Viðskipti

Fréttamynd

Endurfjármögnun SÍF lokið

Um fimmtíu prósenta umframeftirspurn var eftir lánum við endurfjármögnun SÍF sem nú er formlega lokið, en umsjónarbankarnir KB banki og Bank of Scotland seldu hluta láns félagsins til sjö banka og fjögurra fjárfestingasjóða. Fram kemur í tilkynningu frá SÍF að 13 bankar og fjárfestingarsjóðir standi nú að sambankaláni SÍF og er heildarlánsfjárhæðin nú 262,4 milljónir evra en upphafleg lánsfjárhæð var 290 milljónir evra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ekki inn á Bandaríkjamarkað í vor

Skandinavíska flugfélagið Sterling, sem er í eigu þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, er ekki á leið inn á Bandaríkjamarkað í vor eins og kemur fram í dönskum fjölmiðlum í dag. Þá er félagið ekki að ráða til sín 400 manns eins og jafnframt hefur komið fram í fjölmiðlum þar í landi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Shoe Studio Group í Kauphöllina

Don McCarthy, forstjóri Shoe Studio Group, hefur áhuga á því að skrá félagið í Kauphöll Íslands næsta haust en þetta kom fram hjá Sunday Express. Shoe Studio rekur meðal annars tískuverslunarkeðjurnar Principles and Warehouse auk þess að reka skóverslanir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Töluverðar líkur á valdaskiptum

Töluverðar líkur er á að nýr meirihluti komist til valda í Íslandsbanka verði af fyrirhugaðri sölu Steinunnar Jónsdóttur á ríflega fjögurra prósenta hlut sínum í bankanum til hóps fjárfesta sem telst vinveittur hinum svokallaða Straumsarmi í bankanum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bankamenn óttast um störf sín

Bankamenn hafa áhyggjur af starfsöryggi sínu ef Straumur nær yfirráðum í Íslandsbanka og ítök Landsbankans aukast. Viðskiptafræðingur við Háskóla Íslands segir Landsbankann reyna að ná yfirráðum í bankanum í gegnum Straum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kaupþing skoðar SkandiaBanken

Kaupþing hefur á áhuga á að kaupa sænska netbankann SkandiaBanken, dótturfyrirtæki Skandia-fyrirtækisins. Frá þessu greinir í sænskum fjölmiðlum í dag. Aðspurður segir Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri peninga ekki vera vandamál hvað hugsanleg kaup varðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hallinn 12% af landsframleiðslu

Viðskiptahallinn í ár mun ná því að verða 12% af landsframleiðslu samkvæmt spá greiningardeildar Íslandsbanka en í gær birti Seðlabankinn tölur um viðskiptajöfnuðinn á síðasta ári og reyndist hann vera neikvæður um þrjátíu og einn milljarð króna samanborið við þrettán milljarða árið áður.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lykilstjórnendur fá lán

Íslandsbanki lánar lykilstjórnendum bankans rúma þrjá milljarða til að auka við hlut sinn í bankanum. Kaupverðið hefur enn ekki verið innt af hendi en bréfin hafa hækkað um fimmtíu milljónir frá því á mánudag þegar kaupin voru innsigluð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stýrivextir hækkaðir um 0,5%

Seðlabankinn hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,5% frá og með 7. júní nk. eða í 9,5%. Seðlabankinn hefur þá hækkað stýrivexti sína um 4,2% síðan í maí 2004.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Trúnaðarmál segir Bjarni

Það er trúnaðarmál hvernig stjórnendur Íslandsbanka fjármagna viðskipti sín með bréf í bankanum, segir forstjóri bankans. Bjarni Ármannsson segir að stjórnendum beri engin skylda til að upplýsa um fjármögnun viðskiptanna, hvorki nú né síðar, þar sem bankinn reiði ekki fram neina tryggingarvernd. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Valdahlutföll að breytast?

Steinunn Jónsdóttir, stjórnarmaður í Íslandsbanka, hefur samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu ákveðið að selja ríflega fjögurra prósenta hlut í bankanum. Líklegt er að það verði til hóps fjárfesta sem telst vinveittur Straumi og er samkomulag um þetta í burðarliðnum. Með því virðist sem valdahlutföll í bankanum muni breytast verulega.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Actavis setur tvö lyf á markað

Actavis Group hefur sett tvö ný samheitalyf á markað í níu Evrópulöndum í gegnum dótturfyrirtæki sitt, Medis. Um er að ræða taugalyfið Lamotrigine í tveimur lyfjaformum sem ætlað er til meðferðar við flogaveiki og til að fyrirbyggja geðsveiflur hjá sjúklingum með geðhvarfasjúkdóm.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Selur ríkisfyrirtækjum olíu

Nýjasta íslenska olíufélagið seldi sína fyrstu olíu í morgun. Það er fyrirtækið Íslensk olíumiðlun, sem er í eigu Íslendinga og dansks fyrirtækis, sem hefur sérhæft sig í þjónustu við skip á hafi úti. Íslensk olíumiðlun er með birgðastöð í Neskakupstað og er eingöngu í sölu olíu á skip. Fyrir nokkrum dögum voru tankar fyrirtækisins í Neskaupstað fylltir og fyrsti viðskiptavinurinn var afgreiddur í dag en það var hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vill sameina kauphallir í Lundúnum

Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, vill að kauphallir Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna sameinist kauphöllinni í Lundúnum. Þórður segir að með því náist mikil hagræðing.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Átök í vændum um Íslandsbanka

Átök eru í vændum um yfirráð í Íslandsbanka og talið víst að Straumur búi sig undir lokaslaginn. Þetta er mat viðmælenda fréttastofunnar í ljósi hlutafjárkaupa æðstu yfirstjórnenda bankans í gær.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

6,5 prósentum muni á stýrivöxtum

Stýrivextir hér á landi eru nú 9 prósent, eða 6,5 prósentustigum hærri en í helstu viðskiptalöndunum þar sem þeir eru að meðaltali 2,5 prósent. Þetta veldur því að vaxtamunur við útlönd er 6,5 prósent á skammtímalánum að því er fram kemur í <em>Vegvísi</em> Landsbankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Jón Helgi selur

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var það Jón Helgi Guðmundsson í BYKO sem seldi 240 milljónir hluta í Íslandsbanka til æðstu stjórnenda bankans í gær.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Spáir 3,8% verðbólgu á árinu

Greiningardeild KB banka telur að verðbólga á þessu ári verði 3,8 prósent og nái lágmarki í næsta mánuði, en þá verði 12 mánaða verðbólga 2,4 prósent. Eftir það mun aukin spenna á vinnumarkaði og lækkandi gengi krónunnar skapa aukinn verðbólguþrýsting.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaður SÍF tvöfaldaðist

Hagnaður SÍF, Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda, tvöfaldaðist á milli ára og nam rúmlega 220 milljónum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins. Í tilkynningu frá SÍF segir að góð söluaukning hafi orðið á öllum mörkuðum og framlegð aukist verulega.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kaupir 94,1% í Eimskip

Avion Group, sem Magnús Þorsteinsson er meirihlutaeigandi að, hefur keypt hlut Burðaráss í Eimskipafélaginu, alls 94,1 prósent. Kaupverðið er tuttugu og þrír milljarðar íslenskra króna en samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar stefnir Avion Group á að eignast allt félagið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þórólfur forstjóri Icelandic Group

Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri, var í gærkvöldi ráðinn forstjóri Icelandic Group sem er hið nýja heiti Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og Sjóvíkur. Þórólfur tekur við af Gunnari Svavarssyni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Útiloka ekki frekari fjárfestingar

Avion Group útilokar ekki frekari fjárfestingar í flutningastarfsemi, þótt fyrirtækið sé nýbúið að festa kaup á næstum öllum bréfum í sjálfu Eimskipafélaginu. Stefnt er að skráningu Avion Group í Kauphöll Íslands eigi síðar en 31. janúar á næsta ári.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

SH verður Icelandic Group

Samþykkt var á hluthafafundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna sem haldinn var á Nordica hóteli síðdegis að breyta nafni félagsins í Icelandic Group. Þetta er fyrsti fundurinn sem haldinn er eftir samruna SH og Sjóvíkur en hluthafar Sjóvíkur eignast þriðjung í hinu sameinaða fyrirtæki.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gengi krónunnar áfram hátt

Gengi krónunnar verður hátt áfram út þetta ár og á næsta ári samkvæmt Morgunkorni Íslandsbanka. Þá mun gengisvísitalan sveiflast á bilinu 105 til 115 stig það sem eftir er árs en nú stendur hún í 112,5 stigum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segir launakönnun ómarktæka

Það er óskynsamlegt og felur í sér sóun að mismuna í launum á grundvelli annars en hæfnis og framlags. Þetta segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann telur jafnframt að könnun Háskólans á Bifröst um launamun kynjanna sé ómarktæk.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Myndbandaleiga á Netinu

Fyrsta íslenska myndbandaleigan á Netinu hefur verið tekin í notkun. Um er að ræða nýjan afþreyingarvef þar sem hægt er að horfa á bíómyndir í gegnum Netið án endurgjalds.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Magnús fer úr Samson

Magnús Þorsteinsson hefur selt Björgólfsfeðgum hlut sinn í Samson eignarhaldsfélagi ehf. og Samson Holding. Félögin eiga hluti í Landsbankanum og Burðarási. Í tilkynningu um viðskiptin segir að Magnús hyggist einbeita sér að fjárfestingum í almennri flugstarfsemi og flugrekstri, er þar vísað til þess að hann er aðaleigandi Avion Group.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hyggst einbeita sér að flugrekstri

Magnús Þorsteinsson hefur ákveðið að selja eignarhluti sína í Samson eignarhaldsfélagi ehf. og Samson Holding. Félögin, sem fram til þessa hafa verið í eigu Magnúsar, Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, eiga hluti í Landsbanka Íslands og Burðarási.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Trúnaðarloforð réttlæti ekki lygi

Íþróttamenn, kaupsýslumenn, stjórnmálamenn, blaðamenn, - það er sama hvar gripið er niður, í öllum stéttum þjóðfélagsins má finna dæmi um menn sem reyna að ljúga sig úr vandræðum. Loforð um trúnað réttlætir þó ekki lygi, að mati siðfræðings á sviði viðskipta. Við skulum rifja upp nokkur dæmi um meinta ósannsögli sem fjallað hefur verið um opinberlega.

Viðskipti innlent