Innlent Walesverjar rannsaka gjósku Rannsóknir á ösku frá Eyjafjallajökli eru nú stundaðar í Snowdon þjóðgarðinum í Wales sem dregur nafn sitt af hæsta fjalli landsins. Vísindamenn safna þar gras- og regnvatnssýnum í þeim tilgangi að meta umhverfisáhrif öskufallsins á svæðinu. Innlent 30.6.2010 22:49 Búnaður sem nýtist öllum æskilegastur Dómsmálaráðherra segir að huga þurfi að nauðsynlegum aðgerðum til að bæta öryggi lögreglumanna: Innlent 30.6.2010 22:47 Þingmenn Hreyfingarinnar fordæma Seðlabanka Íslands Þingmenn Hreyfingarinnar, þau Margrét Tryggvadóttur, Birgitta Jónsdóttur og Þór Saari, fordæma viðbrögð Seðlabanka, Fjármálaeftirlitsins og ríkisstjórnarinnar við dómi Hæstaréttar um gengistryggð lán; helstu lögspekingar landsins hafi sagt niðurstöðu Hæstaréttar skýra og gengistryggingin sé ólögleg og upphaflegir samningsvextir hljóti að standa. Innlent 30.6.2010 22:54 Glitnir kyrrsetur lúxusbíla Jóns Ásgeirs Glitnir fékk fyrir sex vikum kyrrsetningu á eignir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hér á landi. Krafa Glitnis á hendur Jóni Ásgeiri er sex milljarðar króna en umræddar eignir eru metnar á samtals 197 milljónir króna. Innlent 30.6.2010 22:48 Breytingar innanfrá betri en kynjakvóti Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti jafnréttisstefnu á landsfundi sínum um helgina. Hart var tekist á um stefnuna á fundinum og tók hún ýmsum breytingum. Innlent 30.6.2010 22:43 Rekstur innan fjárheimilda Ríkisendurskoðun segir heildarútgjöld A-hluta ríkissjóðs árið 2009 hafa verið 23 milljarða umfram fjárlög ársins, eða samtals 579 milljarða króna. Þrátt fyrir það hafi heildarútgjöldin verið tólf milljarða innan fjárheimilda ársins, sem námu 591 milljarði, en það skýrist af því að með fjáraukalögum bættust þrettán milljarðar við heimildir ársins auk þess sem 22 milljarðar voru fluttir frá fyrra ári. Viðskipti innlent 30.6.2010 22:48 Engin nekt eftir tólf Lög um bann við nektardans taka gildi á miðnætti. Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi Goldfinger, segist ætla að fylgja lögunum - líklega hlaupi hann upp á svið með lendarskýlu handa dansaranum þegar klukkan slær tólf. Innlent 30.6.2010 21:56 Sóðaskapur á Fimmvörðuhálsi Hálffull olíutunna mætti augum göngugarpsins Páls Ásgeirs Ásgeirssonar þegar hann gekk yfir Fimmvörðuháls í dag. Páll Ásgeir segir mengunarslys í uppsiglingu og lýsir vanþóknun á slíkum sóðaskap. Innlent 30.6.2010 21:08 Stjórn Rúv staðfestir ráðningu Sigrúnar Stjórn Rúv fundaði í gær um ákvörðun Páls Magnússonar að ráða Sigrúnu Stefánsdóttur dagskrárstjóra Rúv. Svanhildur Kaaber segir stjórn Rúv staðfesta ráðninguna en almenn skoðun stjórnarinnar sé að auglýsa stöður. Innlent 30.6.2010 20:32 Reglurnar skýrar en framkvæmdin ekki Enn er óvissa um hvort foreldrar stúlku, sem lenti í alvarlegu reiðhjólaslysi fyrir nokkrum árum, þurfi að greiða milljónir fyrir beinflutning og tannlækningar eftir slysið. Reglurnar eru alveg skýrar, segir forstjóri Sjúkratrygginga og heilbrigðisráðherra, en ekki er skýrt hvort afleiðingar slyssins falli undir reglurnar. Innlent 30.6.2010 18:59 Eignir Jóns Ásgeirs enn kyrrsettar Eignir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hér á landi hafa verið kyrrsettar þrátt fyrir að tollstjóri hafi dregið kyrrsetningarbeiðni sína til baka. Sýslumaður