Benites fær menn úr meiðslum Lið Liverpool hefur verið meiðslum hrjáð á tímabilinu en fagnar því að lykilmenn liðsins verða leikfærir í síðari leikinn gegn Leverkusen í Meistaradeildinni. Sport 7. mars 2005 00:01
Börsungar drjúgir með sig Leikmenn Barcelona eru ekki í nokkrum vafa um að þeir muni komast áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar á kostnað Chelsea. Sport 7. mars 2005 00:01
Meiðsli hjá United Gary Neville og Louis Saha hjá Manchester United hafa báði verið útilokaðir frá leik liðsins við AC Milan í Meistaradeildinni. Sport 7. mars 2005 00:01
Gattuso leiðréttir sig Gennaro Gattuso, miðjumaðurinn sterki hjá AC Milan á Ítalíu, hefur sagt að rangt hafi verið haft eftir honum að hann vildi fara til Manchester United. Sport 7. mars 2005 00:01
Ekkert af ensku liðunum fer áfram! Brasilíska knattspyrnuundrið, Ronaldinho hjá Barcelona er ekkert að skafa utan af hlutunum í viðtali við breska blaðið Daily Mirror í dag þar sem hann heldur því fram að ekkert af ensku liðunum fjórum í Meistaradeildinni muni komast í 8 liða úrslitin en 16 liða úrslitunum lýkur á miðvikudag. Sport 7. mars 2005 00:01
UEFA segir Mourinho til syndanna Fulltrúi Knattspyrnusambands Evrópu hefur komið fram með yfirlýsingu vegna ummæla Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea eftir leik liðsins við Barcelona í Meistaradeildinni á dögunum. Sport 7. mars 2005 00:01
Chelsea hefur harma að hefna Það er alveg ljóst að það verður stríðsástand á Stamford Bridge í kvöld þegar Chelsea tekur á móti Barcelona. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur reitt alla leikmenn Barcelona til reiði með framkomu sinni eftir leikinn í Nou Camp fyrir tveimur vikum þegar hann neitaði að mæta á blaðamannafund eftir leikinn og ásakaði Frank Rijkaard, þjálfara Barcelona, um að hafa rætt einslega við Andreas Frisk, dómara leiksins, í háflleik. Chelsea tapaði leiknum 2-1 og skapaði sér litla virðingu hjá leikmönnum spænska liðsins, sem fannst leikur liðsins leiðinlegur Sport 7. mars 2005 00:01
Henry trúir á sína menn Markahrókurinn Thierry Henry hjá Arsenal segir að lið sitt þurfi að sanna ástríðu sína til að eiga möguleika á að komast áfram í Meistaradeildinni. Sport 7. mars 2005 00:01
Collina dæmir á Stamford Bridge Ítalski knattspyrnudómarinn Pierluigi Collina mun dæma síðari leik Chelsea og Barcelona, sem fram fer í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöld.<font face="Helv"></font> Sport 6. mars 2005 00:01
Engin værukærð gegn Man. Utd. Leikmenn ítalska knattspyrnuliðsins AC Milan ætla sér að halda einbeitingunni í lagi fyrir seinni leikinn gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu. Sport 3. mars 2005 00:01
10% líkur, segir Robben Arjen Robben telur litlar líkur á því að hann verði með gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Sport 2. mars 2005 00:01
Nedved illa meiddur Pavel Nedved hlaut slæm meiðsli í leik með liði sínu Juventus gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku. Sport 27. febrúar 2005 00:01
Mourinho rýfur þögnina Jose Mourinho hefur loksins rofið þögn sína frá leiknum gegn Barcelona í síðustu viku. Sport 27. febrúar 2005 00:01
Arjen líklega með gegn Barcelona Góðar líkur eru á að Arjen Robben, leikmaður Chelsea, verði orðinn leikfær á ný þegar liðið mætir Barcelona á Stamford Bridge 8. mars í Meistaradeild Evrópu. Sport 27. febrúar 2005 00:01
Ekkert óeðlilegt gerðist Anders Frisk, sænski dómarinn í leik Barcelona og Chelsea í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag, hefur skilað inn leikskýrslu sinni frá leiknum til UEFA. Sport 25. febrúar 2005 00:01
Klögumálin ganga á víxl Klögumálin ganga á víxl á milli herbúða Chelsea og Barcelona eftir leik liðanna í Meistaradeildinni á miðvikudaginn. Aðstoðarþjálfari Barcelona, Henk Ten Cate, sem er sakaður um að sparka í afturendann á Jose Mourinho í leikmannagöngunum eftir leikinn, segir þetta lygi. Sport 25. febrúar 2005 00:01
