Bein útsending frá gosstöðvum Eldgos hófst í Sundhnúksgígaröðinni klukkan sex í morgun. Hér að neðan má sjá vefmyndavélar Vísis frá gosstöðvunum. Innlent 8. febrúar 2024 10:27
Hraun rennur yfir Grindavíkurveg Hraun úr eldgosinu sem hófst í morgun hefur náð Grindavíkurvegi. Það er komið yfir veginn. Horfa má á hraunrennslið í beinni úr vefmyndavél Vísis neðst í fréttinni. Innlent 8. febrúar 2024 10:23
„Við erum bara eins og ein stór fjölskylda“ Sólný Pálsdóttir, kennari og ljósmyndari frá Grindavík, var við Reykjanesbraut í morgun til að sjá eldgosið. Með henni í för var fjórtán ára sonur hennar, Fjölnir Sveinsson. Innlent 8. febrúar 2024 10:09
Ekki tekið ákvörðun um að loka varnargarðinum Viðbragðsaðilar á vettvangi gossins hyggjast ekki loka varnargarðinum við Grindavíkurveg að svo stöddu. Skarð er á varnargörðunum við Svartsengi og verður unnið í því að minnka það í dag. Innlent 8. febrúar 2024 09:43
„Þetta er upplifun lífsins!“ Ferðamenn sem voru staddir á hóteli Bláa lónsins í morgun þegar það var rýmt vegna yfirvofandi eldgoss, voru himinlifandi yfir upplifuninni. Einhverjir vöknuðu við jarðskjálfta og óskuðu þess heitast að gos væri að hefjast. Innlent 8. febrúar 2024 09:37
Mögulegt að hraunið nái Grindavíkurvegi um hádegisbil Fréttastofu hafa borist nokkrar ábendingar frá áhugamönnum um að hraun gæti náð Grindavíkurvegi um hádegisbil og Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna, segir það mögulegt. Innlent 8. febrúar 2024 09:33
Engir innviðir í hættu eins og stendur Víðir Reynisson sviðsstjóri hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra segir enga innviði í hættu eins og stendur. Hraunstraumurinn renni þó í áttina að Grindavíkurvegi en unnið er að því að fylla skarð í varnargarða við Grindavíkurveg. Innlent 8. febrúar 2024 09:29
Gjall að finnast í Grindavík Vart hefur orðið við gjall í Grindavík, eða gjósku úr hrauninu frá gosinu sem hófst í morgun. Ólíklegt er talið að hraun renni til suðurs í átt að Grindavík eins og staðan er núna. Innlent 8. febrúar 2024 09:23
„Alltaf jafn ónotalegt að sjá þetta“ „Þetta er alltaf jafn ónotalegt að sjá þetta. Þetta virðist vera komið til að vera. Er núna einu sinni í mánuði,“ segir Páll Valur Björnsson íbúi í Grindavík um eldgosið sem hófst í morgun á Sundknúksgígaröðinni. Sprungan virðist ná frá Sundhnúk í suðri til austurenda Stóra-Skógarfells og hraun rennur til vesturs. Innlent 8. febrúar 2024 08:19
Gera megi ráð fyrir að gosið hegði sér svipað og síðustu „Þetta leit út mjög svipað og eldgosið sem hófst 18. desember. Sprungan er ögn styttri en þá, hún er um þrír kílómetrar og hraunflæðið er mjög svipað og 18. desember. Aðdragandinn að þessu gosi var mjög skammur og það rennur til austurs og vesturs frá gossprungunni. Sennilega mun það renna norður með Stóra-Skógafelli,“ segir Björn Oddsson jarðeðlisfræðingur hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra í samtali við fréttastofu. Innlent 8. febrúar 2024 08:05
Sjáðu þegar sprungan opnaðist Gos hófst norðan Sýlingarfells á Reykjanesskaga klukkan 6:02 í morgun. Í vefmyndavél á vegum Vísis sést þegar sprungan opnaðist. Innlent 8. febrúar 2024 08:02
Staðsetning gossins ekki jafn ógnvekjandi og síðast Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs í Grindavík, frétti af eldgosinu í morgun frá syni sínum sem vinnur á Keflavíkurflugvelli. Innlent 8. febrúar 2024 07:51
Viðbragðslúðrar ómuðu við Svartsengi „Við vitum að eldgosið hófst þarna um sex leytið og við vitum að það er á svipuðum stað og eldgosið sem hófst 18. desember og við vitum að þetta er alveg bara, við þekkjum þetta,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri Almannavarna í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 8. febrúar 2024 07:49
Liggur frá Sundhnúk í suðri til austurenda Stóra-Skógfells Samkvæmt fyrstu fréttum úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar er eldgosið á sömu slóðum og gaus 18. desember síðastliðinn. Innlent 8. febrúar 2024 07:14
Gosið að lengjast í norðurátt Böðvar Sveinsson náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, segir að aðdragandi þessa goss hafi verið mjög svipaður og í síðustu tvö skipti. Innlent 8. febrúar 2024 06:43
