Lög og regla Grunur um misbeitingu Maður var handtekinn í Þorlákshöfn grunaður um innbrot í hesthús og um að hafa níðst kynferðislega á skepnunum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi tilkynntu hesthúsaeigendur um innbrotið og lýstu grunsemdum sínum. Innlent 13.10.2005 14:44 Klórgas til umræðu Leyfisveiting vegna klórgasframleiðslu til fyrirtækisins Mjallar-Friggjar hefur ekki enn verið tekin fyrir til afgreiðslu í bæjarstjórn Kópavogs. Málið kom þó til umræðu á síðasta fundi. Innlent 13.10.2005 14:44 Játaði sök sem burðardýr Rúmlega tvítugur maður frá Litháen var ákærður sem burðardýr í stóru kókaínmáli í gær. Han játaði sök. Innlent 13.10.2005 14:44 Grunaður um að níðast á hryssum Selfosslögreglan handtók í nótt mann á fertugsaldri í grennd við hesthúsahverfið í Þorlákshöfn, grunaðan um að hafa verið með kynferðislega tilburði við hryssur. Heimamenn hafa haft hann grunaðan um slíkt og vísuðu lögreglu á hann í nótt. Hann gat enga skýringu gefið lögreglu á ferðum sínum við hesthúsin og því var hann tekinn fastur. Innlent 13.10.2005 14:44 Stolið úr bílum Lögreglu bárust tilkynningar um innbrot í fimm bíla í Austurborg Reykjavíkur á mánudag. Fyrsta tilkynningin barst klukkan sjö um morguninn og svo tíndust hinar inn fram eftir degi. Í öllum tilvikum var stolið hljómtækjum og geisladiskum. Innlent 13.10.2005 14:44 Flóttamenn, fíkniefni og kjöt Frá áramótum hefur Tollgæslan á Seyðisfirði neitað 18 útlendingum um landvistarleyfi, ýmist samkvæmt úrskurði Útlendingastofnunar og lögreglustjóra, eða að skilríki hafa reynst vera fölsuð. Innlent 13.10.2005 14:44 Stal tölvum, peningum og farsímum Töluverðum verðmætum var stolið í þremur innbrotum í vesturbæ Kópavogs sem lögreglu barst tilkynning um á mánudagsmorgun. Brotist var inn á tvö heimili og eina bifreið og telur lögregla að sami einstaklingur hafi verið þar á ferð. Innlent 13.10.2005 14:44 Réðust átta á Friðrik Þór Friðrik Þór Friðriksson, kvikmyndaleikstjóri, varð fyrir alvarlegri líkamsárás á Ölstofu Kormáks og Skjaldar á föstudagskvöld. Friðrik segir átta manna hóp af misyndismönnum hafa komið á staðinn og barið sig. Innlent 13.10.2005 14:44 Stökk í sjóinn Flóttamaður stökk í sjóinn af Norrænu við Hjaltlandseyjar þegar ferjan var á leið til Noregs. Maðurinn komst ekki í land á Íslandi þar sem hann var með falsað vegabréf en hann fór um boð í skipið í Bergen í Noregi. Innlent 13.10.2005 14:44 Sluppu frá aurskriðum Nokkrir flúðu inn í svokallaða vegskála vegna aurskriða í Óshlíð milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur upp úr klukkan hálf átta í gærkvöld. Rigning og hvassviðri var á Ísafirði í allan gærdag. Innlent 13.10.2005 14:44 Ógnaði starfsstúlku með hnífi Maður vopnaður hnífi gerði tilraun til að ræna verslun í Austurbæ Reykjavíkur um klukkan fimm í gær. Innlent 13.10.2005 14:44 Rúðubrjótur ófundinn Lögreglan á Húsavík leitar nú logandi ljósi að skemmdarvargi sem á síðustu dögum hefur lagt í vana sinn að brjóta rúður í verslunum og fyrirtækjum í bænum. Innlent 13.10.2005 14:44 Farga og fela ólöglegt efni Aðgerðir lögreglu gegn tólf stjórnendum og stórum þátttakendum í hundrað manna hópi fólks sem skipst hefur á skemmtiefni á netinu, hafa valdið hræðslu innan hópsins. Margir hafa eytt efni út af tölvunum eða afritað það á diska og