Rýnt í hæðir og lægðir baráttunnar Íslendingar ganga að kjörborðinu eftir tæpar tvær vikur. Kosningabaráttan er í hámarki og gengið hefur á ýmsu. Í Pallborðinu ætlum við að fara yfir hæðir og lægðir í baráttunni; rýna í herferðir, ræða málefni og frambjóðendur og spá fyrir um framhaldið. 18.11.2024 12:59
Flokkar í útrýmingarhættu, smánarlaun og tónlistarveisla Fylgi flokkanna er á töluverðri hreyfingu nú þegar einungis rúmar þrjár vikur eru til kosninga samkvæmt nýrri könnun Maskínu og Viðreisn á miklu flugi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rýnt í spennandi stöðu í pólitíkinni með Ólafi Þ. Harðarsyni, prófessor í stjórnmálafræði. 7.11.2024 18:01
Viðreisn á flugi í nýrri Maskínukönnun Viðreisn er á mikilli siglingu samkvæmt nýrri könnun Maskínu og ekki er marktækur munur á fylgi hennar og Samfylkingarinnar. Prófessor í stjórnmálafræði segir hættu á að metfjöldi atkvæða falli niður dauður. 7.11.2024 12:01
Söguleg endurkoma, súr kosningavaka og baráttuhugur Donald Trump verður fertugasti og sjöundi forseti Bandaríkjanna eftir sögulegan og stærri sigur en búist var við. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 heyrum við frá sigurræðu Trumps, rýnum í áhrif úrslitanna með prófessor í stjórnmálafræði og verðum í beinni frá Bandaríkjunum. Hólmfríður Gísladóttir, fréttamaður okkar, var í kosningavöku Kamölu Harris í Washington í gærkvöldi og fer yfir andrúmsloftið þar - sem hefur eflaust verið í súrara lagi. 6.11.2024 18:01
Trump áhrifameiri en nokkru sinni fyrr Donald Trump verður á næstu árum áhrifameiri en nokkru sinni fyrr, segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði. Nú taki við einstaklingur sem er búinn að læra á kerfin, með þingið í vasanum og dómara hliðholla sér við hæstarétt. 6.11.2024 14:15
Sögulegt spennustig týnd börn og bugaðir foreldrar Sögulega spennandi forsetakosningar fara nú fram í Bandaríkjunum og nokkrar klukkustundir eru í fyrstu tölur. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sjáum við myndir frá lokaspretti frambjóðenda og rýnum í stöðuna með Silju Báru Ómarsdóttur, sérfræðingi í bandarískum stjórnmálum. Þá verður Hólmfríður Gísladóttir, fréttamaður, í beinni útsendingu frá barátturíkinu Pensylvaníu og ræðir við kjósendur. 5.11.2024 18:01
Hræðilegt slys og sögulegar kosningar Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu ásamt félögum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem segir að um hræðilegt slys sé að ræða. 4.11.2024 18:03
„Sjáum fram á að geta rekið sveitarfélagið eitthvað fram eftir næsta ári“ Grindavíkurbær stefnir í greiðsluþrot á næsta ári verði ekki komið til móts við bæjarsjóð að mati Grindavíkurnefndar. Bæjarstjóri segir óvissu um framlengingu ýmissa stuðningsúrræða ótæka. Innviðaráðherra segir margar stórar ákvarðanir um áframhaldandi stuðning bíða nýrrar ríkisstjórnar. 1.11.2024 13:10
Metfjöldi manndrápsmála, æsispennandi kosningar og tónlist í beinni Maður sem sætir gæsluvarðhaldi í tengslum við andlát móður sinnar hefur áður hlotið dóm fyrir ofbeldi gegn foreldrum sínum. Aldrei hafa fleiri manndrápsmál komið upp á einu ári. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við afbrotafræðing sem segir þróunina uggvænlega og tilefni til að styðja betur við fólk sem stendur höllum fæti í samfélaginu. Þá mætir formaður Afstöðu í sett en hann viðrað áhyggjur af stöðu gerandans og gagnrýnir úrræðaleysi. 25.10.2024 18:00
Gagnlegt að sjá hvernig Sjálfstæðisflokkurinn umgengst völd Formaður VG segir vendingar í matvælaráðuneytinu og mögulegt leyfi til hvalveiða draga fram hvernig Sjálfstæðisflokkurinn umgangist völd þegar viðnámið sé lítið. Það hljómi sem brandari að líkja útgáfu hvalveiðileyfis við útgáfu ökuskírteinis, líkt og Jón Gunnarsson hafi gert. 25.10.2024 11:50