Rússneskir hermenn illa þjakaðir af áfengisneyslu Fjölmörg slys meðal rússneskra hermanna, þar með talið dauðsföll, má rekja til óhóflegrar áfengisneyslu að sögn breska varnarmálaráðuneytisins. Erlent 2. apríl 2023 13:59
Forysta Rússa í öryggisráðinu „versti brandari í heimi“ Rússar sitja nú í stóli forseta öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þrátt fyrir mótmæli Úkraínumanna og annarra landa. Síðast þegar Rússar gegndu sama embætti réðust þeir inn í Úkraínu. Erlent 1. apríl 2023 11:06
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Það er verið að slátra þeim“ Yfirmenn úkraínska hersins við Bakhmut segja bardaga þar hafa farið Úkraínumönnum í vil. Formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna lýsti átökunum nýverið sem „slátrun“ á Rússum en úkraínskir hermenn segja varnir bæjarins þó hafa verið verulega kostnaðarsamar. Erlent 1. apríl 2023 08:00
Segja Rússa ætla að bjóða Norður-Kóreu mat fyrir vopn Rússar hyggjast gera út sendinefnd til Norður-Kóreu, sem mun bjóða þarlendum ráðamönnum mat fyrir vopn. Þetta sagði John Kirby, talsmaður Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, í gær. Erlent 31. mars 2023 08:08
Tyrkland leggur blessun sína yfir umsókn Finnlands Finnland og Svíþjóð óskuðu eftir því að ganga inn í Atlantshafsbandalagið, NATO, á síðasta ári í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Umsóknin hefur strandað á Tyrklandi en nú hefur tyrkneska þingið samþykkt umsóknina. Öll aðildarríki bandalagsins hafa því nú samþykkt inngöngu Finnlands. Erlent 30. mars 2023 22:16
Gögnum um tölvuárásir Rússa lekið til fjölmiðla Rússneska netöryggisfyrirtækið Vulkan hefur hjálpað herafla og leyniþjónustum Rússlands náið við netárásir og gagnaöflun. Auk þess hafa starfsmenn fyrirtækisins þjálfað starfsmenn leyniþjónusta Rússlands og tekið þátt í að dreifa falsfregnum og ýta undir upplýsingaóreiðu. Erlent 30. mars 2023 19:00
Rússar handtaka blaðamann Wall Street Journal fyrir njósnir Rússneska leyniþjónustan FSB segist hafa handtekið blaðamann bandaríska blaðsins Wall Street Journal fyrir meintar njósnir. Blaðamaðurinn gæti átt yfir höfði sér allt að tuttugu ára fangelsi verði hann fundinn sekur um njósnir. Erlent 30. mars 2023 08:33
Muratov óttast að verið sé að undirbúa Rússa undir kjarnorkustyrjöld „Tvær kynslóðir hafa lifað án ógnarinnar af kjarnorkustyrjöld. En það tímabil er liðið. Mun Pútín ýta á kjarnorkuhnappinn eða ekki? Hver veit? Enginn veit það. Það er enginn sem getur svara því.“ Erlent 30. mars 2023 06:58
Kallar eftir samstöðu með Pútín Rússar þurfa að fylkja liði um Vladimír Pútín, forseta Rússlands, því stríðsrekstri ríkisins mun ekki ljúka í bráð. Þetta segir talsmaður Pútíns sem segir einnig að Rússar eigi í stríði við Vesturlönd. Erlent 29. mars 2023 13:17
Selenskí sagður uggandi vegna forsetakosninganna vestanhafs Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur áhyggjur af því að mögulegar breytingar á hinu pólitíska landslagi Vestanhafs muni hafa áhrif á gang stríðsins í Úkraínu. „Bandaríki skilja að ef þeir hætta að aðstoða okkur þá vinnum við ekki,“ sagði forsetinn í viðtali við AP. Erlent 29. mars 2023 08:07
Myndband af úkraínskum „nasistum“ tekið upp á yfirráðasvæði Rússa Utanríkisráðuneyti Rússlands birti í gær myndband sem sagt var sýna úkraínska hermenn áreita konu og barn og skjóta á þau, fyrir að tala rússnesku. Myndbandið átti að vera til marks um að úkraínskir hermenn væru nasistar en ráðuneytið fjarlægði það eftir að í ljós kom að það var tekið upp á yfirráðasvæði Rússa í austurhluta Úkraínu. Erlent 28. mars 2023 13:43
ÓL-verðlaunahafi dó í stríðinu i Úkraínu Úkraínski hnefaleikamaðurinn Maksym Galinichev dó í stríðinu í Úkraínu en hann var aðeins 22 ára. Sport 28. mars 2023 09:30
Á leið aftur til Úkraínu eftir þjálfun í Bretlandi Bretar eru búnir að þjálfa úkraínska hermenn í notkun Challenger 2 skriðdreka, sem framleiddir eru í Bretlandi. Hermennirnir og skriðdrekarnir eru nú á leið til Úkraínu. Þjóðverjar hafa einnig að afhent Úkraínumönnum átján Leopard 2 skriðdreka. Erlent 27. mars 2023 15:36
NATO fordæmir „hættulega“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn Atlantshafsbandalagið fordæmir „hættulega og ábyrgðarlausa“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn. Vladimír Pútín Rússlandsforseti ákvað í gær að flytja slík vopn yfir til Hvíta-Rússlands. Erlent 26. mars 2023 16:10
Rússar ráðast í landflutninga með kjarnorkuvopn Rússar ætla að flytja kjarnorkuvopn yfir til Hvíta-Rússlands. Að minnsta kosti tíu flugvélar verða staðsettar í landinu sem borið geta kjarnaodda. Erlent 25. mars 2023 20:26
