Árborg Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Ís er farinn að hrannast upp aftur í farvegi Ölfusár neðan og við Selfoss. Vegna stíflunnar er vatnshæð árinnar komin upp í fjóra metra og hefur ekki verið hærri síðan árið 2020. Innlent 29.11.2024 20:16 Óbreytt skólahald í Sunnulækjarskóla eftir helgi Nemendur í 5. til 10. bekk í Sunnulækjarskóla á Selfossi gátu ekki mætt í skólann í morgun vegna vatnsleka, sem varð á þeirra svæði í nótt. Slökkviliðið sá um hreinsunarstarf í morgun en reiknað er með að skólastarf verið með óbreyttu sniði eftir helgi. Innlent 29.11.2024 13:33 Um 173 milljónir króna á hvern fanga í nýju fangelsi á Stóra-Hrauni Kostnaður við byggingu nýs fangelsis í landi Stóra-Hrauns er áætlaður um sautján milljarðar króna. Fangelsið á að koma í stað Litla-Hrauns og geta hýst hundrað fanga með möguleika á að bæta við 28 afplánunarrýmum síðar. Innlent 29.11.2024 07:00 Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Mikill ís er í Ölfusá við Selfoss í kjölfar kuldatíðar síðustu daga, ekki síst við Selfosskirkju og Selfossbæina. Innlent 25.11.2024 14:32 Lyftistöng fyrir samfélagið Það er ekki á hverjum degi sem tvö stór framkvæmdaverkefni eru kynnt á svæðinu okkar á sama deginum. Hvað þá í sama sveitarfélaginu, en sá dagur var 20.nóvember þegar tekin var skóflustunga og framkvæmdaverkefni kynnt fyrir yfir 30 milljarða á næstu fjórum árum í Árborg. Skoðun 24.11.2024 13:17 Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira Mikil eftirspurn er eftir íbúðum á Suðurlandi og er verð á nýjum íbúðum í Ölfusi, Hveragerði og Árborg að nálgast sama verð og á nýjum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Í Árborg er nú tvö þúsund og fimm hundruð íbúðir í byggingu eða í deiliskipulagsferli og aðrar tvö þúsund íbúðir eru á teikniborðinu. Innlent 23.11.2024 15:03 Af skynsemi Vegagerðarinnar Ölfusárbrú sem kostar allt að fimm sinnum meira en góð klassísk brú er sögð skynsöm fjárfesting. Með síauknum þunga eru nú færð fyrir því rök í löngu máli - korter í kosnignar - að 18 milljarða verkið skuli hafið sem fyrst. Skoðun 23.11.2024 11:02 Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Mæðgurnar og eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi þær Ingunn Guðmundsdóttir og Þórdís Sólmundsdóttir hafa selt pylsuvagninn, sem stendur við Ölfusárbrú. Nýju eigendurnir eru þau Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Árborg og núverandi bæjarfulltrúi og Snorri Sigurðarson, athafnamaður. Þau taka við rekstrinum 1. janúar 2025. Kaupverð er trúnaðarmál. Viðskipti innlent 22.11.2024 14:59 Davíð Lúther og Linda selja sælureitinn með gullfiskum Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri veitinga- og afþreyingastaðarins Oche, og Linda Björk Hilmarsdóttir, markþjálfi og verslunareigandi, hafa sett sælureitinn sinn við Tjarnabyggð á Selfossi á sölu. Ásett verð er 117, 9 milljónir. Lífið 21.11.2024 09:03 Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2025 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag. Þar var ákveðið að lækka útsvarsprósentuna í 14,97 prósent og álagið afnumið. Frá þessu er greint í frétt á vef sveitarfélagsins. Viðskipti innlent 20.11.2024 22:53 Um 150 manns munu fá vinnu við smíði nýrrar Ölfusárbrúar Um 150 manns munu fá vinnu við smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá við Selfoss. Fyrsta skóflustungan af brúnni var tekin í dag. Ráðherra segir að veggjaldið yfir brúnna verði eins og verðið á einni kókflösku. Innlent 20.11.2024 22:03 Ein sleppur en mæðgurnar skulda tugi milljóna Dómur í umfangsmiklu skattalagabrotamáli á hendur þremur konum gekk í gær. Ein þeirra gat sýnt fram á að himinháar greiðslur