Hraunslettur í gígnum á ný og óróinn rýkur upp Eldgosið í Fagradalsfjalli tók sig upp að nýju í nótt eftir að gosvirkni hafði legið að mestu niðri í fjóra sólarhringa. Eldbjarmi sást í gígnum í kringum miðnætti og fór ekkert á milli mála að þar var opinn jarðeldur með kraumandi kviku. Innlent 10. júlí 2021 03:11
Eldgosið í Fagradalsfjalli orðið stærra en meðalgos á svæðinu Vísbendingar eru um að það hægi á landssigi við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir að þær breytingar sem nú sjáist á eldgosinu gætu verið byrjunin á endalokunum. Engu sé þó hægt að slá föstu um goslok. Innlent 8. júlí 2021 21:21
Rauður bjarmi sést á ný í gígnum eftir tveggja sólarhringa goshlé Eftir tveggja sólarhringa goshlé hafa aftur sést merki um að opnast hafi fyrir glóandi kviku í gígnum í Fagradalsfjalli. Laust eftir miðnætti mátti á vefmyndavél Vísis greinilega sjá rauðleitan bjarma í gígskálinni, þótt ekki væri farið að sjást í hraunslettur. Innlent 8. júlí 2021 00:54
Bogi afhenti Boga fyrsta Verndarvænginn Icelandair Group og Slysavarnafélagið Landsbjörg skrifuðu í gær undir áframhaldandi samstarfssamning til næstu fimm ára en félagið hefur frá árinu 2014 verið einn af aðalstyrktaraðilum Landsbjargar. Samningurinn var undirritaður við einn vinsælasta ferðamannastað landsins um þessar mundir, gosstöðvarnar í Geldingadölum. Innlent 7. júlí 2021 13:49
Hraunflæðið séð úr geimnum: Eldgosið í Fagradalsfjalli í forgrunni hjá BBC Blaðamaður Breska ríkisútvarpsins (BBC) birti í morgun grein á vef miðilsins þar sem fjallað er um gervihnetti, gervihnattamyndir og sérstaklega ratsjárgervihnetti sem notaðir eru til að vakta hreyfingar jarðarinnar, jökla og annarra jarðfræðilegra fyrirbæra. Lífið 7. júlí 2021 13:00
Búast ekki við sjáanlegum jarðeldi á næstunni Lengsta goshlé eldgossins við Fagradalsfjall, alls um þrjátíu og fjórar klukkustundir, stendur enn yfir og ekki er útlit fyrir að jarðeldur sjáist aftur í bráð, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Innlent 7. júlí 2021 12:43
Eldgígurinn gæti verið að rumska eftir langan svefn Óróamæling í Fagradalsfjalli í morgun bendir til þess að eldgosið gæti verið að taka sig upp að nýju eftir lengsta goshlé til þessa. Miðað við upptaktinn eftir goshléin undanfarna tíu daga kæmi ekki á óvart ef sæist til jarðelds á ný á næstu klukkustundum. Innlent 7. júlí 2021 10:57
Gosið í dvala í sólarhring í lengsta hléi frá upphafi Enginn jarðeldur hefur sést á yfirborði í gígnum í Fagradalsfjalli í sólarhring. Þetta er lengsta goshlé frá upphafi eldgossins í Geldingadölum þann 19. mars síðastliðinn. Innlent 6. júlí 2021 23:40
Eldgígurinn lagðist í dvala í gærkvöldi Gosvirkni á yfirborði í eldgígnum í Fagradalsfjalli hætti skyndilega um ellefuleytið í gærkvöldi. Þó mátti sjá örlítið í rauðglóandi glóð skömmu eftir miðnætti en eftir það virðist gígurinn hafa lagst í dvala. Engin kvika hefur sést í gígnum á vefmyndavélum í morgun. Innlent 6. júlí 2021 11:11
Ekkert bendir til þess að gosið sé að hætta Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræðum, segir ekkert benda til þess að eldgosið í Fagradalsfjalli hætti á næstunni. Innlent 5. júlí 2021 21:52
Halda sig inni vegna gosmóðu Viðkvæmustu hóparnir hafa haldið sig við inni við síðustu daga vegna gosmóðu frá Eldgosinu í Geldingadölum að sögn varaformanns Samtaka lungnasjúklinga . Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun brýnir fyrir fólki að fylgjast vel með loftgæðum. Innlent 5. júlí 2021 18:33
„Þurfum að setja okkur í loftgæðagosgír“ Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun brýnir fyrir fólki að tileinka sér að kanna loftgæði í nágrenni við sig vegna mengunar frá eldgosinu í Geldingadölum. Fólk með öndunarfærasjúkdóma eigi að forðast útiveru þegar mengun er mikil. Búast megi við færri sólardögum í sumar vegna gosmóðu og þoku. Innlent 5. júlí 2021 12:01
Hraunslettur í gígnum á ný eftir sextán stunda goshlé Jarðeldur sást á ný í gígnum í Fagradalsfjalli um níuleytið í kvöld. Eldgosið hafði þá legið niðri frá því um fimmleytið í morgun. Innlent 4. júlí 2021 22:23
Bjóst ekki við að komast lífs af „Ég var ekki búinn að gefa upp vonina um að finnast, en ég var ekki viss um að myndi finnast á lífi,“ segir Scott Estill, ferðamaðurinn sem týndist á Reykjanesi síðustu helgi. Innlent 4. júlí 2021 21:46
„Gerum allt eins ráð fyrir því að óróinn taki sig upp að nýju“ Gosórói í Geldingadölum féll á fimmta tímanum í nótt og hefur mælst lágur það sem af er degi. Það segir sérfræðingum þó lítið um hvernig gosið kemur til með að þróast í framtíðinni. Innlent 4. júlí 2021 13:13