falið á öruggum stað. Innlent 13.10.2005 14:43 Tvennt slasaðist Hjón voru flutt á sjúkrahús eftir að jeppabifreið þeirra valt í Kelduhverfi á móts við bæinn Mörk, skammt frá Ásbyrgi, í gærdag. Innlent 13.10.2005 14:43 Leita að stolnum bíl Lögreglan í Keflavík leitar að dökkgráum Renault megane, með skráningarnúmerið AX-865, sem stolið var frá Vatnsnesvegi í Reykjanesbæ um klukkan hálf tvö í dag. Innlent 13.10.2005 14:43 Hálfsárs fangelsi Maður sem sló annan með bjórglasi í höfuðið á skemmtistaðnum Stapa í Keflavík í sumar, þannig að glasið brotnaði og af hlutust alvarlegir áverkar, var í gær dæmdur í sex mánaða fangelsi. Þar af voru þrír mánuðir skilorðsbundnir. Innlent 13.10.2005 14:43 Yfirheyrður í gær Ekki liggur fyrir játning manns sem lögreglan á Höfn í Hornafirði yfirheyrði í gær vegna innbrots og skemmdarverka í safnahúsi Austur-Skaftfellinga um síðustu helgi. Yfirheyrslum yfir manninum lauk síðdegis í gær. Innlent 13.10.2005 14:43 Valt niður grýtta urð Tvennt er alvarlega slasað eftir bílveltu niður bratta og stórgrýtta skriðu á Axarvegi á leið niður í Berufjörð um klukkan átta á fimmtudagskvöld. Fernt var í bílnum sem stöðvaðist um 40 metra frá veginum. Símasambandslaust er á þessum slóðum og gekk því fólkið slasað nokkra stund áður en bíl bar að. Innlent 13.10.2005 14:43 Hefur snúið við blaðinu Tuttugu og fjögurra ára gamall maður var dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til að smygla innvortis 138,4 grömmum af kókaíni. Maðurinn var gripinn í Leifsstöð 3. október í fyrra og þykir sýnt að efnið hafi að mestu verið ætlað til sölu. Innlent 13.10.2005 14:43 Brotist inn í skóla og íbúð Tilkynnt var um tvö innbrot í Reykjavík fyrri partinn í gær. Í fyrrinótt hafði verið brotist inn í Breiðholtsskóla með því að spenna upp glugga og þaðan stolið tölvu. Lögreglu var tilkynnt um innbrotið klukkan hálf tíu í gærmorgun. Þá var brotist inn í íbúðarhús í Austurborginni skömmu fyrir klukkan tíu. Innlent 13.10.2005 14:43 Með falsað vegabréf Maður frá Nígeríu sem stöðvaður var í Leifsstöð með fölsuð skilríki á miðvikudag bað um pólitískt hæli á fimmtudag þegar færa átti hann til dómara vegna fölsunarinnar. Innlent 13.10.2005 14:43 Rauð ljós auðkenna þyrluáhöfnina Starfsmenn í þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar hafa fengið rauð ljós í bíla sína til að auðvelda þeim að komast leiðar sinnar í umferðinni. Innlent 13.10.2005 14:43 Máli Hannesar vísað frá Máli Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um lögbann á efnismeðferð Siðanefndar Háskóla Íslands var vísað frá í Hæstarétti í gær. Innlent 13.10.2005 14:43 Krefst fjögurra ára fangelsis Sækjandi í sakamáli gegn Stefáni Loga Sívarssyni krafðist þess í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að hann yrði dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir sem hann er sakaður um að hafa framið á tveimur dögum í apríl. Innlent 13.10.2005 14:43 Lyfjum stolið úr togara Brotis var inn í togarann Sighvat Bjarnason VE í Vestmannaeyahöfn í nótt. Lögreglan í Eyjum fékk tilkynningu um þetta laust fyrir hádegi. Að sögn lögreglu braut þjófurinn upp lyfjakistu skipsins og hafði þaðan á brott pedidín sem er lyf skylt morfíni. Innlent 13.10.2005 14:43 Rauð blikkljós í bíla þyrlusveitar Starfsmenn í þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar hafa fengið rauð ljós í bíla sína til að auðvelda þeim að komast leiðar sinnar í umferðinni. Ljósin eru ekki eiginleg forgangsljós. Þau eiga hins vegar að auka öryggi og óska eftir tillitsemi annarra ökumanna. Þá auðvelda ljósin lögreglu að aðstoða þyrluáhafnir við að komast leiðar sinnar í neyðartilfellum. Innlent 13.10.2005 14:43 Morfíntengdum lyfjum stolið Brotist var inn í Sighvat Bjarnason VE-81 í Vestmannaeyjahöfn í fyrrinótt. Lyfjakista skipsins var brotin upp og þaðan stolið lyfjum, meðal annars lyfinu Petidín sem er morfíntengt. Innlent 13.10.2005 14:43 Ungur maður lífshættulega slasaður Ungur maður er lífshættulega slasaður eftir alvarlegt umferðarslys í Þrastarskógi síðdegis þegar tveir fólksbílar, sem komu úr gagnstæðum áttum, skullu saman. Í hinum bílnum voru kona og eins árs barn og eru þau minna slösuð að sögn lögreglunnar á Selfossi. Innlent 13.10.2005 14:43 Enn einn handtekinn Einn enn hefur verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við eitt stærsta fíkniefnamál síðustu ára. Maðurinn sem er um þrítugt var handtekinn í fyrradag og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald síðar sama dag. Innlent 13.10.2005 14:43 Leysti frá skjóðunni Einn höfuðpauranna í höfundarréttarstuldinum, sem lögregla hóf víðtæka rannsókn á í fyrrakvöld, ákvað í gærkvöldi að leysa frá skjóðunni til að komast hjá því að verða úrskurðaður í gæsluvarðhald. Var hann þá kominn ásamt lögreglumönnum í húsakynni Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem fjalla átti um kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald. Innlent 13.10.2005 14:43 « ‹ 115 116 117 118 119 120 … 120 ›
Grunur um misbeitingu Maður var handtekinn í Þorlákshöfn grunaður um innbrot í hesthús og um að hafa níðst kynferðislega á skepnunum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi tilkynntu hesthúsaeigendur um innbrotið og lýstu grunsemdum sínum. Innlent 13.10.2005 14:44
Klórgas til umræðu Leyfisveiting vegna klórgasframleiðslu til fyrirtækisins Mjallar-Friggjar hefur ekki enn verið tekin fyrir til afgreiðslu í bæjarstjórn Kópavogs. Málið kom þó til umræðu á síðasta fundi. Innlent 13.10.2005 14:44
Játaði sök sem burðardýr Rúmlega tvítugur maður frá Litháen var ákærður sem burðardýr í stóru kókaínmáli í gær. Han játaði sök. Innlent 13.10.2005 14:44
Grunaður um að níðast á hryssum Selfosslögreglan handtók í nótt mann á fertugsaldri í grennd við hesthúsahverfið í Þorlákshöfn, grunaðan um að hafa verið með kynferðislega tilburði við hryssur. Heimamenn hafa haft hann grunaðan um slíkt og vísuðu lögreglu á hann í nótt. Hann gat enga skýringu gefið lögreglu á ferðum sínum við hesthúsin og því var hann tekinn fastur. Innlent 13.10.2005 14:44
Stolið úr bílum Lögreglu bárust tilkynningar um innbrot í fimm bíla í Austurborg Reykjavíkur á mánudag. Fyrsta tilkynningin barst klukkan sjö um morguninn og svo tíndust hinar inn fram eftir degi. Í öllum tilvikum var stolið hljómtækjum og geisladiskum. Innlent 13.10.2005 14:44
Flóttamenn, fíkniefni og kjöt Frá áramótum hefur Tollgæslan á Seyðisfirði neitað 18 útlendingum um landvistarleyfi, ýmist samkvæmt úrskurði Útlendingastofnunar og lögreglustjóra, eða að skilríki hafa reynst vera fölsuð. Innlent 13.10.2005 14:44
