Erlent Tæp tvö hundruð létu lífið Sjö sprengjur sprungu í lestarkerfi Bombay (Mumbai), fjölmennustu borgar Indlands, í gær, sem ollu dauða á annað hundrað manns og særðu um 500 að sögn lögreglustjóra borgarinnar. Utanríkisráðherra kallar árásina „svívirðilegt hryðjuverk“. Erlent 11.7.2006 22:00 Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á sprengingunum í Mumbai Lögreglan á Indlandi leitar nú vísbendinga um hver hafi staðið á bak við árásirnar á lestakerfi Mumbai í gær. Erlent 12.7.2006 07:10 Segjast geta sýnt fram á svik Vinstrimaðurinn Andrés López Obrador ásakar nú alríkisembættismenn og saksóknara og telur að jafnvel dómarar hafi tekið þátt í kosningasvikum gegn sér fyrr í mánuðinum. Hann sýndi fréttamönnum í gær myndbandsupptöku af manni í Guanajuatofylki, sem var að troða atkvæðaseðlum í kjörkassa í síðustu kosningum. Erlent 11.7.2006 22:00 Einstein átti tíu ástkonur Margt nýtt hefur komið í ljós varðandi einkalíf Alberts Einstein eftir að Hebreski háskólinn í Jerúsalem hófst handa við að rannsaka gríðarstórt bréfasafn hans, en Einstein var einn af stofnendum skólans. Erlent 11.7.2006 22:00 Vildi sprengja hús ráðherra Danskur hægriöfgamaður og innflytjendaandstæðingur, Julius Børgesen, hefur verið handtekinn. Hann hafði hvatt til þess að heimili innanríkis- og heilbrigðisráðherra Danmerkur yrði sprengt með bensínsprengju. Erlent 11.7.2006 22:00 Samningarnir taka sinn tíma Ali Larijani, aðalsamningamaður Írans í kjarnorkumálum, sagði í gær að það myndi taka langan tíma að komast að samkomulagi í deilu Írans við Bandaríkin, Evrópusambandið, Rússland og fleiri ríki um áform Írana í kjarnorkumálum. Erlent 11.7.2006 22:00 Dúkkur hafa lækningarmátt Dúkkur og bangsar geta hjálpað Alzheimer-sjúklingum við að hafa samskipti við annað fólk. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem breskir vísindamenn gerðu á hjúkrunarheimili í Newcastle í Bretlandi, Alzheimer-sjúkdómurinn getur valdið því að fólk tapar vitrænum, félagslegum og tilfinningalegum hæfileikum sínum. Engin lækning er til við honum, en hann herjar helst á aldrað fólk. Erlent 11.7.2006 22:00 Fór óvænt til Afganistans Donald Rumsfeld varaforseti Bandaríkjanna er sannfærður um að sigur muni vinnast á talibönum. Fíkniefnaframleiðsla hefur blómstrað í Afganistan þrátt fyrir tilraunir til að draga úr henni. Erlent 11.7.2006 22:00 Sendiherra í áfengissvindli Erlent 11.7.2006 21:59 Refsiaðgerðum slegið á frest Fulltrúar Japana og fastameðlimir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna hafa komið sér saman um að fresta refsiaðgerðum þeim sem Kenzo Oshima, sendiherra Japans hjá Sameinuðu þjóðunum, lagði til að yrðu settar gegn Norður-Kóreu vegna eldflaugatilrauna þeirra, en refsiaðgerðirnar áttumeðal annars að kveða á um viðskiptabann á tæknitengdar vörur. Erlent 11.7.2006 22:00 Genfarsáttmáli verður virtur Erlent 11.7.2006 21:59 Appelsínubyltingin súrnar Ný ríkisstjórn er tekin við völdum í Úkraínu, sem kommúnistar og sósíalistar eiga sæti í, en hún er talin hliðholl valdhöfum í Rússlandi Erlent 11.7.2006 19:04 Sáðfrumur ræktaðar úr stofnfrumum Vísindamönnum hefur í