Halda að sér höndum vegna skotfæraleysis Úkraínskir hermenn standa frammi fyrir skorti á skotfærum fyrir stórskotalið og hafa þurft að hætta við árásir og aðrar hernaðaraðgerðir vegna þessa skorts. Úkraínskur herforingi segir að rekja megi skortinn til samdráttar í hernaðaraðstoð frá bakhjörlum Úkraínu og að hann eigi mest við skotfæri fyrir vestræn stórskotaliðsvopn. Erlent 19. desember 2023 11:05
Finnar og Bandaríkjamenn undirrita varnarsamning í dag Stjórnvöld í Finnlandi munu í dag undirrita varnarsamning við Bandaríkin sem greiðir meðal annars fyrir umsvifum Bandaríkjahers í landinu. Erlent 18. desember 2023 10:15
Orban stöðvar 50 milljarða evru hjálparpakka ESB til Úkraínu Stjórnvöld í Ungverjalandi hafa stöðvað fyrirhugaðan 50 milljarða evru hjálparpakka Evrópusambandsins til Úkraínu. Ákvörðun Ungverja var tekin fáeinum klukkustundum eftir að samkomulag náðist um að hefja viðræður um aðild Úkraínu að sambandinu. Erlent 15. desember 2023 06:38
Úkraínu boðið að hefja aðildarviðræður við ESB Leiðtogaráð Evrópusambandsins bauð í dag Úkraínu og Moldóvu að hefja formlegar viðræður um inngöngu í sambandið. Það kom fram á fundi leiðtoganna sem stendur nú yfir í Brussel. Erlent 14. desember 2023 19:08
Enginn friður fyrr en markmiðum Pútíns er náð Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að markmið hans varðandi innrásina í Úkraínu gildi enn. Enginn friður verði fyrr en þeim markmiðum hafi verið náð. Þetta sagði forsetinn á maraþonfundi þar sem hann á að hafa svarað spurningum almennings í Rússlandi. Erlent 14. desember 2023 12:20
Sagði frið ekki nást án réttlætis Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði áherslu á að friður í Úkraínu myndi ekki nást án réttlætis. Hún sagði íslensk stjórnvöld vinna að því með öðrum innan Sameinuðu þjóðanna að koma sérstökum glæpadómstól vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Innlent 13. desember 2023 12:53
Herir Evrópu standa á brauðfótum eftir áratuga niðurskurð Frá því kalda stríðinu lauk á tíunda áratug síðustu aldar hafa ráðamenn í Evrópu varið sífellt minni fjármunum til varnarmála og hergagnaframleiðslu. Vopnabúr Evrópu eru svo gott sem tóm og getan til hergagnaframleiðslu lítil. Erlent 13. desember 2023 08:00
Úllen-dúllen-doff: hverjum hjálpum við? Nú þegar Úkraínumenn hafa barist í bráðum tvö ár, fyrir sameiginlegum gildum okkar og frelsi, deila bandamenn okkar um áframhaldandi stuðning við þá. Skoðun 13. desember 2023 08:00
Selenskí á leiðtogafundi Norðurlandanna í Osló Volodómír Selenskí Úkraínuforseti kom í óvænta heimsókn til Noregs í morgun en hann hefur síðustu daga verið í Bandaríkjunum til að afla Úkraínu stuðnings í stríðinu gegn Rússum. Erlent 13. desember 2023 07:26
Ekkert spurst til Navalní og Þórhildur Sunna krefst upplýsinga Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata og aðalfulltrúi pólitískra fanga á Evrópuráðsþinginu hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hún krefur rússnesk yfirvöld um að upplýsa lögmenn Navalní, pólitísks andstæðings Pútín, um staðsetningu hans og leyfa þeim að hitta hann. Erlent 13. desember 2023 00:16