frá spænskum auðjöfri hafi getað verið lán og var því sýknuð. Mæðgur gátu það hins vegar ekki og voru sektaðar um á sjönda tug milljóna. Innlent 20.11.2024 16:59 Fyrsta skóflustungan að nýrri Ölfusárbrú Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók fyrstu skóflustunguna að nýrri Ölfusárbrú í dag. Þá var undirritaður verktakasamningur í Golfskálanum á Selfossi. Innlent 20.11.2024 16:39 Ný Ölfusárbrú – skynsamlegt val fyrir framtíðina Í dag eru stór tímamót í sögu samgangna á Suðurlandi þegar fyrsta skóflustunga verður tekin að nýrri Ölfusárbrú sem mun bæta lífsgæði, auka umferðaröryggi og greiða fyrir flæði í einu af lykilsamgöngusvæðum landsins. Skoðun 20.11.2024 12:32 Fyrsta skóflustunga tekin þótt enn eigi eftir að hanna brúna Ein stærsta fréttin frá lokadegi Alþingis í dag er að smíði nýrrar Ölfusárbrúar var tryggð, verkefni sem áætlað er að kosti 17,9 milljarða króna. Skrifað verður undir verksamning á miðvikudag og drifið í að taka fyrstu skóflustungu, þótt enn eigi eftir að hanna brúna og langt sé í upphaf jarðsvegsvinnu. Innlent 18.11.2024 21:43 Braut bílrúðu með hnefanum og réðst á ökumanninn Karlmaður hefur hlotið 45 daga fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að fremja líkamsárás og eignaspjöll á Selfossi í september 2022. Innlent 18.11.2024 15:13 Fyrsta skóflustunga að Ölfusárbrú á miðvikudag Framkvæmdir við Ölfusárbrú geta hafist eftir að Alþingi samþykkti í dag nauðsynlega lagabreytingu sem tryggir grundvöll fyrir fjármögnun brúarinnar og vegtenginga. Undirbúningur verksins er kominn vel á veg. Innlent 18.11.2024 14:44 „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Fulltrúi nemenda í Fjölbrautarskóla Suðurlands segir þá ósátta við útfærslu Kennarasambandsins á verkfalli sinna félagsmanna. Skólinn hefur verið eini framhaldsskólinn í verkfalli hingað til. Nemendur sjá ekki fyrir sér að komast í skólann fyrir áramót. Innlent 17.11.2024 12:23 Lyfjapokar úr gömlum gardínum og borðdúkum á Selfossi Konur í Kvenfélagi Selfoss hafa haft í nógu að snúast síðustu vikurnar við saumavélarnar sínar því þær tóku að sér að sauma fjölnota lyfjapoka undir lyfjabox fyrir Apótek Suðurlands, allt úr endurunnu efni. Innlent 16.11.2024 14:05 Ný Ölfusárbrú – af hverju svona brú? Fáir efast um mikilvægi þess að byggja nýja brú yfir Ölfusá, vegna vaxandi umferðar og umferðartafa í gegnum Selfoss en ekki síður vegna ástands núverandi brúar sem orðin er tæplega 80 ára gömul og ekki hönnuð fyrir það umferðarálag sem á henni er nú. Skoðun 12.11.2024 17:16 Hrafnar opna lokaðan póstkassa eins og ekkert sé Nokkrir hrafnar hafa gert sér að leik að opna póstkassa á sveitabæ í Árborg og tekið öll gluggaumslögin í kassanum og rifið þau niður eða farið með þau eitthvað í burtu. Þeir neita þó að borga reikningana í umslögunum. Innlent 11.11.2024 20:05 Ekki púað á Snorra Ein mest lesna frétt fréttavefsins Mannlífs um þessar mundir er undir fyrirsögninni „Púað á Snorra“. Eitthvað er það málum blandið og við ritun og birtingu fréttarinnar gerði Reynir Traustason ritstjóri þau örmu mistök að upplýsa um heimildarmann sinn – í ógáti. Innlent 11.11.2024 14:51 Sterkar systur á Selfossi keppa á heimsmeistaramóti Þrjár systur á Selfossi slá ekki slöku við þessa dagana því þær eru að æfa sig á fullum krafti fyrir heimsmeistaramót í kraftlyftingum þar sem þær munu keppa fyrir Íslands hönd. Mamma þeirra er dugleg að fylgja þeim á æfingar og hvetja þær áfram. Innlent 10.11.2024 20:04 Um 60 kennarar hjá Fræðsluneti Suðurlands Um eitt þúsund og fimm hundruð manns sækja símenntun hjá Fræðsluneti Suðurlands á hverju ári en helmingur af þátttakendum eru erlendir íbúar búsettir á Suðurlandi. Fræðslunetið, sem