Þokan á undanhaldi en gosmóðan hangir áfram yfir Það er þokuloft víða um land í dag, einkum á Norður- og Austurlandi, en því ætti að létta með hækkandi sólu þegar líður á daginn. Útlit er fyrir að gosmóða frá eldgosinu á Reykjanesi, sem legið hefur yfir Suðurlandi og suðvesturhorninu sé þó ekki á undanhaldi fyrr en á morgun. Innlent 4. júlí 2021 07:49
„Skrítnasta næturvakt sem ég hef verið á“ Veðurfræðingur sem kláraði næturvakt á Veðurstofu Íslands í morgun lýsir vaktinni sem skrítnustu næturvakt sem hún hefur verið á. Gosmóða og vígahnöttur settu svip sinn á hina undarlegu vakt. Innlent 3. júlí 2021 14:00
Mikið sjónarspil á gosstöðvunum í kvöld Mikið sjónarspil hefur verið á gosstöðvunum í Fagradalsfjalli í kvöld. Eins og hefur kannski ekki farið fram hjá mörgum hefur gosið verið nokkuð óútreiknanlegt undanfarna daga, annað hvort ekki látið á sér kræla eða þá að miklir hrauntaumar hafa spýst upp úr gígnum. Innlent 2. júlí 2021 22:47
Vara við gosmóðunni sem greinist ekki í mælingum Móðan sem liggur yfir höfuðborgarsvæðinu og hefur gert frá því snemma í morgun er gosmóða frá eldgosinu í Fagradalsfjalli í bland við þokuloft. Gosmóðan inniheldur mengun sem hefur náð að umbreytast og greinist hún því ekki með hefðbundnum mælingum á brennisteinsdíoxíði (SO2). Innlent 2. júlí 2021 14:33
Gosið enn á ný að skipta um gír Eldgosið í Geldingadölum heldur áfram að skipta um takt og mælist nú nánast enginn gosórói, eftir mikil læti í nótt. Það er þó engin vísbending um endalok gossins, að sögn jarðeðlisfræðings. Innlent 2. júlí 2021 13:15
Nýtt gosop hefur opnast utan í gígnum Nýtt gosop hefur opnast utan í gígnum á Fagradalsfjalli og virðist það hafa gerst rétt fyrir um klukkan tíu í kvöld. Hraun er aftur farið að streyma úr gígnum en gosórói minnkaði töluvert fyrr í dag og sást varla í jarðeld. Innlent 1. júlí 2021 22:53
Gosið farið að taka aftur við sér Farið er að sjást aftur í hraun gægjast upp úr gígnum í Geldingadölum en gosóróinn minnkaði talsvert í dag og lítið hefur sést til jarðelds það sem af er degi. Innlent 1. júlí 2021 21:08
Gosórói minnkar aftur og lítið sést til jarðelds Verulega hefur dregið úr gosóróa í Fagradalsfjalli frá hádegi, samkvæmt óróariti Veðurstofunnar. Þá hefur ekki sést til glóandi hrauns renna frá gígnum síðustu klukkustundir á vefmyndavél Vísis. Innlent 1. júlí 2021 16:40
Hanna varnir fyrir Svartsengi, Grindavík og Reykjanesbraut Eldgosið í Fagradalsfjalli tók kipp í gærkvöldi með miklum hraunflæðigusum og mældust óróakviðurnar um tíma þær mestu frá upphafi gossins. Byrjað er að hanna varnarmannvirki til að verja Grindavík, Svartsengi og Reykjanesbraut. Innlent 30. júní 2021 22:57
Gerðu ítrekaðar tilraunir til að ræða við Hrauneigendur en var aldrei svarað Framkvæmdastjóri Norðurflugs segir að þyrlufyrirtækið hafi ítrekað gert tilraunir til að ná í landeigendur Hrauns á Reykjanesi þegar eldgosið í Geldingadölum var nýbyrjað en aldrei borið erindi sem erfiði. Innlent 30. júní 2021 22:01
Eldgosið minnti rækilega á sig með mögnuðu sjónarspili Menn voru farnir að spyrja sig í fyrrakvöld hvort eldgosið í Fagradalsfjalli væri í andarslitrunum. Þar sem þoka hamlaði skyggni að gígnum fékkst þó engin engin staðfesting í gær á því hvað væri í gangi fyrr en þokunni létti í gærkvöldi. Innlent 30. júní 2021 16:00
SAF vara eindregið við óhóflegri og einhliða gjaldtöku landeigenda Samtök ferðaþjónustunnar hafa sent frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem varað er eindregið við gjaldtöku af hálfu landeigenda auk þess sem vafi leiki á um lögmæti þess. Innlent 30. júní 2021 11:11
Landeigendur vilja fá 20 þúsund krónur fyrir hverja lendingu Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Norðurflugs segir komna glýju í augu landeigenda og lögbann á þyrlur fyrirtækisins sé spennandi lögfræðilegt álitaefni. Ferðaþjónustan er harðorð vegna áformanna. Innlent 30. júní 2021 10:16
Engin augljós tákn um að eldgosinu sé að ljúka „Það eru engin augljós tákn um að þetta eldgos sé að hætta.“ Þetta sagði Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur í samtali við umsjónarmenn Bítisins á Bylgjunni í morgun þar sem eldgosið í Fagradalsfjalli var til umræðu. Innlent 30. júní 2021 08:39
Fá lögbann á lendingar þyrla Norðurflugs Þyrlufyrirtækið Norðurflug má ekki lengur lenda með ferðamenn við gossvæðið í Geldingadölum. Þetta ákvað sýslumaðurinn á Suðurnesjum í gær og setti lögbann við lendingum frá fyrirtækinu. Innlent 30. júní 2021 07:01