Telja þúsundir Rússa hafa fallið við Avdívka Leyniþjónustur Bandaríkjanna áætla að um þrettán þúsund Rússneskir hermenn hafi fallið í áhlaupum Rússa í austurhluta Úkraínu frá því í október og þá sérstaklega áhlaupinu á bæinn Avdívka í austurhluta Úkraínu. Þá hafi Rússar misst rúmlega 220 skrið- og bryndreka á þessu tímabili. Erlent 12. desember 2023 17:05
Þórir ósáttur við ákvörðun Alþjóða ólympíunefndarinnar: „Punktur!“ Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, hefur sterkar skoðanir á því að rússnesku íþróttafólki verði leyft að keppa á Ólympíuleikunum í París á næsta ári. Handbolti 11. desember 2023 11:00
Óreiða í Washington og tilhlökkun í Moskvu Sendiherra Úkraínu í Bandaríkjunum segist vongóð um að bandarískir þingmenn muni samþykkja frekari hernaðaraðstoð, þó sífellt ólíklegra verði að slíkt verði gert fyrir jól. Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings komu í veg fyrir atkvæðagreiðslu um frumvarp þar að lútandi í gærkvöldi og krefjast mikilla fjármuna til aukins eftirlits á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Erlent 7. desember 2023 23:17
Biden tilbúinn að lúffa fyrir Repúblikönum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir að frekari hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum geti ekki beðið þar til eftir jól. Þingið þurfi að samþykkja nýjar fjárveitingar til aðstoðarinnar og bað hann þingmenn um að leggja deilur sínar til hliðar í bili. Erlent 6. desember 2023 23:50
Pútín á ferð og flugi um Mið-Austurlönd Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti í morgun í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og ferðaðist hann einnig til Sádi-Arabíu. Hann hefur sjaldan lagt land undir fót frá því innrás Rússlands í Úkraínu hófst í fyrra. Erlent 6. desember 2023 18:50
Skaut mann á tæplega fjögurra kílómetra færi Úkraínsk leyniskytta er sögð hafa sett nýtt met þegar hann skaut rússneskan hermann á 3.800 metra færi. Það gerði hinn 58 ára gamli Vyacheslav Kovalskiy með sérsmíðaðri byssu og sérstökum skotum. Skotið sem hæfði hermanninn var um níu sekúndur á leiðinni. Erlent 5. desember 2023 18:19
Hvíta húsið segir fjármuni og tíma á þrotum Hvíta húsið segir peninga og tíma á þrotum þegar kemur að aðstoð við Úkraínumenn, ef bandaríska þingið gefur sig ekki og samþykkir frekari fjárhagsaðstoð og stuðning. Erlent 5. desember 2023 07:32
Saka Rússa um að myrða hermenn sem gefast upp Yfirvöld í Kænugarði hafa sakað Rússa um stríðsglæpi eftir að myndband fór í dreifingu á samfélagsmiðlum sem virðist sýna hóp hermanna skjóta tvo úkraínska hermenn sem gáfu sig rússneskum hermönnum á vald til bana þegar þeir klifruðu upp úr skotgröf. Erlent 3. desember 2023 18:58
Fyrrverandi forseta neitað að fara úr landi Landamæraverðir í Úkraínu neituðu fyrrum forseta landsins Petro Porosjenkó um að fara úr landi í gær vegna þess að hann ætlaði sér að fara á fund Viktors Orbáns Ungverjalandsforseta. Þetta segir SBU, öryggisþjónusta Úkraínu. Erlent 2. desember 2023 22:31
Segir barist fyrir tilvist Rússlands Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir innrásina í Úkraínu snúast um tilvist Rússlands. Ráðamenn á Vesturlöndum séu að reyna að gera út af við ríkið og skipta því upp og fara ránshendi um ríkið. Erlent 29. nóvember 2023 13:46