fyrsta sinn tekist að rækta sáðfrumur úr stofnfrumum. Ekki er þó þar með sagt að ófrjósemi í körlum heyri héðan í frá sögunni til. Erlent 11.7.2006 19:01 Yfir 160 sagðir látnir Nú er talið öruggt að hryðjuverkamenn hafi valdið sprengingunum í járnbrautarlestum Múmbei-borgar í dag. Í það minnsta 160 eru sagðir látnir og tæplega fimm hundruð slasaðir í þessum verstu hermdarverkum borgarinnar í meira en áratug. Enn sem komið er hefur enginn lýst yfir ábyrgð á þeim. Erlent 11.7.2006 18:58 Haniyeh biðlar til alþjóðasamfélagsins Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, biðlaði í dag til alþjóðasamfélagsins um að koma að friðarumleitunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Óöld hefur geisað þar undanfarnar vikur sem kostað hefur tugir manna lífið og mun fleiri hafa særst. Erlent 11.7.2006 17:34 Slóvenar taka upp evruna Fjármálaráðherra Evrópusambandsins tilkynnti í dag að umsókn Slóveníu um að taka upp evru sem gjaldmiðil hafi verið samþykkt. Slóvenar verða þar með þrettánda þjóðin til að verða aðili að myntbandalagi Evrópu. Erlent 11.7.2006 17:21 Rumsfeld í heimsókn í Kabúl Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kom í óvænta heimsókn til Kabúl í Afganistan í morgun. Þar hitti hann Hamid Karzai, forseta landsins. Talið er að viðræður þeirra muni að mestu snúast um vaxandi andspyrnu talibana í suðurhluta Afganistan og um áform um að NATO taki við af hersveitum Bandaríkjamanna í suðurhlutanum á næstu vikum. Erlent 11.7.2006 15:23 Norræni fyrirtækjamarkaðurinn sambærilegur þeim breska Verslun með fyrirtæki blómstrar á Norðurlöndunum. Fréttaþjónustan Mergermarket gerði könnun á norræna fyrirtækjamarkaðnum sem fjallað var um í viðskiptablaðinu Börsen. Í könnuninni kemur fram að rúmlega 60% æðstu stjórnenda fyrirtækja á Norðurlöndum búast við því að umfang viðskipta með fyrirtæki eigi eftir að aukast á næstu árum. Þannig muni bæði fleiri fyrirtæki verða seld og fyrir meira fé. Viðskipti innlent 11.7.2006 15:06 Enginn pantaði risaþotu á árinu Viðskipti erlent 11.7.2006 13:56 Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ekki samstíga Erfiðlega gengur að samræma stefnu innan Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, um hvernig skuli brugðist við eldflaugatilraunum Norður-Kóreumanna. Kínverjar vilja ekki ganga eins langt og Japanar og Bandaríkjamenn innan ráðsins. Erlent 11.7.2006 12:26 Réttarhöldum yfir Saddam Hussein frestað Réttarhöldum yfir Saddam Hussein hefur verið frestað í um tvær vikur. Dómarinn í málinu ætlar að freista þess að reyna að fá Saddam og verjendur hans til að mæta á ný í réttarsal eftir að hafa hundsað réttarhöldin um skeið. Erlent 11.7.2006 09:54 Rumsfeld í heimsókn í Kabúl Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kom í óvænta heimsókn til Kabúl í Afganistan í morgun. Erlent 11.7.2006 08:14 Tveir menn slösuðust illa í nautahlaupinu í Pamplona Tveir menn liggja nú illa slasaðir á sjúkrahúsi eftir að hafa tekið þátt í nautahlaupi í Pamplona á Spáni. Þúsundir taka þátt í San Fermin hátíðinni og hlaupa undan nokkrum nautum niður götur borgarinnar. Erlent 10.7.2006 22:09 Tvíburar skipa