fagnar nú tuttugu og fimm ára afmæli er með um sextíu kennara á sínum snærum. Innlent 9.11.2024 14:04 Verkfall kennara skollið á Kennarar í níu skólum víða um land hafa nú lagt niður störf. Um er að ræða fjóra leikskóla, þrjá grunnskóla, einn framhaldsskóla og einn tónlistarskóla. Búið er að samþykkja verkföll í fjórum skólum til viðbótar sem hefjast í nóvember. Innlent 29.10.2024 00:01 Gert ráð fyrir aðkomu ríkisins til viðbótar við brúargjöld Í bandorminum svokallaða, tekjufrumvarpi fjármálaráðherra fyrir næsta ár, er gert ráð fyrir að ríkissjóður gæti þurft að standa undir allt að helmingi kostnaðar við byggingu Ölfusárbrúar. Innlent 24.10.2024 09:22 Vill leiða Miðflokkinn í Suðurkjördæmi Tómas Ellert Tómasson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Árborg, sækist eftir oddvitasæti Miðflokksins í Suðurkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Innlent 19.10.2024 23:21 Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Dúfur og aftur dúfur er það sem lífið snýst meira og minna um hjá íbúa á Eyrarbakka, sem eyðir ófáum stundum á hverjum degi við að sinna fuglunum sínum enda unnið til óteljandi verðlauna með dúfurnar sínar. Dómaraflauta kemur við sögu í dúfnaræktuninni. Lífið 19.10.2024 21:04 Skora á Alþingi að axla ábyrgð og greiða fyrir nýrri Ölfusárbrú Héraðsnefnd Árnesinga skorar á Alþingi að axla ábyrgð og leysa úr þeim hnökrum sem upp hafa komið vegna fjármögnunar nýrrar brúar yfir Ölfusá. Innlent 17.10.2024 07:07 Bændur eru skilvísir með greiðslu lána sinna Bændur geta nú fengið 90% lán hjá Byggðastofnun og hefur það gert ungu fólki kleyft að hefja búskap. Á þessu ári er búið að samþykkja ellefu slík lán vegna kynslóðaskipta í sveitum landsins. Forstjóri Byggðastofnunar segir bændur mjög skilvísa lánveitendur. Innlent 13.10.2024 14:05 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 35 ›
Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Ís er farinn að hrannast upp aftur í farvegi Ölfusár neðan og við Selfoss. Vegna stíflunnar er vatnshæð árinnar komin upp í fjóra metra og hefur ekki verið hærri síðan árið 2020. Innlent 29.11.2024 20:16
Óbreytt skólahald í Sunnulækjarskóla eftir helgi Nemendur í 5. til 10. bekk í Sunnulækjarskóla á Selfossi gátu ekki mætt í skólann í morgun vegna vatnsleka, sem varð á þeirra svæði í nótt. Slökkviliðið sá um hreinsunarstarf í morgun en reiknað er með að skólastarf verið með óbreyttu sniði eftir helgi. Innlent 29.11.2024 13:33
Um 173 milljónir króna á hvern fanga í nýju fangelsi á Stóra-Hrauni Kostnaður við byggingu nýs fangelsis í landi Stóra-Hrauns er áætlaður um sautján milljarðar króna. Fangelsið á að koma í stað Litla-Hrauns og geta hýst hundrað fanga með möguleika á að bæta við 28 afplánunarrýmum síðar. Innlent 29.11.2024 07:00
Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Mikill ís er í Ölfusá við Selfoss í kjölfar kuldatíðar síðustu daga, ekki síst við Selfosskirkju og Selfossbæina. Innlent 25.11.2024 14:32
Lyftistöng fyrir samfélagið Það er ekki á hverjum degi sem tvö stór framkvæmdaverkefni eru kynnt á svæðinu okkar á sama deginum. Hvað þá í sama sveitarfélaginu, en sá dagur var 20.nóvember þegar tekin var skóflustunga og framkvæmdaverkefni kynnt fyrir yfir 30 milljarða á næstu fjórum árum í Árborg. Skoðun 24.11.2024 13:17
Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira Mikil eftirspurn er eftir íbúðum á Suðurlandi og er verð á nýjum íbúðum í Ölfusi, Hveragerði og Árborg að nálgast sama verð og á nýjum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Í Árborg er nú tvö þúsund og fimm hundruð íbúðir í byggingu eða í deiliskipulagsferli og aðrar tvö þúsund íbúðir eru á teikniborðinu. Innlent 23.11.2024 15:03