Stal tölvum, peningum og farsímum Töluverðum verðmætum var stolið í þremur innbrotum í vesturbæ Kópavogs sem lögreglu barst tilkynning um á mánudagsmorgun. Brotist var inn á tvö heimili og eina bifreið og telur lögregla að sami einstaklingur hafi verið þar á ferð. Innlent 13.10.2005 14:44
Réðust átta á Friðrik Þór Friðrik Þór Friðriksson, kvikmyndaleikstjóri, varð fyrir alvarlegri líkamsárás á Ölstofu Kormáks og Skjaldar á föstudagskvöld. Friðrik segir átta manna hóp af misyndismönnum hafa komið á staðinn og barið sig. Innlent 13.10.2005 14:44
Stökk í sjóinn Flóttamaður stökk í sjóinn af Norrænu við Hjaltlandseyjar þegar ferjan var á leið til Noregs. Maðurinn komst ekki í land á Íslandi þar sem hann var með falsað vegabréf en hann fór um boð í skipið í Bergen í Noregi. Innlent 13.10.2005 14:44
Sluppu frá aurskriðum Nokkrir flúðu inn í svokallaða vegskála vegna aurskriða í Óshlíð milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur upp úr klukkan hálf átta í gærkvöld. Rigning og hvassviðri var á Ísafirði í allan gærdag. Innlent 13.10.2005 14:44
Ógnaði starfsstúlku með hnífi Maður vopnaður hnífi gerði tilraun til að ræna verslun í Austurbæ Reykjavíkur um klukkan fimm í gær. Innlent 13.10.2005 14:44
Rúðubrjótur ófundinn Lögreglan á Húsavík leitar nú logandi ljósi að skemmdarvargi sem á síðustu dögum hefur lagt í vana sinn að brjóta rúður í verslunum og fyrirtækjum í bænum. Innlent 13.10.2005 14:44
Farga og fela ólöglegt efni Aðgerðir lögreglu gegn tólf stjórnendum og stórum þátttakendum í hundrað manna hópi fólks sem skipst hefur á skemmtiefni á netinu, hafa valdið hræðslu innan hópsins. Margir hafa eytt efni út af tölvunum eða afritað það á diska og falið á öruggum stað. Innlent 13.10.2005 14:43
Tvennt slasaðist Hjón voru flutt á sjúkrahús eftir að jeppabifreið þeirra valt í Kelduhverfi á móts við bæinn Mörk, skammt frá Ásbyrgi, í gærdag. Innlent 13.10.2005 14:43
Leita að stolnum bíl Lögreglan í Keflavík leitar að dökkgráum Renault megane, með skráningarnúmerið AX-865, sem stolið var frá Vatnsnesvegi í Reykjanesbæ um klukkan hálf tvö í dag. Innlent 13.10.2005 14:43
Hálfsárs fangelsi Maður sem sló annan með bjórglasi í höfuðið á skemmtistaðnum Stapa í Keflavík í sumar, þannig að glasið brotnaði og af hlutust alvarlegir áverkar, var í gær dæmdur í sex mánaða fangelsi. Þar af voru þrír mánuðir skilorðsbundnir. Innlent 13.10.2005 14:43
Yfirheyrður í gær Ekki liggur fyrir játning manns sem lögreglan á Höfn í Hornafirði yfirheyrði í gær vegna innbrots og skemmdarverka í safnahúsi Austur-Skaftfellinga um síðustu helgi. Yfirheyrslum yfir manninum lauk síðdegis í gær. Innlent 13.10.2005 14:43
Valt niður grýtta urð Tvennt er alvarlega slasað eftir bílveltu niður bratta og stórgrýtta skriðu á Axarvegi á leið niður í Berufjörð um klukkan átta á fimmtudagskvöld. Fernt var í bílnum sem stöðvaðist um 40 metra frá veginum. Símasambandslaust er á þessum slóðum og gekk því fólkið slasað nokkra stund áður en bíl bar að. Innlent 13.10.2005 14:43
Hefur snúið við blaðinu Tuttugu og fjögurra ára gamall maður var dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til að smygla innvortis 138,4 grömmum af kókaíni. Maðurinn var gripinn í Leifsstöð 3. október í fyrra og þykir sýnt að efnið hafi að mestu verið ætlað til sölu. Innlent 13.10.2005 14:43