tvær helstu valdastöður Póllands Eineggja tvíburar skipa nú embætti forseta og forsetisráðherra Póllands. Erlent 11.7.2006 07:24 Fundu Artemis í rústunum Fornleifafræðingar hafa greint frá fundi tvö þúsund ára gamallar styttu af Artemis, gyðju veiða, villidýra, frjósemi og tunglsins. Dóttir Seifs og Letóar og systir Appolóns er nú höfðinu styttri og útlimalaus, en þó áttatíu og tveggja sentimetra há. Hún fannst í bænum Lárissa í Þessalóníku, miðhluta Grikklands. Erlent 10.7.2006 22:09 Brú sprengd upp á Gaza svæðinu Ekkert virðist draga úr átökum á Gaza svæðinu. Í nótt sprengdi ísraelski herinn upp brú á norðurhluta Gaza svæðisins. Erlent 11.7.2006 07:20 Tillaga Japana um refsiaðgerðir ekki borin upp Tillaga Japana um refsiaðgerðir gegn Norður Kóreumönnum var ekki borin upp í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær. Erlent 11.7.2006 07:04 Aldrei fleiri arabískunemar Tvöfalt fleiri hafa sótt um arabískunám við Kaupmannahafnarháskóla í vetur en á síðasta ári. Telja ráðamenn að hér sé helst að þakka athygli fjölmiðla á deilum milli Austurlanda- og Vesturlandabúa undanfarið. Þetta kemur fram á fréttavef danska blaðsins Politiken í gær. Erlent 10.7.2006 22:09 Basajev deyr í næturárás Tsjetsjenskur uppreisnarleiðtogi var drepinn af rússneskum stjórnvöldum í næturáhlaupi. Rússlandsforseti kallar morðið réttláta hefnd fyrir Beslan-árásina. Erlent 10.7.2006 22:09 Skall til jarðar skömmu eftir flugtak Fjörutíu og fimm manns fórust með pakistanskri farþegaflugvél sem hrapaði til jarðar stuttu eftir flugtak frá flugvelli í borginni Multan í austurhluta Pakistans. Erlent 10.7.2006 22:09 « ‹ 312 313 314 315 316 317 318 319 320 … 334 ›
Tæp tvö hundruð létu lífið Sjö sprengjur sprungu í lestarkerfi Bombay (Mumbai), fjölmennustu borgar Indlands, í gær, sem ollu dauða á annað hundrað manns og særðu um 500 að sögn lögreglustjóra borgarinnar. Utanríkisráðherra kallar árásina „svívirðilegt hryðjuverk“. Erlent 11.7.2006 22:00
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á sprengingunum í Mumbai Lögreglan á Indlandi leitar nú vísbendinga um hver hafi staðið á bak við árásirnar á lestakerfi Mumbai í gær. Erlent 12.7.2006 07:10
Segjast geta sýnt fram á svik Vinstrimaðurinn Andrés López Obrador ásakar nú alríkisembættismenn og saksóknara og telur að jafnvel dómarar hafi tekið þátt í kosningasvikum gegn sér fyrr í mánuðinum. Hann sýndi fréttamönnum í gær myndbandsupptöku af manni í Guanajuatofylki, sem var að troða atkvæðaseðlum í kjörkassa í síðustu kosningum. Erlent 11.7.2006 22:00
Einstein átti tíu ástkonur Margt nýtt hefur komið í ljós varðandi einkalíf Alberts Einstein eftir að Hebreski háskólinn í Jerúsalem hófst handa við að rannsaka gríðarstórt bréfasafn hans, en Einstein var einn af stofnendum skólans. Erlent 11.7.2006 22:00
Vildi sprengja hús ráðherra Danskur hægriöfgamaður og innflytjendaandstæðingur, Julius Børgesen, hefur verið handtekinn. Hann hafði hvatt til þess að heimili innanríkis- og heilbrigðisráðherra Danmerkur yrði sprengt með bensínsprengju. Erlent 11.7.2006 22:00
