Hagnaður Arion banka eykst um tæpa tvo milljarða Hagnaður Arion banka á þriðja ársfjórðungi var 7,9 milljarðar króna, sambanborið við 6,1 milljarð á sama tímabili í fyrra. „Núverandi vaxtaumhverfi er þess valdandi að við erum varfærin í okkar niðurfærslum,“ segir bankastjórinn um sögulega háa verðtryggða vexti. Viðskipti innlent 30. október 2024 17:05
Kílómetragjaldið fer inn í vísitöluna og krafa verðtryggðra ríkisbréfa lækkar Fyrirhuguð upptaka kílómetragjalds á öll ökutæki í staðinn fyrir olíugjald verður tekið með í útreikninga á vísitöluneysluverðs, staðfestir Hagstofan, en óvissa hefur verið meðal markaðsaðila hvernig stofnunin myndi meðhöndla útfærslu á þeirri breytingu. Ávöxtunarkrafa stuttra verðtryggðra ríkisbréfa hefur lækkað skarpt í morgun þar sem nú er ljóst að mæld verðbólga verður hærri en ella í upphafi næsta árs vegna ákvörðunar Hagstofunnar. Innherji 30. október 2024 11:15
Samkeppniseftirlitið í sáttaviðræðum við Festi Samkeppniseftirlitið hefur fallist á að hefja sáttaviðræður við Festi hf. vegna ætlaðra brota félagsins á samkeppnislögum vegna samruna við Hlekk ehf. sem hét áður Festi hf. Rannsóknin nær samkvæmt tilkynningu aftur til ársins 2018. Viðskipti innlent 29. október 2024 18:31
Sækja óreiðumenn í flugrekstur? Ef boðið er flugfargjald, sem er aðeins brot af kostnaði við flugið, vakna forvitnilegar spurningar um hver borgar það sem á vantar og af hverju hann gerir það. Gerir farþeginn það alfarið sjálfur eins og hjá dæmigerðu lággjaldaflugfélagi, hluti af þjóðinni eða jafnvel öll þjóðin? Stóð ekki annars til að flugfélagið bæri sig? Skoðun 29. október 2024 08:01
Telur æskilegt að lífeyrissjóðir beiti sér líkt og aðrir fjárfestar í skráðum félögum Seðlabankinn er þeirrar skoðunar að það sé „æskilegt“ að lífeyrissjóðir, sem eru langsamlega stærstu fjárfestarnir á innlendum verðbréfamarkaði, beiti áhrifum sínum sem hluthafar í skráðum félögum í Kauphöllinni líkt og aðrir fjárfestar. Bankinn brýnir hins vegar fyrir lífeyrissjóðunum mikilvægi þess að stjórnarmenn séu sjálfstæðir í störfum sínum og eigi að gæta að hagsmunum sjóðsfélaga við að „hámarka ávöxtun eigna.“ Innherji 27. október 2024 13:42
Dagurinn þegar fyrsta þotan lenti í Reykjavík Það var ekki Boeing 727-þotan Gullfaxi sem varð fyrsta þotan til að lenda á Reykjavíkurflugvelli sumarið 1967. Sex árum áður hafði nefnilega önnur farþegaþota orðið fyrri til að lenda á flugvelli höfuðborgarinnar. Sú var ekki bandarísk heldur frönsk. Innlent 27. október 2024 07:07
Togað hafi verið í stýrið og afturhluti vélar strokið flugbrautina Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) telur að togað hafi verið í hæðarstýrið eftir að lyftispillar virkjuðust sjálfvirkt í lendingu, þegar stél á flugvél Icelandair straukst við flugbraut í Indlandi í fyrra. Innlent 26. október 2024 10:25
Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Gengi bréfa í Play féll um tæp þrettán prósent í dag og verð á bréfum í félaginu er nú 0,82 krónur á hlut. Sú var staðan þegar lokað var fyrir viðskipti með bréf í Kauphöllinni á fjórða tímanum í dag. Í gær birti félagið uppgjör þar sem kom fram að hagnaður á þriðja ársfjórðungi hefði dregist saman um þriðjung milli ára. Forstjóri félagsins kynnti grundvallarbreytingar á rekstrarmódeli félagsins á fundi í gær. Viðskipti innlent 25. október 2024 16:45
Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Flugfélagið Play hagnaðist um hálfan milljarð króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Á sama tíma í fyrra hagnaðist félagið um 724 milljónir króna. Félagið skoðar nú að ráðast í hlutafjáraukningu og eftir atvikum sækja fjármögnun í tengslum við nýtt flugrekstrarleyfi. Viðskipti innlent 24. október 2024 16:32
Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Flugfélagið Play boðar til fundar í Sykursalnum í Vatnsmýrinni þar sem afkoma þriðja ársfjórðungs verður kynnt. Þá verður farið nánar yfir þegar tilkynntar grundvallarbreytingar sem til stendur að gera á rekstrarmódeli félagsins. Sýnt verður frá fundinum hér á Vísi. Viðskipti innlent 24. október 2024 15:34
Seðlabankinn vill skoða að heimila lífeyrissjóðum að lána verðbréf Hægt væri að auka skilvirkni og dýpt verðbréfamarkaða hér á landi með því að veita íslenskum lífeyrissjóðum, langsamlega stærstu fjárfestunum á markaði, frekari heimildir til afleiðuviðskipta og jafnframt leyfa þeim að lána hlutabréf eða skuldabréf sín, að sögn Seðlabankans. Vegna stærðar sinnar getur hegðun lífeyrissjóða heft „veruleg áhrif“ á verðmyndun á markaði og því sé jákvætt fyrir fjármálastöðuga að skoða leiðir sem gætu aukið þátttöku annarra fjárfesta. Innherji 24. október 2024 10:25
Afkoma Icelandair var vel undir spám greinenda og gengið lækkaði skarpt Minni eftirspurn á markaðnum til Íslands og lægri meðalfargjöld á flugi yfir Atlantshafið veldur því að rekstrarhagnaður Icelandair af farþegafluginu hefur skroppið saman um tæplega níutíu prósent á fyrstu níu mánuðum ársins. Uppgjör Icelandair fyrir þriðja fjórðung var nokkuð undir væntingum greinenda og fjárfesta en félagið sér fram á verulega bætta afkomu á næsta fjórðungi miðað við sama tíma í fyrra og horfurnar fyrir 2025 séu góðar samhliða því að sumir keppinautar eru að draga saman seglin. Innherji 23. október 2024 18:16
Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2024. Hagnaðurinn á sama tímabili í fyrra var sex milljarðar króna. Hreinar vaxtatekjur námu 11,8 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2024 og lækkuðu um 69 milljónir króna frá fyrra ári. Viðskipti innlent 23. október 2024 16:29
Búast við að klára samrunann við Marel í árslok nú þegar styttist í samþykki ESB Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú gefið til kynna að hún sé reiðubúin að taka á móti formlegi tilkynningu vegna samruna John Bean Technologies (JBT) og Marel en stjórnendur bandaríska félagsins telja að yfirlýst áform um að klára viðskiptin undir árslok eigi að ganga eftir. Hlutabréfaverð JBT hefur rokið upp eftir að afkoman á þriðja ársfjórðungi var yfir væntingum greinenda en félagið skilaði mettekjum og framlegðin batnaði sömuleiðis verulega. Innherji 23. október 2024 13:40
Tekjur jukust um sjö prósent milli ára Tekjur Símans á þriðja ársfjórðungi námu 6.955 milljónum króna samanborið við 6.501 milljónir króna á sama tímabili í fyrra og jukust því um 7 prósent. Tekjur á kjarnaþjónustum Símans, farsíma, gagnaflutningi og sjónvarpsþjónustu jukust einnig um rúmlega þrjú prósent milli tímabila. Viðskipti innlent 22. október 2024 17:41
