Domino's hækkar verð á þriðjudagstilboðinu Árni Sæberg skrifar 3. desember 2024 14:55 Magnús Hafliðason, forstjóri Dominos. Aðsend Verð á þriðjudagstilboði á Domino's hefur hækkað um 200 krónur og er nú 1.500 krónur. Það stóð í stað í rúman áratug til ársins 2021 en hefur nú hækkað um helming á þremur árum.
Magnús Hafliðason, forstjóri Domino's á Íslandi staðfestir í samtali við Vísi að verðið hafi verið hækkað í dag. Það var fyrst hækkað í október árið 2021 eftir að hafa verið sléttar eitt þúsund krónur í rúman áratug. Þá var það hækkað um hundrað krónur, svo um aðrar hundrað krónur í janúar í fyrra og upp í 1.300 krónur í desember sama ár. Nú er stökkið 200 krónur upp í 1.500 krónur, sem gerir hækkunina á þremur árum fimmtíu prósent. Ætti í raun að vera talsvert dýrara Magnús segir að ástæðan fyrir verðhækkuninni nú sé uppsöfnuð staða. Þriðjudagstilboðið hafi í gegnum árin ekki fylgt verðlagi en undanfarið hafi hallað mjög á kostnaðarhliðina. Tilboðið ætti að standa í 1.800 krónum í dag miðað við verðlagsþróun. „Þannig að það hefur í raun og veru aldrei verið ódýrara. En það er eðlilegt að fólk horfi í fasta krónutölu, við erum vön því að fá viðbrögð og það er eðlilegt. Þrátt fyrir að fólk skynji að verðbólgan hafi eitthvað hjaðnað milli ára núna, þá höfum við fengið á síðustu tólf mánuðum, og vitum að fram undan eru, talsverðar hækkanir á kostnaði. Bæði í launamálum tengt kjarasamningum en ekki síður frá okkar birgjum, sem dæmi hækkaði ostur núna frá MS 1. desember, sem vegur þungt í okkar rekstri.“ Fleira hækkar í verði Þá segir Magnús að fleira á verðskrá Domino's hafi verið hækkað í dag. Hækkanir birtist helst í allra ódýrustu tilboðunum, þriðjudagstilboði og pitsu með tveimur áleggstegundum til að mynda. Pitsur á matseðli og gosdrykkir standi í stað. Vegin meðaltalshækkun sé rétt um þrjú prósent. Engin ákvörðun hafi verið tekin um verð í svokallaðri megaviku, vinsælustu tilboðsviku Domino's. Í megaviku kostar stór pitsa á matseðli 1.890 krónur en kostaði lengi vel 1.590 krónur. Hækkun á verðinu í megaviku hefur hingað til fylgt hækkun þriðjudagstilboðs ágætlega. Hvetur fólk til þess að gera verðsamanburð Magnús segir að lokum að þriðjudagstilboð sé eftir sem áður einhver besti díllinn í bænum. „Ef fólk er að hugsa um peninginn þá er margt vitlausara en að fá sé pitsu á góðu verði í kvöldmatinn. Við hvetjum fólk til að gera verðsamanburð. Því miður þá er þetta umhverfið sem við búum við, það hefur allt hækkað, matvaran hefur hækkað og það finna þetta allir. Við reynum eftir fremsta megni að halda verði niðri en það kemur að þeim tímapunkti að við verðum að hreyfa okkur.“
Verðlag Veitingastaðir Matur Tengdar fréttir Þetta kostar skyndibiti á Íslandi Íslendingar elska fátt meira en góðan skyndibita. En skyndibiti getur verið ansi dýr hér á klakanum. 