Samningarnir taka sinn tíma Ali Larijani, aðalsamningamaður Írans í kjarnorkumálum, sagði í gær að það myndi taka langan tíma að komast að samkomulagi í deilu Írans við Bandaríkin, Evrópusambandið, Rússland og fleiri ríki um áform Írana í kjarnorkumálum. Erlent 11.7.2006 22:00
Dúkkur hafa lækningarmátt Dúkkur og bangsar geta hjálpað Alzheimer-sjúklingum við að hafa samskipti við annað fólk. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem breskir vísindamenn gerðu á hjúkrunarheimili í Newcastle í Bretlandi, Alzheimer-sjúkdómurinn getur valdið því að fólk tapar vitrænum, félagslegum og tilfinningalegum hæfileikum sínum. Engin lækning er til við honum, en hann herjar helst á aldrað fólk. Erlent 11.7.2006 22:00
Fór óvænt til Afganistans Donald Rumsfeld varaforseti Bandaríkjanna er sannfærður um að sigur muni vinnast á talibönum. Fíkniefnaframleiðsla hefur blómstrað í Afganistan þrátt fyrir tilraunir til að draga úr henni. Erlent 11.7.2006 22:00
Refsiaðgerðum slegið á frest Fulltrúar Japana og fastameðlimir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna hafa komið sér saman um að fresta refsiaðgerðum þeim sem Kenzo Oshima, sendiherra Japans hjá Sameinuðu þjóðunum, lagði til að yrðu settar gegn Norður-Kóreu vegna eldflaugatilrauna þeirra, en refsiaðgerðirnar áttumeðal annars að kveða á um viðskiptabann á tæknitengdar vörur. Erlent 11.7.2006 22:00
Appelsínubyltingin súrnar Ný ríkisstjórn er tekin við völdum í Úkraínu, sem kommúnistar og sósíalistar eiga sæti í, en hún er talin hliðholl valdhöfum í Rússlandi Erlent 11.7.2006 19:04
Sáðfrumur ræktaðar úr stofnfrumum Vísindamönnum hefur í fyrsta sinn tekist að rækta sáðfrumur úr stofnfrumum. Ekki er þó þar með sagt að ófrjósemi í körlum heyri héðan í frá sögunni til. Erlent 11.7.2006 19:01
Yfir 160 sagðir látnir Nú er talið öruggt að hryðjuverkamenn hafi valdið sprengingunum í járnbrautarlestum Múmbei-borgar í dag. Í það minnsta 160 eru sagðir látnir og tæplega fimm hundruð slasaðir í þessum verstu hermdarverkum borgarinnar í meira en áratug. Enn sem komið er hefur enginn lýst yfir ábyrgð á þeim. Erlent 11.7.2006 18:58
Haniyeh biðlar til alþjóðasamfélagsins Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, biðlaði í dag til alþjóðasamfélagsins um að koma að friðarumleitunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Óöld hefur geisað þar undanfarnar vikur sem kostað hefur tugir manna lífið og mun fleiri hafa særst. Erlent 11.7.2006 17:34
Slóvenar taka upp evruna Fjármálaráðherra Evrópusambandsins tilkynnti í dag að umsókn Slóveníu um að taka upp evru sem gjaldmiðil hafi verið samþykkt. Slóvenar verða þar með þrettánda þjóðin til að verða aðili að myntbandalagi Evrópu. Erlent 11.7.2006 17:21
Rumsfeld í heimsókn í Kabúl Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kom í óvænta heimsókn til Kabúl í Afganistan í morgun. Þar hitti hann Hamid Karzai, forseta landsins. Talið er að viðræður þeirra muni að mestu snúast um vaxandi andspyrnu talibana í suðurhluta Afganistan og um áform um að NATO taki við af hersveitum Bandaríkjamanna í suðurhlutanum á næstu vikum. Erlent 11.7.2006 15:23