Af skynsemi Vegagerðarinnar Ölfusárbrú sem kostar allt að fimm sinnum meira en góð klassísk brú er sögð skynsöm fjárfesting. Með síauknum þunga eru nú færð fyrir því rök í löngu máli - korter í kosnignar - að 18 milljarða verkið skuli hafið sem fyrst. Skoðun 23.11.2024 11:02
Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Mæðgurnar og eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi þær Ingunn Guðmundsdóttir og Þórdís Sólmundsdóttir hafa selt pylsuvagninn, sem stendur við Ölfusárbrú. Nýju eigendurnir eru þau Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Árborg og núverandi bæjarfulltrúi og Snorri Sigurðarson, athafnamaður. Þau taka við rekstrinum 1. janúar 2025. Kaupverð er trúnaðarmál. Viðskipti innlent 22.11.2024 14:59
Davíð Lúther og Linda selja sælureitinn með gullfiskum Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri veitinga- og afþreyingastaðarins Oche, og Linda Björk Hilmarsdóttir, markþjálfi og verslunareigandi, hafa sett sælureitinn sinn við Tjarnabyggð á Selfossi á sölu. Ásett verð er 117, 9 milljónir. Lífið 21.11.2024 09:03
Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2025 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag. Þar var ákveðið að lækka útsvarsprósentuna í 14,97 prósent og álagið afnumið. Frá þessu er greint í frétt á vef sveitarfélagsins. Viðskipti innlent 20.11.2024 22:53
Um 150 manns munu fá vinnu við smíði nýrrar Ölfusárbrúar Um 150 manns munu fá vinnu við smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá við Selfoss. Fyrsta skóflustungan af brúnni var tekin í dag. Ráðherra segir að veggjaldið yfir brúnna verði eins og verðið á einni kókflösku. Innlent 20.11.2024 22:03
Ein sleppur en mæðgurnar skulda tugi milljóna Dómur í umfangsmiklu skattalagabrotamáli á hendur þremur konum gekk í gær. Ein þeirra gat sýnt fram á að himinháar greiðslur frá spænskum auðjöfri hafi getað verið lán og var því sýknuð. Mæðgur gátu það hins vegar ekki og voru sektaðar um á sjönda tug milljóna. Innlent 20.11.2024 16:59
Fyrsta skóflustungan að nýrri Ölfusárbrú Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók fyrstu skóflustunguna að nýrri Ölfusárbrú í dag. Þá var undirritaður verktakasamningur í Golfskálanum á Selfossi. Innlent 20.11.2024 16:39
Ný Ölfusárbrú – skynsamlegt val fyrir framtíðina Í dag eru stór tímamót í sögu samgangna á Suðurlandi þegar fyrsta skóflustunga verður tekin að nýrri Ölfusárbrú sem mun bæta lífsgæði, auka umferðaröryggi og greiða fyrir flæði í einu af lykilsamgöngusvæðum landsins. Skoðun 20.11.2024 12:32
Fyrsta skóflustunga tekin þótt enn eigi eftir að hanna brúna Ein stærsta fréttin frá lokadegi Alþingis í dag er að smíði nýrrar Ölfusárbrúar var tryggð, verkefni sem áætlað er að kosti 17,9 milljarða króna. Skrifað verður undir verksamning á miðvikudag og drifið í að taka fyrstu skóflustungu, þótt enn eigi eftir að hanna brúna og langt sé í upphaf jarðsvegsvinnu. Innlent 18.11.2024 21:43
Braut bílrúðu með hnefanum og réðst á ökumanninn Karlmaður hefur hlotið 45 daga fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að fremja líkamsárás og eignaspjöll á Selfossi í september 2022. Innlent 18.11.2024 15:13
Fyrsta skóflustunga að Ölfusárbrú á miðvikudag Framkvæmdir við Ölfusárbrú geta hafist eftir að Alþingi samþykkti í dag nauðsynlega lagabreytingu sem tryggir grundvöll fyrir fjármögnun brúarinnar og vegtenginga. Undirbúningur verksins er kominn vel á veg. Innlent 18.11.2024 14:44
„Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Fulltrúi nemenda í Fjölbrautarskóla Suðurlands segir þá ósátta við útfærslu Kennarasambandsins á verkfalli sinna félagsmanna. Skólinn hefur verið eini framhaldsskólinn í verkfalli hingað til. Nemendur sjá ekki fyrir sér að komast í skólann fyrir áramót. Innlent 17.11.2024 12:23
