hjóna sem fundust látin í heimahúsi í bænum. Hinn grunaði í málinu, Norðfirðingur á fimmtugsaldri, ók bíl hjónanna suður til Reykjavíkur. Frá því að lögreglu barst tilkynningin um málið leið ein og hálf klukkustund þar til hinn grunaði var handtekinn við Snorrabraut. Þar skipti máli að lögreglan gat skoðað ferðir mannsins í eftirlitsmyndavélum á hringveginum.

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í síðustu viku á kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald til 20. desember. Kristján Ólafur Guðnason yfirlögregluþjónn fyrir austan segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu að héraðsdómur hafi fallist á kröfu lögreglu með vísun til almannahagsmuna enda leiki sterkur grunur á að maðurinn hafi framið afbrot sem geti varðað tíu ára fangelsi hið minnsta.

Kristján Ólafur segir gagna í málinu enn beðið en vonir standi til að þau berist í vikunni. Málið verði þá sent embætti héraðssaksóknara til afgreiðslu.


Lítið hefur komið fram í fjölmiðlum um aðdraganda árásarinnar. Veistu meira? Sendu okkur línu á [email protected].




Fleiri fréttir

Sjá meira


×