Hagnaður dregst saman um tæpa tvo milljarða króna Hagnaður Icelandair eftir skatta var 9,5 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi og dregst saman um 1,7 milljarða á milli ára. Heildarfjöldi farþega var 1,7 milljónir og jókst um 200 þúsund á milli ára. Viðskipti innlent 22. október 2024 16:43
Hluturinn í Controlant er „stærsta óvissan“ í eignasafni Sjóvá Ef Sjóvá hefði vitað um þau viðbótarréttindi sem fjárfestar fengu við útboð Controlant í árslok 2023, sem ver þá fyrir umtalsverðri gengislækkun í yfirstandandi hlutafjáraukningu, þá hefði tryggingafélagið ekki bókfært virði hlutarins hjá sér miðað við gengið 105 krónur á hlut, segir forstöðumaður fjárfestinga. Stjórnendur Sjóvá merkja aukna samkeppni í tryggingarstarfseminni eftir að einn af keppinautum félagsins, VÍS, sameinaðist Fossum fjárfestingabanka. Innherji 22. október 2024 14:03
Hagar færa út kvíarnar og kaupa færeyskt verslunarfélag fyrir um níu milljarða Smásölurisinn Hagar hefur náð samkomulagi við eigendur verslunarfélagsins P/F SMS í Færeyjum, sem rekur meðal annara átta Bónusverslanir, fyrir jafnvirði meira en níu milljarða króna í því skyni að auka umsvif félagsins í dagvöruverslun. Hinir færeysku eigendur SMS fá að hluta greitt með bréfum í Högum en fjárfestar taka vel í tíðindin og hlutabréfaverðið hækkað skarpt í fyrstu viðskiptum í Kauphöllinni. Innherji 22. október 2024 10:15
Oculis rauk upp eftir tilkynningu Gengi hlutabréfa augnlyfjafyrirtækisins Oculis rauk upp um tæplega tíu prósent í dag. Í morgun tilkynnti félagið að innritunum þátttakenda í rannsóknum á lyfinu OCS-01 hefði verið flýtt verulega. Viðskipti innlent 21. október 2024 16:00
Endurtekin tilboðsskylda – brýn minnihlutavernd eða óþarfa hömlur? Reglur um yfirtökur á hlutabréfamörkuðum hafa það hlutverk að meginstefnu til að vernda hagsmuni minnihlutahluthafa við þær aðstæður þegar fjárfestir, einn eða í samstarfi við aðra, öðlast ráðandi hlut í félagi. Reglurnar gefa slíkum hluthöfum kost á því að losa sig út úr félagi á fyrir fram ákveðnu og sanngjörnu verði kjósi þeir svo. Allur gangur er hins vegar á því með hvaða hætti ríki útfæra þessar reglur og hve strangar þær eru. Umræðan 21. október 2024 12:56
Telur ókosti kauprétta hvað þeir geta verið „ófyrirsjáanlegir“ í niðurstöðum Lífeyrissjóðurinn Gildi lagðist gegn kaupréttaráætlun sem var samþykkt á hluthafafundi Reita, rétt eins og sjóðurinn hefur gert í tilfelli annarra félaga að undanförnu, og vill að skoðaðar séu aðrar leiðir en kaupréttir þegar komið er á langtímahvatakerfi fyrir lykilstjórnendur. Gildi er langsamlega stærsti hluthafinn í Reitum, með um nítján prósenta hlut, en sá næst stærsti – Lífeyrissjóður verslunarmanna – studdi hins vegar tillögu stjórnar fasteignafélagsins um kaupréttarkerfið. Innherji 20. október 2024 13:32
Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Ákveðið var í gær að slá sölu á útistandandi hlutum ríkisins í Íslandsbanka á frest. Greinandi segir þessa ákvörðun hafa jákvæð áhrif á markaðinn. Viðskipti innlent 19. október 2024 13:53
„Hraustleg lækkun“ á vanmati félaga eftir að markaðurinn tók loksins við sér Eftir dræman árangur í samanburði við flesta erlenda hlutabréfamarkaði um nokkurt skeið hefur íslenski markaðurinn, einkum núna þegar vaxtalækkunarferlið er farið af stað, loksins tekið við sér og það er margt sem vinnur með honum um þessar mundir, að mati hlutabréfagreinenda. Hækkandi hlutabréfaverð kemur hins vegar á sama tíma og það er að draga úr samkeppnishæfni Íslands eftir miklar launahækkanir og gengisstyrkingu á undanförnum árum. Innherji 19. október 2024 13:13
