Innlent

„Ég er bara bjart­sýnn“

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Ragnar Þór Ingólfsson verðandi þingmaður Flokks fólksins er bjartsýnn á komandi stjórnarmyndunarviðræður. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar segir þær verða áskorun en stjórnmál gangi út á að gera málamiðlanir.
Ragnar Þór Ingólfsson verðandi þingmaður Flokks fólksins er bjartsýnn á komandi stjórnarmyndunarviðræður. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar segir þær verða áskorun en stjórnmál gangi út á að gera málamiðlanir. Vísir

Þingmaður Viðreisnar segir mikilvægt að ný ríkisstjórn vinni samhent að verkefnum framundan. Komandi stjórnarmyndunarviðræður verði áskorun og flokkurinn muni ekki fara gegn eigin DNA. Verðandi þingmaður Flokks fólksins segir að flokkarnir eigi meira sameiginlegt en ólíkt og er bjartsýnn á að það náist ásættanleg lausn.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar segir ekki einfalt verkefni fram undan að mynda nýja ríkisstjórn með Samfylkingu og Flokki fólksins.

Fara ekki gegn eigin DNA

„Þetta eru flókin úrslit kosninga á marga kanta en verkefnið núna er að mynda ríkisstjórn. Það er auðvitað stóra viðfangsefnið núna og lærdómurinn af síðustu sjö árum árum að ríksstjórnin hver sem hún verður sé sameinuð og sterk að vinna í þágu þjóðarinnar,“ segir Þorbjörg.

Samkvæmt stefnumálum flokkanna þriggja sem nú eru í stjórnarmyndunarviðræðum ber mest á milli  Flokks fólksins og Viðreisnar. Þorbjörg segir að það verði áskorun að ná fram sameiginlegri niðurstöðu. 

„Það blasir við að það er  töluverð áskorun að ná saman. Það er verkefnið að nálgast það. Við vorum alveg skýr í þessum kosningum. Stjórnmál eru list hins mögulega og fela alltaf í sér málamiðlanir en það er atriði í þessu að fara ekki gegn eigin DNA. Við erum t.d. ekki flokkur sem stöndum fyrir skattahækkanir. Við viljum taka utan um heimilin og lítil og meðalstór fyrirtæki,“ segir hún.

Ragnar bjartsýnn

Ragnar Þór Ingólfsson verðandi þingmaður Flokks fólksins segist treysta formanni flokksins í komandi stjórnarmyndunarviðræðum til að ná fram góðri lausn.

„Ég treysti formanninum til að meta það hversu langt þarf að ganga til að ná saman og gera málamiðlanir,“ segir hann. 

Hann segir að flokkarnir eigi meira sameiginlegt en ekki. 

„Ég hef fulla trú á því að þessir flokkar nái saman ef það er vilji til þess. Ég sé miklu fleiri snertifleti á samstarfi heldur en að það beri eitthvað á milli. Ég þekki það bara úr starfi mínu í kjarasamningum að það starf snýst að miklu leyti um málamiðlanir. Ég er bara bjartsýnn,“ segir Ragnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×