hefur samþykkt kyrrsetningarbeiðni Glitnis banka á hendur honum. Innlent 30.6.2010 18:38 Segja tilmæli Seðlabanka „sorgleg“ og „út í hött“ Talsmenn skuldara segja að Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn gangi erinda fjármála og fjármögnunarfyrirtækja með tilmælum sínum sem séu sorgleg og út í hött. Þeir hvetja lánþega til að greiða ekki. Forstjóri FME segir að greiðsla í samræmi við tilmælin feli ekki í sér samþykki á nýjum lánaskilmálum. Innlent 30.6.2010 18:33 Herjólfur lagður frá höfn Skemmdir á Herjólfi voru ekki eins alvarlegar og leit út í fyrstu. Herjólfur er lagður aftur frá höfn í seinni ferð sína til Þorlákshafnar. Innlent 30.6.2010 18:02 Herjólfur vélarvana Kafarar búa sig nú undir að kanna skemmdir á Herjólfi sem varð vélarvana í innsiglingunni við Vestmannaeyjar. Báturinn er fullhlaðinn fólki og bílum. Innlent 30.6.2010 17:21 Spássían yfir alla síðuna Sumarkiljurnar, játningar útrásarvíkinga og The Wire eru meðal umfjöllunarefna í Spássíunni, nýju tímariti um bókmenntir og listir. Lífið 29.6.2010 20:01 Skorar á þjófa að skila barnamyndum „Ég er búin að halda í vonina að löggan finni eitthvað, en það hefur ekki gerst,“ segir leikkonan Hrefna Hallgrímsdóttir, Skrítla úr Skoppu og Skrítlu. Brotist var inn í fjölskyldubílinn við heimili Hrefnu í Kópavogi á mánudaginn í síðustu viku. Á meðal þess sem var stolið var myndavél sem geymir myndir af síðasta hálfa ári í lífi fjölskyldunnar. Lífið 29.6.2010 19:59 Ólöf Jara leikur eiginkonu Buddy Holly í Austurbæ „Þetta leggst mjög vel í mig. Ég er mjög spennt fyrir sýningunni,“ segir Ólöf Jara Skagfjörð. Lífið 29.6.2010 20:02 Mannréttindi í stað útrásar Ég upplifi það þannig að útrásarvíkingarnir hafi troðið svo miklum skít yfir landið að efnahagskerfið hrundi. Upp úr því reis þjóðfélag mannréttinda í stað peningadýrkunar." Þetta sagði glöð og reif kona við mig á sunnudagskvöldið. Hún var kát vegna þess að hún hafði lifað sögulegan viðburð, sem og reyndar við öll. Hún varð, fyrr um daginn, jöfn á við þær konur sem frekar vilja sofa hjá karlmönnum. Sjálf er hún lesbísk. Bakþankar 29.6.2010 20:30 Öruggar strandveiðar Útkall –F2-Gulur – bátur vélarvana“ eða „Útkall –F2-Gulur – bátur dottinn út úr tilkynningaskyldu“ eru útköll sem björgunaraðilar hafa fengið í vaxandi mæli eftir að vora tók. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, skipa- og flugfloti Landhelgisgæslunnar sem og skip og bátar á viðkomandi svæðum fara þegar til aðstoðar eða leitar að viðkomandi bátum. Halda menn ekki aftur til hafnar fyrr en vandamálið hefur verið leyst og hafa þá margir tugir manna komið að lausn málanna hverju sinni. Björgunaraðilar á Íslandi hafa aldrei talið það eftir sér að fara til aðstoðar eða leitar og geta sjómenn þakkað það fórnfúsa starf sem allir þessir aðilar fara í hvenær sem kall berst. Skoðun 29.6.2010 20:15 Vituð ér enn… Menn þrætazt á um orsakir Hrunsins á Íslandi. Landsstjórnarmenn, sem aðalábyrgð bera, vísa gjarnan á heimskreppu í því sambandi og reyna með þeim hætti að villa um fyrir almenningi. Skoðun 29.6.2010 20:15 Nútímalegt Alþingi Alþingi, löggjafarvaldið, er ein mikilvægasta stofnun réttarríkisins. Starfshættir Alþingis hafa verið mjög til umræðu og skoðunar meðal almennings á síðustu misserum, sérlega í kjölfar bankahrunsins. Skoðun 29.6.2010 20:14 Taldi hraunmolann uppsprettu ógæfu Breskur ferðamaður hefur skilað aftur hraunmola sem hann tók héðan í leyfisleysi. Taldi molann uppsprettu allrar sinnar ógæfu. Molanum hefur verið skilað aftur og var flogið með þyrlu á gosstöðvarnar. Gömul þjóðtrú er tengd steinum. Innlent 29.6.2010 22:52 Græða almennir lántakendur? Ég myndi telja það afskaplega ósanngjarna niðurstöðu ef samningsvextirnir verða látnir standa.