Brotist inn í skóla og íbúð Tilkynnt var um tvö innbrot í Reykjavík fyrri partinn í gær. Í fyrrinótt hafði verið brotist inn í Breiðholtsskóla með því að spenna upp glugga og þaðan stolið tölvu. Lögreglu var tilkynnt um innbrotið klukkan hálf tíu í gærmorgun. Þá var brotist inn í íbúðarhús í Austurborginni skömmu fyrir klukkan tíu. Innlent 13.10.2005 14:43
Með falsað vegabréf Maður frá Nígeríu sem stöðvaður var í Leifsstöð með fölsuð skilríki á miðvikudag bað um pólitískt hæli á fimmtudag þegar færa átti hann til dómara vegna fölsunarinnar. Innlent 13.10.2005 14:43
Rauð ljós auðkenna þyrluáhöfnina Starfsmenn í þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar hafa fengið rauð ljós í bíla sína til að auðvelda þeim að komast leiðar sinnar í umferðinni. Innlent 13.10.2005 14:43
Máli Hannesar vísað frá Máli Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um lögbann á efnismeðferð Siðanefndar Háskóla Íslands var vísað frá í Hæstarétti í gær. Innlent 13.10.2005 14:43
Krefst fjögurra ára fangelsis Sækjandi í sakamáli gegn Stefáni Loga Sívarssyni krafðist þess í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að hann yrði dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir sem hann er sakaður um að hafa framið á tveimur dögum í apríl. Innlent 13.10.2005 14:43
Lyfjum stolið úr togara Brotis var inn í togarann Sighvat Bjarnason VE í Vestmannaeyahöfn í nótt. Lögreglan í Eyjum fékk tilkynningu um þetta laust fyrir hádegi. Að sögn lögreglu braut þjófurinn upp lyfjakistu skipsins og hafði þaðan á brott pedidín sem er lyf skylt morfíni. Innlent 13.10.2005 14:43
Rauð blikkljós í bíla þyrlusveitar Starfsmenn í þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar hafa fengið rauð ljós í bíla sína til að auðvelda þeim að komast leiðar sinnar í umferðinni. Ljósin eru ekki eiginleg forgangsljós. Þau eiga hins vegar að auka öryggi og óska eftir tillitsemi annarra ökumanna. Þá auðvelda ljósin lögreglu að aðstoða þyrluáhafnir við að komast leiðar sinnar í neyðartilfellum. Innlent 13.10.2005 14:43
Morfíntengdum lyfjum stolið Brotist var inn í Sighvat Bjarnason VE-81 í Vestmannaeyjahöfn í fyrrinótt. Lyfjakista skipsins var brotin upp og þaðan stolið lyfjum, meðal annars lyfinu Petidín sem er morfíntengt. Innlent 13.10.2005 14:43
Ungur maður lífshættulega slasaður Ungur maður er lífshættulega slasaður eftir alvarlegt umferðarslys í Þrastarskógi síðdegis þegar tveir fólksbílar, sem komu úr gagnstæðum áttum, skullu saman. Í hinum bílnum voru kona og eins árs barn og eru þau minna slösuð að sögn lögreglunnar á Selfossi. Innlent 13.10.2005 14:43
Enn einn handtekinn Einn enn hefur verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við eitt stærsta fíkniefnamál síðustu ára. Maðurinn sem er um þrítugt var handtekinn í fyrradag og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald síðar sama dag. Innlent 13.10.2005 14:43
Leysti frá skjóðunni Einn höfuðpauranna í höfundarréttarstuldinum, sem lögregla hóf víðtæka rannsókn á í fyrrakvöld, ákvað í gærkvöldi að leysa frá skjóðunni til að komast hjá því að verða úrskurðaður í gæsluvarðhald. Var hann þá kominn ásamt lögreglumönnum í húsakynni Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem fjalla átti um kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald. Innlent 13.10.2005 14:43