Segir Þjóðverja standa frammi fyrir nýjum raunveruleika Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, segist ætla að leysa fjárlagakrísu ríkisins eins fljótt og auðið er. Hann segir að þýska ríkið standi frammi fyrir nýjum raunveruleika eftir áhrifamikinn úrskurð hæstaréttar Þýskalands sem leiddi til stærðarinnar holu í fjárlögum ríkisstjórnarinnar. Erlent 28. nóvember 2023 14:10
Eiginkona Budanovs á sjúkrahúsi vegna eitrunar Marianna Budanova, eiginkona Kyrylo Budanov, yfirmanns leyniþjónustu úkraínska hersins (GUR), er sögð vera á sjúkrahúsi eftir að eitrað var fyrir henni. Eiginmaður hennar hefur lifað af fjölmörg banatilræði á undanförnum árum. Erlent 28. nóvember 2023 12:11
Vaknaði við sprengingar meðan kollegarnir eyddu nóttinni í sprengjubyrgi Sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu segir óhugnanlegt að hafa vaknað upp við sprengjudrunur í Kænugarði í gærmorgun, þegar Rússar gerðu umfangsmikla drónaárás á borgina. Úkraínumenn minntust þess í gær að 90 ár eru liðin frá hungurmorðum Rússa á milljónum Úkraínumanna. Erlent 26. nóvember 2023 13:42
Stærsta drónaárásin hingað til Rússar gerðu í nótt umfangsmestu drónaárásina sem gerð hefur verið á Kænugarð. 75 sjálfsprengidrónum var flogið að höfuðborg Úkraínu en flugher landsins segir 74 þeirra hafa verið skotna niður. Langflestir voru skotnir niður yfir borginni eða úthverfum hennar. Erlent 25. nóvember 2023 12:20
Rússar herða sultarólina Verðlag hefur hækkað hratt í Rússlandi á árinu en Seðlabanki landsins hefur hækkað vexti fjórum sinnum til að reyna að sporna gegn henni. Þegar árið byrjaði voru að stýrivextir 7,5 prósent en nú eru þeir fimmtán. Viðskipti erlent 24. nóvember 2023 17:01
Færanlega neyðarsjúkrahúsið komið í notkun í Úkraínu Færanlega neyðarsjúkrahúsið sem Alþingi ákvað í vor að gefa úkraínsku þjóðinni, er komið til Úkraínu og hefur verið tekið í gagnið. Innlent 24. nóvember 2023 12:56
Stúlkubarn frá Úkraínu endaði hjá pólitískum stuðningsmanni Pútín Blaðamenn á vegum BBC hafa komist að því að stúlkubarn sem fæddist í Kherson í Úkraínu var flutt til Rússlands að undirlagi konu sem nú er gift einum helsta pólitíska stuðningsmanni Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Erlent 23. nóvember 2023 07:33
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Við höfum ekki næg skotfæri en þeir hafa nóg af fólki“ Harðir bardagar eiga sér enn stað á víglínunum í Úkraínu, þó byrjað sé að hægja á þeim vegna blautveðurs í aðdraganda vetrar. Í austri gera Rússar enn umfangsmiklar árásir á þreytta úkraínska hermenn við bæinn Avdívka og líkja Úkraínumenn Rússum við uppvakninga sem sækja fram í bylgjum. Erlent 22. nóvember 2023 11:04
Pútín náðaði djöfladýrkanda sem myrti fjóra táninga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur náðað djöfladýrkanda sem dæmdur var í tuttugu ára fangelsi árið 2010 fyrir að myrða og búta niður fjóra táninga. Maðurinn, sem heitir Nikolaí Oglobljak, var náðaður eftir að hafa verið í svokölluðum fangasveitum Rússa í Úkraínu í hálft ár. Erlent 21. nóvember 2023 16:46
Róbert Spanó kjörinn í stjórn tjónaskrár fyrir Úkraínu Róbert Spanó var í dag kjörinn í stjórn alþjóðlegar tjónaskrár fyrir Úkraínu. Skráin mun taka til eignaskemmda, manntjóns og meiðsla af völdum stríðs Rússlands í Úkraínu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Innlent 16. nóvember 2023 19:39