“ Fráleit niðurstaða að myntkörfulánasamningarnir standi óbreyttir án gengistryggingar.” Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra um hin ólögmætu gengistryggðu lán, 25. júní, 2010. Skoðun 29.6.2010 20:14 Draumur Vigdísar Fyrir þrjátíu árum kusu Íslendingar Vigdísi Finnbogadóttur til forseta, og sýndu með því eindæma víðsýni og sjálfstæði gagnvart hefðinni, sem verið hefur öðrum þjóðum fyrirmynd æ síðan. Við höfum gjarnan talið okkur stolta þjóð, hreykna af náttúru okkar og sögu, en flest það sem við erum stoltust af hlotnaðist okkur ekki fyrir eigin tilverknað. Sjálf hef ég gert mér grein fyrir því að sá gjörningur sem við Íslendingar höfum afrekað á minni fimmtíu ára ævi og ég er stoltust af er einmitt sú staðreynd að við kusum Vigdísi til forseta árið 1980. Skoðun 29.6.2010 20:15 Harmar umræðu um bíl Anna Skúladóttir, fjármálastjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hefur skilað lúxusbifreið þeirri sem hún fékk til umráða hjá fyrirtækinu. Í bréfi sem hún sendi starfsmönnum á innri vef fyrirtækisins kemur fram að bíllinn kostaði sjö milljónir króna. Innlent 29.6.2010 22:57 Ættleiðingar á eigin vegum til skoðunar Ragna Árnadóttir hefur óskað eftir skýrslu þar sem skoðað verður hvort leyfa eigi ættleiðingar án aðkomu félags. Skortur er á tækifærum til ættleiðingar. Innlent 29.6.2010 22:52 Ríkið tók of háar skuldir banka yfir Formaður viðskiptanefndar segir fullyrðingu AGS um of marga banka sýna að ríkið hafi tekið of háar skuldir yfir með bönkunum. Eignasafnið hafi verið á allt of háu verði. Hagfræðiprófessor segir að bönkunum muni fækka. Viðskipti innlent 29.6.2010 22:52 Alvarlega brenndur eftir slys Einn maður er alvarlega slasaður eftir sprengingu í Járnblendiverksmiðjunni Elkem á Grundartanga í gærkvöldi. Maðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi. Samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeildinni liggur maðurinn þar alvarlega slasaður og þungt haldinn. Innlent 29.6.2010 22:56 Töldu stjórnmálin vera kaup kaups Jón Sigurðsson segir félagasamtök hafa reynt að bjóða Framsóknarflokknum atkvæði fyrir greiða fyrir kosningar 2007. Flokkurinn hafi á þeim tíma verið lamaður af illdeilum og beri meðábyrgð á aðdraganda og forsendum hrunsins. Innlent 29.6.2010 22:53 Margir eiga von á þakkarbréfi Hvatningarátakið Til fyrirmyndar náði hámarki í gær. Þá safnaðist fjöldi fólks saman í Iðnó til þess að skrifa þakkarbréf til þeirra sem eru taldir hafa verið til fyrirmyndar. Innlent 29.6.2010 22:55 « ‹ 5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 334 ›
Walesverjar rannsaka gjósku Rannsóknir á ösku frá Eyjafjallajökli eru nú stundaðar í Snowdon þjóðgarðinum í Wales sem dregur nafn sitt af hæsta fjalli landsins. Vísindamenn safna þar gras- og regnvatnssýnum í þeim tilgangi að meta umhverfisáhrif öskufallsins á svæðinu. Innlent 30.6.2010 22:49