15. september 2024 15:01 Verðhækkanir hjá Domino's Verðhækkanir tóku gildi hjá flatbökurisanum Domino‘s um síðustu mánaðamót. Forstjórinn segir að um sé að ræða viðbrögð við ýmsum hækkunum á hráefnisverði og mikið hafi verið lagt upp úr því að halda verðbreytingum í hófi. 3. desember 2021 16:15 Domino's hækkar aftur verð á þriðjudagstilboði sínu Domino's á Íslandi hefur hækkað verð á þriðjudagstilboði sínu úr 1.100 krónum í 1.200 krónur. Rúmt ár er síðan fyrirtækið hækkaði verð á tilboðinu úr þúsund krónum í 1.100 eftir að verðið hafði þá haldist óbreytt í ellefu ár. 3. janúar 2023 14:56 Þriðjudagstilboðið heldur áfram að hækka í verði Þriðjudagstilboð Domino's á Íslandi hefur hækkað í verði úr 1200 krónum upp í 1300 krónum. Um er að ræða þriðju verðhækkunina á tilboðinu frá árinu 2021, sem áður hafði kostað þúsund krónur í ellefu ár. Síðasta verðhækkun var í janúar á þessu ári. 5. desember 2023 11:18 Mest lesið Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Viðskipti erlent Lækka það sem fæst hjá öðrum en hækka hitt Neytendur Hátt raunvaxtastig samhliða hægari vexti gæti skapað áskoranir Viðskipti innlent Mátti ekki taka bjór úr hillum eftir allt saman Viðskipti innlent „Kemur ekki til greina“ að lækka eiginfjárkröfur Viðskipti innlent Tugmilljónakröfur í tómt þrotabú Viljans Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Halda jólin frítt með inneign í appinu Samstarf Domino's hækkar verð á þriðjudagstilboðinu Neytendur Tveimur verslunum Krambúðarinnar lokað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mátti ekki taka bjór úr hillum eftir allt saman Tugmilljónakröfur í tómt þrotabú Viljans „Kemur ekki til greina“ að lækka eiginfjárkröfur Atvinnuleysi dróst saman milli mánaða Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Hátt raunvaxtastig samhliða hægari vexti gæti skapað áskoranir Afgangur á viðskiptajöfnuði tæplega helmingi minni milli ára Níu teymi kynntu verkefni sín í Startup Tourism 2024 Leggja meiri áherslu á Prís og segja upp starfsmönnum Fjárfestingararmur Samherja bætir við sig í Högum Gunnars loksins selt Tveimur verslunum Krambúðarinnar lokað 75 sagt upp í þremur hópuppsögnum Kristjana nýr framkvæmdastjóri hjá Sýn Uppsagnir hjá þjónustumiðstöð Íslenskrar erfðagreiningar Tryggja tólf milljarða króna fjármögnun Hafa samið við Fossvélar um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu „Við megum ekki gleyma að lifa og njóta sko“ Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Tóku fyrstu skóflustunguna að einu stærsta vinnsluhúsi landsins Steyptu fyrsta gullmolann Verðbólgan komin undir fimm prósent Gengið frá kaupum Haga á færeyska verslanarisanum Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Helena til Íslandssjóða Sjá meira
Þetta kostar skyndibiti á Íslandi Íslendingar elska fátt meira en góðan skyndibita. En skyndibiti getur verið ansi dýr hér á klakanum. 15. september 2024 15:01
Verðhækkanir hjá Domino's Verðhækkanir tóku gildi hjá flatbökurisanum Domino‘s um síðustu mánaðamót. Forstjórinn segir að um sé að ræða viðbrögð við ýmsum hækkunum á hráefnisverði og mikið hafi verið lagt upp úr því að halda verðbreytingum í hófi. 3. desember 2021 16:15
Domino's hækkar aftur verð á þriðjudagstilboði sínu Domino's á Íslandi hefur hækkað verð á þriðjudagstilboði sínu úr 1.100 krónum í 1.200 krónur. Rúmt ár er síðan fyrirtækið hækkaði verð á tilboðinu úr þúsund krónum í 1.100 eftir að verðið hafði þá haldist óbreytt í ellefu ár. 3. janúar 2023 14:56
Þriðjudagstilboðið heldur áfram að hækka í verði Þriðjudagstilboð Domino's á Íslandi hefur hækkað í verði úr 1200 krónum upp í 1300 krónum. Um er að ræða þriðju verðhækkunina á tilboðinu frá árinu 2021, sem áður hafði kostað þúsund krónur í ellefu ár. Síðasta verðhækkun var í janúar á þessu ári. 5. desember 2023 11:18