Búið að rýma Bláa lónið Öll athafnasvæði Bláa lónsins í Svartsengi hafa verið rýmd vegna skjálfta sem mældust við Sundhnjúkagígaröðina í aðdraganda eldgossins sem hófst um klukkan 6 í morgun. Innlent 8. febrúar 2024 06:42
Vaktin: Eldgos hafið við Sundhnúksgíga Eldgos hófst klukkan sex í morgun í Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga. Neyðarstigi hefur verið lýst yfir vegna heitavatnsskorts á Suðurnesjum. Hraun hefur flætt yfir Grindavíkurveg, nærri afleggjaranum að Bláa lóninu, og þá hefur hraun einnig flætt yfir heitavatnslögn. Innlent 8. febrúar 2024 06:11
Ákveðin svæði mun verr farin en önnur Undanfarnar þrjár vikur hefur verið unnið að því að skoða sprungur og holrými í Grindavík. Innlent 7. febrúar 2024 23:36
„Þá er þetta bara búið hjá okkur“ Uppsagnir fyrirtækja í Grindavík eru áhyggjuefni að mati bæjarbúa sem segja lítið eftir af bænum ef fyrirtækin fara. Starfsfólk nokkurra fyrirtækja vann að verðmætabjörgun í bænum í dag en hjá sumum þeirra er tjónið þegar orðið gífurlegt. Innlent 7. febrúar 2024 21:09
Heiðar Örn svarar Úlfari fullum hálsi Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri Ríkisútvarpsins gengst við frekju, ef það að kvarta undan skertu aðgengi megi túlkast sem svo. Innlent 7. febrúar 2024 17:50
Fréttateymi RÚV lét sig hverfa í Grindavík Fulltrúar fréttastofu RÚV í skipulagðri ferð til Grindavíkur í dag létu sig hverfa úr hópnum. Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum staðfestir þetta og segir að starfsmenn á vegum RÚV hafi ekki farið að tilmælum öryggisstjóra í Grindavík. Innlent 7. febrúar 2024 16:32
Flutningar Grindvíkinga hafi lítil áhrif á fasteignamarkaðinn í borginni Seðlabankastjóri telur að brottflutningur fólks frá Grindavík vegna jarðhræringa muni ekki hafa mikil áhrif á fasteignamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu. Áhrifin verði mögulega bundin við Reykjanes og nágrenni. „Það kæmi ekki á óvart ef íbúar vilja búa þar nálægt. Ég held að áhrifin verði aðallega þar í kring.“ Innherji 7. febrúar 2024 12:03
130 starfsmenn Vísis falla af launaskrá Í dag fengu 130 starfsmenn Vísis bréf þar sem þeim var tjáð að þeir yrðu teknir af launaskrá fyrirtækisins og fari á úrræði ríkisins. Ástæðan séu náttúruhamfarirnar í Grindavík, þar sem fyrirtækið hefur verið starfrækt. Viðskipti innlent 6. febrúar 2024 19:36
Uppgötvuðu risastóra sprungu undir gervigrasinu Risavaxin sprunga fannst í dag undir íþróttahúsinu Hópinu í Grindavík. Legið hafði fyrir að húsnæðið hafði orðið fyrir miklum skemmdum, en sprungur liggja upp eftir byggingunni og sigdalur er þar í kring. Innlent 6. febrúar 2024 17:42
Svipuð merki og fyrir síðustu tvö gos Benedikt G. Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofunni, segir að miklar líkur séu taldar á þriðja eldgosinu á Reykjanesi á nokkurra mánaða tímabili. Staðan sé svipuð og fyrir síðastu gos. Innlent 5. febrúar 2024 20:43
Brennisteinslykt í tómlegri Grindavík Verðmætabjörgun hélt áfram í Grindavík í dag. Fjölmiðlar fóru inn í bæinn í fyrsta sinn í þrjár vikur og fengu að virða fyrir sér skemmdirnar og nýja hraunið. Innlent 5. febrúar 2024 19:11
Áfram kvikusöfnun undir Svartsengi Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi, þó hægt hafi aðeins á landrisi síðustu daga. Svipað ferli er sagt hafa átt sér stað fyrir kvikuhlaupin og eldgosin sem urðu á svæðinu í janúar og í desember. Innlent 5. febrúar 2024 16:21
Stefnir íslenska ríkinu vegna takmarkana á aðgengi í Grindavík Forstjóri og eigandi fiskvinnslufyrirtækisins Einhamars í Grindavík hefur höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna banns við viðveru og starfsemi í Grindavík. Innlent 5. febrúar 2024 16:09
Ætla að spila golf í Grindavík í sumar Grindavík er golfbær. Húsatólftavöllur er heimavöllur Golfklúbbs Grindavíkur og þar stefna menn á að spila hvað sem líður jarðhræringum og eldgosum. Innlent 5. febrúar 2024 16:05
Mögulegt að smærri viðburður valdi gosi Verðmætabjörgun í Grindavík heldur áfram í dag. Svipað mynstur er á jarðhræringum á svæðinu og fyrir síðasta gos en mögulegt er að minni atburð þurfi en áður til að koma gosi af stað vegna skamms tíma frá síðasta gosi. Innlent 5. febrúar 2024 12:55