Norræni fyrirtækjamarkaðurinn sambærilegur þeim breska Verslun með fyrirtæki blómstrar á Norðurlöndunum. Fréttaþjónustan Mergermarket gerði könnun á norræna fyrirtækjamarkaðnum sem fjallað var um í viðskiptablaðinu Börsen. Í könnuninni kemur fram að rúmlega 60% æðstu stjórnenda fyrirtækja á Norðurlöndum búast við því að umfang viðskipta með fyrirtæki eigi eftir að aukast á næstu árum. Þannig muni bæði fleiri fyrirtæki verða seld og fyrir meira fé. Viðskipti innlent 11.7.2006 15:06
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ekki samstíga Erfiðlega gengur að samræma stefnu innan Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, um hvernig skuli brugðist við eldflaugatilraunum Norður-Kóreumanna. Kínverjar vilja ekki ganga eins langt og Japanar og Bandaríkjamenn innan ráðsins. Erlent 11.7.2006 12:26
Réttarhöldum yfir Saddam Hussein frestað Réttarhöldum yfir Saddam Hussein hefur verið frestað í um tvær vikur. Dómarinn í málinu ætlar að freista þess að reyna að fá Saddam og verjendur hans til að mæta á ný í réttarsal eftir að hafa hundsað réttarhöldin um skeið. Erlent 11.7.2006 09:54
Rumsfeld í heimsókn í Kabúl Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kom í óvænta heimsókn til Kabúl í Afganistan í morgun. Erlent 11.7.2006 08:14
Tveir menn slösuðust illa í nautahlaupinu í Pamplona Tveir menn liggja nú illa slasaðir á sjúkrahúsi eftir að hafa tekið þátt í nautahlaupi í Pamplona á Spáni. Þúsundir taka þátt í San Fermin hátíðinni og hlaupa undan nokkrum nautum niður götur borgarinnar. Erlent 10.7.2006 22:09
Tvíburar skipa tvær helstu valdastöður Póllands Eineggja tvíburar skipa nú embætti forseta og forsetisráðherra Póllands. Erlent 11.7.2006 07:24
Fundu Artemis í rústunum Fornleifafræðingar hafa greint frá fundi tvö þúsund ára gamallar styttu af Artemis, gyðju veiða, villidýra, frjósemi og tunglsins. Dóttir Seifs og Letóar og systir Appolóns er nú höfðinu styttri og útlimalaus, en þó áttatíu og tveggja sentimetra há. Hún fannst í bænum Lárissa í Þessalóníku, miðhluta Grikklands. Erlent 10.7.2006 22:09
Brú sprengd upp á Gaza svæðinu Ekkert virðist draga úr átökum á Gaza svæðinu. Í nótt sprengdi ísraelski herinn upp brú á norðurhluta Gaza svæðisins. Erlent 11.7.2006 07:20
Tillaga Japana um refsiaðgerðir ekki borin upp Tillaga Japana um refsiaðgerðir gegn Norður Kóreumönnum var ekki borin upp í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær. Erlent 11.7.2006 07:04
Aldrei fleiri arabískunemar Tvöfalt fleiri hafa sótt um arabískunám við Kaupmannahafnarháskóla í vetur en á síðasta ári. Telja ráðamenn að hér sé helst að þakka athygli fjölmiðla á deilum milli Austurlanda- og Vesturlandabúa undanfarið. Þetta kemur fram á fréttavef danska blaðsins Politiken í gær. Erlent 10.7.2006 22:09
Basajev deyr í næturárás Tsjetsjenskur uppreisnarleiðtogi var drepinn af rússneskum stjórnvöldum í næturáhlaupi. Rússlandsforseti kallar morðið réttláta hefnd fyrir Beslan-árásina. Erlent 10.7.2006 22:09
Skall til jarðar skömmu eftir flugtak Fjörutíu og fimm manns fórust með pakistanskri farþegaflugvél sem hrapaði til jarðar stuttu eftir flugtak frá flugvelli í borginni Multan í austurhluta Pakistans. Erlent 10.7.2006 22:09