Lyfjapokar úr gömlum gardínum og borðdúkum á Selfossi Konur í Kvenfélagi Selfoss hafa haft í nógu að snúast síðustu vikurnar við saumavélarnar sínar því þær tóku að sér að sauma fjölnota lyfjapoka undir lyfjabox fyrir Apótek Suðurlands, allt úr endurunnu efni. Innlent 16.11.2024 14:05
Ný Ölfusárbrú – af hverju svona brú? Fáir efast um mikilvægi þess að byggja nýja brú yfir Ölfusá, vegna vaxandi umferðar og umferðartafa í gegnum Selfoss en ekki síður vegna ástands núverandi brúar sem orðin er tæplega 80 ára gömul og ekki hönnuð fyrir það umferðarálag sem á henni er nú. Skoðun 12.11.2024 17:16
Hrafnar opna lokaðan póstkassa eins og ekkert sé Nokkrir hrafnar hafa gert sér að leik að opna póstkassa á sveitabæ í Árborg og tekið öll gluggaumslögin í kassanum og rifið þau niður eða farið með þau eitthvað í burtu. Þeir neita þó að borga reikningana í umslögunum. Innlent 11.11.2024 20:05
Ekki púað á Snorra Ein mest lesna frétt fréttavefsins Mannlífs um þessar mundir er undir fyrirsögninni „Púað á Snorra“. Eitthvað er það málum blandið og við ritun og birtingu fréttarinnar gerði Reynir Traustason ritstjóri þau örmu mistök að upplýsa um heimildarmann sinn – í ógáti. Innlent 11.11.2024 14:51
Sterkar systur á Selfossi keppa á heimsmeistaramóti Þrjár systur á Selfossi slá ekki slöku við þessa dagana því þær eru að æfa sig á fullum krafti fyrir heimsmeistaramót í kraftlyftingum þar sem þær munu keppa fyrir Íslands hönd. Mamma þeirra er dugleg að fylgja þeim á æfingar og hvetja þær áfram. Innlent 10.11.2024 20:04
Um 60 kennarar hjá Fræðsluneti Suðurlands Um eitt þúsund og fimm hundruð manns sækja símenntun hjá Fræðsluneti Suðurlands á hverju ári en helmingur af þátttakendum eru erlendir íbúar búsettir á Suðurlandi. Fræðslunetið, sem fagnar nú tuttugu og fimm ára afmæli er með um sextíu kennara á sínum snærum. Innlent 9.11.2024 14:04
Verkfall kennara skollið á Kennarar í níu skólum víða um land hafa nú lagt niður störf. Um er að ræða fjóra leikskóla, þrjá grunnskóla, einn framhaldsskóla og einn tónlistarskóla. Búið er að samþykkja verkföll í fjórum skólum til viðbótar sem hefjast í nóvember. Innlent 29.10.2024 00:01
Gert ráð fyrir aðkomu ríkisins til viðbótar við brúargjöld Í bandorminum svokallaða, tekjufrumvarpi fjármálaráðherra fyrir næsta ár, er gert ráð fyrir að ríkissjóður gæti þurft að standa undir allt að helmingi kostnaðar við byggingu Ölfusárbrúar. Innlent 24.10.2024 09:22
Vill leiða Miðflokkinn í Suðurkjördæmi Tómas Ellert Tómasson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Árborg, sækist eftir oddvitasæti Miðflokksins í Suðurkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Innlent 19.10.2024 23:21
Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Dúfur og aftur dúfur er það sem lífið snýst meira og minna um hjá íbúa á Eyrarbakka, sem eyðir ófáum stundum á hverjum degi við að sinna fuglunum sínum enda unnið til óteljandi verðlauna með dúfurnar sínar. Dómaraflauta kemur við sögu í dúfnaræktuninni. Lífið 19.10.2024 21:04
Skora á Alþingi að axla ábyrgð og greiða fyrir nýrri Ölfusárbrú Héraðsnefnd Árnesinga skorar á Alþingi að axla ábyrgð og leysa úr þeim hnökrum sem upp hafa komið vegna fjármögnunar nýrrar brúar yfir Ölfusá. Innlent 17.10.2024 07:07
Bændur eru skilvísir með greiðslu lána sinna Bændur geta nú fengið 90% lán hjá Byggðastofnun og hefur það gert ungu fólki kleyft að hefja búskap. Á þessu ári er búið að samþykkja ellefu slík lán vegna kynslóðaskipta í sveitum landsins. Forstjóri Byggðastofnunar segir bændur mjög skilvísa lánveitendur. Innlent 13.10.2024 14:05