Hafa skráð tugi aftaka á stríðsföngum Starfsmenn Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) hafa skrásett fjölda aftaka á stríðsföngum, bæði úkraínskum og rússneskum, í átökunum í Úkraínu. Mun erfiðara sé þó að fá upplýsingar frá Rússum og fá aðgang að föngum í haldi þeirra. Erlent 24. mars 2023 14:35
Rússar skjóta föstum skotum á utanríkisráðherra Rússneska sendiráðið í Reykjavík skýtur föstum skotum á „nýja tísku“ í orðfæri íslenskra embættismanna í tengslum við innrás Rússa í Úkraínu. Sendiráðið nefnir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra sérstaklega, sem notaði orðin „þið megið fokka ykkur,“ í tengslum við baráttuanda Úkraínumanna gegn Rússum. Orðin voru ekki hennar eigin, að sögn ráðherrans. Innlent 23. mars 2023 17:32
Rússar geti farið heim með skriðdrekana sína óttist þeir um þá John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, segir að ef Rússar óttist um skriðdreka sína í Úkraínu, sé einfalt fyrir þá að keyra skriðdrekana aftur til Rússlands. Ráðamenn í Rússlandi hafa kvartað yfir því að Bretar séu að senda Úkraínumönnum skot úr rýrðu úrani. Erlent 23. mars 2023 16:03
Selenskí þakklátur Íslandi Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segist vera þakklátur Íslandi fyrir að viðurkenna hungursneyðina í Úkraínu á árunum 1932-1933 sem hópmorð. Alþingi samþykkti í morgun þingsályktunartillögu þess efnis. Erlent 23. mars 2023 14:32
„Myndi 100 prósent láta svæðin aftur í hendur Úkraínu“ Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og mögulegur forsetaframbjóðandi, segir orð sín um stríðið í Úkraínu hafa verið misskilin og að Vladimir Pútín Rússlandsforseti sé sannarlega stríðsglæpamaður. Erlent 23. mars 2023 07:13
Myndir af eldflaugaárás Rússa á fjölbýlishús Rússar skutu eldflaug á fjölbýlishús í Zaporizhzhia í Úkraínu í dag. Sprengingin náðist á eftirlitsmyndavél og var mjög kröftug eins og þar sést. Erlent 22. mars 2023 20:01
Ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu Bandaríkjamenn segja ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu. „Það er ekki á neinn hátt raunhæft að ætla Kínverjum að vera hlutlausir,“ sagði John Kirby, talsmaður Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, í gær. Erlent 22. mars 2023 07:11
Rússar reyna að fá hernaðarstuðning frá Kína Forsetar Kína og Rússlands hafa talað almennt um að efla samskipti þjóðanna á fundi símum í Moskvu í dag en ekkert hefur komið fram um hernaðaraðstoð. Rússar eru mun háðari Kína en áður á ýmsum sviðum vegna refsiaðgerða Vesturlanda. Erlent 21. mars 2023 19:41
Fá eldri skriðdreka en fá þá fyrr Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að flýta skriðdrekasendingum til Úkraínu. Í stað þess að senda nýja M1A2 Abrams skriðdreka, sem mun taka allt að tvö ár, stendur til að gera upp og senda eldri týpur. Erlent 21. mars 2023 17:09
Stóra spurningin hvort kínversk stjórnvöld muni selja Rússum vopn Forsetar Kína og Rússlands segjast hafa áþekk markmið og vilja dýpka samvinnu sín á milli. Forsetarnir munu funda áfram í Rússlandi í dag, meðal annars um stríðið í Úkraínu. Prófessor í stjórnmálafræði segir stóru spurninguna vera hvort kínversk stjórnvöld muni ákveða selja Rússum vopn. Innlent 21. mars 2023 12:57
Íslenskir sprengjusérfræðingar þjálfa úkraínska hermenn Íslenskir sérfræðingar á sviði sprengjuleitar og sprengjueyðingar frá Landhelgisgæslu Íslands eru um þessar mundir að þjálfa úkraínska hermenn í Litáen. Það er liður í samstarfsverkefni Norðurlandanna og Litáen en litáískir, norskir, sænskir og íslenskir sprengjusérfræðingar koma að þjálfuninni. Innlent 21. mars 2023 12:01
Funduðu í fjóra og hálfan tíma Xi Jinping og Vladimír Pútín, forsetar Kína og Rússlands og tveir valdamestu einvaldar heimsins, ræddu saman í einrúmi í fjóra og hálfan tíma eftir að Xi lenti í Moskvu í gær. Fyrir fundinn í gær lofuðu forsetarnir vinasamband ríkjanna tveggja og hvorn annan. Erlent 21. mars 2023 10:26
Xi lentur í Moskvu Xi Jinping, forseti Kína, er lentur í Moskvu. Hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta í dag og í kvöld munu þeir snæða saman kvöldverð. Erlent 20. mars 2023 11:14
Munu eiga óformlegan fund í dag og snæða saman í kvöld Xi Jinping, forseti Kína, er væntanlegur til Moskvu eftir hádegi í dag þar sem hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta og snæða með honum kvöldverð. Erlent 20. mars 2023 06:52
Pútín fór óvænt til Maríupól í nótt Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fór í óvænta heimsókn til Maríupól í Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Pútín heimsækir nýlega hernumin svæði í Úkraínu, en hann ferðaðist til Krímskaga í gær. Erlent 19. mars 2023 08:05