Sölunni slegið á frest Ákveðið hefur verið að fresta sölu á útistandandi hlutum ríkisins í Íslandsbanka vegna markaðsaðstæðna og þess að skammt er til alþingiskosninga. 42,5 prósenta hlutur ríkisins er um 92 milljarða virði. Viðskipti innlent 18. október 2024 16:45
Samþykktu hlutafjárhækkun til að verja tiltekna fjárfesta fyrir gengislækkun Mikill meirihluti hluthafa samþykkti tillögu stjórnar Controlant um að fara meðal annars í hlutafjárhækkun í því skyni að gefa út uppbótarhluti til að verja þá fjárfesta, einkum lífeyrissjóði, sem höfðu komið inn í síðasta útboði fyrir þeirri miklu gengislækkun sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Útlit er fyrir að sömu lífeyrissjóðir muni leggja til um þriðjunginn af þeirri fjárhæð sem Controlant hyggst sækja sér í nýtt hlutafé á næstu vikum. Innherji 18. október 2024 13:23
Play í frjálsu falli Hlutabréfaverð flugfélagsins Play er í frjálsu falli eftir tilkynningu um breytingu á rekstrarformi félagsins í vikunni. Einn af fjórum stærstu hluthöfum félagsins seldi 71 milljón hluta í morgun á genginu ein króna á hlut. Dagslokagengið á miðvikudag var 1,92 krónur. Viðskipti innlent 18. október 2024 11:49
Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Icelandair skrifaði undir tvo samstarfssamninga um sammerkt flug á Hringborði Norðurslóða í dag, við Air Greenland og færeyska flugfélagið Atlantic Airways. Með þessum samningum geta félögin boðið öflugar tengingar milli Grænlands og Færeyja annars vegar og Norður-Ameríku og Evrópu hins vegar, í einum flugmiða í gegnum Ísland. Viðskipti innlent 17. október 2024 16:51
Tiltrú fjárfesta mun aukast þegar það fæst betri innsýn í sölutekjur Alvotech Fjárfestar bíða eftir að fá betri innsýn í tekjurnar vegna sölu á hliðstæðulyfi Alvotech við Humira í Bandaríkjunum, að mati fjárfestingabankans Barclays, en það hefur ráðið hvað mestu um að hlutabréfaverð félagsins er enn talsvert undir hæstu gildum fyrr á árinu. Greinendur bankans, sem segjast „sannfærðir“ um að Alvotech verði einn af þremur risunum á heimsvísu á sviði líftæknilyfja, álíta að uppgjör næstu mánaða muni auka tiltrú og traust markaðarins á tekjuáætlunum þess og nefna eins að með sérhæfðri lyfjaverksmiðju sé félagið með samkeppnisforskot á suma af helstu keppinautum sínum. Innherji 17. október 2024 14:55
Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Sérfræðingur með áratuga reynslu úr flugmálaheiminum segir erfitt að segja til um hvort að umfangsmiklar breytingar á rekstri flugfélagsins Play muni koma til með að bjarga rekstri félagsins og tekur fram að vendingarnar komi honum ekki á óvart. Tíminn muni leiða í ljós hvort að Play neyðist til að ráðast í uppsagnir. Gengi bréfa í félaginu hefur fallið um tuttugu prósent í dag. Viðskipti innlent 17. október 2024 12:18
„Play verður áfram íslenskt“ Flugfélagið Play mun ráðast í umfangsmiklar breytingar og dregur úr verulega úr tengiflugi milli Evrópu og Norður-Ameríku. Á sama tíma verður aukin áhersla sett á sólarlandaferðir. Vélum og starfsfólki á Íslandi mun fækka, og sótt um flugrekstrarleyfi erlendis. Viðskipti innlent 16. október 2024 19:33