Rijkaard hugsanlega refsað Frank Rijkaard, knattspyrnustjóri Barcelona, gæti átt yfir höfði sér refsingu frá Knattspyrnusambandi Evrópu Sport 24. febrúar 2005 00:01
Mourinho fúll Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea er hundfúll eftir atvik sem átti sér stað í leiknum við Barcelona í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Sport 24. febrúar 2005 00:01
Ferguson ver Carroll Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United neitar að kenna markverði sínum Roy Carroll um tapið gegn AC Milan í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Sport 24. febrúar 2005 00:01
Eiður hefur litlar áhyggjur Eiður Smári Guðjohnsen, framherji Chelsea, gefur lítið fyrir þær kenningar að tímabilið hjá Chelsea sé á hraðri leið til glötunar. Sport 22. febrúar 2005 00:01
Stórleikir í Meistaradeildinni 16 liða úrslit í Meistaradeildinni í knattspyrnu hefjast í kvöld með fjórum leikjum en allir leikirnir eru sannkallaðir stórleikir. Þrír leikir verða sýndir á Sýn og Sýn 2. Sport 22. febrúar 2005 00:01
Shevchenko frá fram yfir páska Nú er ljóst að AC Milan verður án úkraínsku markamaskínunnar Andriy Shevchenko næsta mánuðinn en það fékkst staðfest í dag þegar hann gekkst undir læknisaðgerð á Ítalíu. Settar voru málmplötur í andlit leikmannsins í aðgerðinni sem að sögn heppnaðist fullkomlega. Þessi tíðindi þýða að Milan verður án Shevchenko í báðum leikjum sínum gegn Man Utd í Meistaradeildinni og ekki von á honum í slaginn fyrr en í fyrsta lagi eftir páska. Sport 21. febrúar 2005 00:01
Elber á leið frá Lyon Knattspyrnumaðurinn Giovanni Elber hefur fengið sig lausan undan samningi frá franska liðinu Lyon, eftir að sló í brýnu milli hans og forráðamanna liðsins. Sport 30. janúar 2005 00:01
Giggs fer ekki fram á mikið Umboðsmaður Ryans Giggs, segir að umbjóðandi hans fari ekki fram á mikið í samingaviðræðum sínum við Manchester United og furðar sig á því að félagið skuli ekki vera búið að endurnýja samninginn við kappann sem rennur út 2006. Sport 21. desember 2004 00:01
Chelsea mætir Barcelona Dregið var í 16-liða úrslit meistaradeildarinnar í knattspyrnu nú fyrir stundu og eru engir smáleikir á dagskránni. Meðal viðureigna er Barcelona - Chelsea, Real Madrid - Juventus og Manchester United - AC Milan. Sport 17. desember 2004 00:01
Real Madrid sektað Real Madrid hefur verið sektað um tæplega 10 þúsund evrur fyrir hegðun áhorfenda í leik liðsins gegn Bayer Leverkusen í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í síðasta mánuði. Sport 11. desember 2004 00:01
Gerrard hetja Liverpool Steven Gerrard var hetja Liverpool er hann skoraði þriðja og síðasta mark þeirra rauðu með frábæru skoti af um 25m færi á 86. mínútu í leik gegn Olympiakos í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld, en þar sem Grikkirnir höfðu skorað í leiknum varð Liverpool að skora þrjú mörk til að komast áfram. Sport 8. desember 2004 00:01
Liverpool undir í hálfleik Liverpool er 1-0 undir gegn Olympiakos á Anfield í loka leik B-riðils í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu en hálfleikur er kominn í leikina. Það var sjálfur Rivaldo sem skoraði markið beint úr aukaspyrnu, en spurningarmerki má setja við Antonio Nuez í því marki en hann hoppaði úr veggnum og bjó til gat sem Rivaldo skaut í gegnum. Liverpool hefur þó verið mun betri aðilinn og eru óheppnir að vera ekki búnir að setja mark Sport 8. desember 2004 00:01
Baros í byrjunarliðinu Milan Baros kemur inní lið Liverpool í kvöld er Rauði Herinn spilar sinn síðasta leik í Meistaradeildinni gegn Olympiakos en Baros hefur misst af síðustu fimm leikjum liðsins vegna meiðsla. Baros kemur inn í liðið á kostnað Arsenal banans Neil Mellor sem þarf að gera sér sæti á bekknum að góðu. Sport 8. desember 2004 00:01
Sir Alex hvílir lykilmenn Manchester United mun tefla fram mjög breyttu liði í leiknum gegn Fenerbahce í síðasta leik liðsins í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Liðið er að mestu skipað varaliðsleikmönnum, en þó er að finna nokkra reynslubolta inn á milli. Sport 8. desember 2004 00:01