Búnaður sem nýtist öllum æskilegastur Dómsmálaráðherra segir að huga þurfi að nauðsynlegum aðgerðum til að bæta öryggi lögreglumanna: Innlent 30.6.2010 22:47
Þingmenn Hreyfingarinnar fordæma Seðlabanka Íslands Þingmenn Hreyfingarinnar, þau Margrét Tryggvadóttur, Birgitta Jónsdóttur og Þór Saari, fordæma viðbrögð Seðlabanka, Fjármálaeftirlitsins og ríkisstjórnarinnar við dómi Hæstaréttar um gengistryggð lán; helstu lögspekingar landsins hafi sagt niðurstöðu Hæstaréttar skýra og gengistryggingin sé ólögleg og upphaflegir samningsvextir hljóti að standa. Innlent 30.6.2010 22:54
Glitnir kyrrsetur lúxusbíla Jóns Ásgeirs Glitnir fékk fyrir sex vikum kyrrsetningu á eignir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hér á landi. Krafa Glitnis á hendur Jóni Ásgeiri er sex milljarðar króna en umræddar eignir eru metnar á samtals 197 milljónir króna. Innlent 30.6.2010 22:48
Breytingar innanfrá betri en kynjakvóti Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti jafnréttisstefnu á landsfundi sínum um helgina. Hart var tekist á um stefnuna á fundinum og tók hún ýmsum breytingum. Innlent 30.6.2010 22:43
Rekstur innan fjárheimilda Ríkisendurskoðun segir heildarútgjöld A-hluta ríkissjóðs árið 2009 hafa verið 23 milljarða umfram fjárlög ársins, eða samtals 579 milljarða króna. Þrátt fyrir það hafi heildarútgjöldin verið tólf milljarða innan fjárheimilda ársins, sem námu 591 milljarði, en það skýrist af því að með fjáraukalögum bættust þrettán milljarðar við heimildir ársins auk þess sem 22 milljarðar voru fluttir frá fyrra ári. Viðskipti innlent 30.6.2010 22:48
Engin nekt eftir tólf Lög um bann við nektardans taka gildi á miðnætti. Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi Goldfinger, segist ætla að fylgja lögunum - líklega hlaupi hann upp á svið með lendarskýlu handa dansaranum þegar klukkan slær tólf. Innlent 30.6.2010 21:56
Sóðaskapur á Fimmvörðuhálsi Hálffull olíutunna mætti augum göngugarpsins Páls Ásgeirs Ásgeirssonar þegar hann gekk yfir Fimmvörðuháls í dag. Páll Ásgeir segir mengunarslys í uppsiglingu og lýsir vanþóknun á slíkum sóðaskap. Innlent 30.6.2010 21:08
Stjórn Rúv staðfestir ráðningu Sigrúnar Stjórn Rúv fundaði í gær um ákvörðun Páls Magnússonar að ráða Sigrúnu Stefánsdóttur dagskrárstjóra Rúv. Svanhildur Kaaber segir stjórn Rúv staðfesta ráðninguna en almenn skoðun stjórnarinnar sé að auglýsa stöður. Innlent 30.6.2010 20:32
Reglurnar skýrar en framkvæmdin ekki Enn er óvissa um hvort foreldrar stúlku, sem lenti í alvarlegu reiðhjólaslysi fyrir nokkrum árum, þurfi að greiða milljónir fyrir beinflutning og tannlækningar eftir slysið. Reglurnar eru alveg skýrar, segir forstjóri Sjúkratrygginga og heilbrigðisráðherra, en ekki er skýrt hvort afleiðingar slyssins falli undir reglurnar. Innlent 30.6.2010 18:59
Eignir Jóns Ásgeirs enn kyrrsettar Eignir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hér á landi hafa verið kyrrsettar þrátt fyrir að tollstjóri hafi dregið kyrrsetningarbeiðni sína til baka. Sýslumaður hefur samþykkt kyrrsetningarbeiðni Glitnis banka á hendur honum. Innlent 30.6.2010 18:38
Segja tilmæli Seðlabanka „sorgleg“ og „út í hött“ Talsmenn skuldara segja að Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn gangi erinda fjármála og fjármögnunarfyrirtækja með tilmælum sínum sem séu sorgleg og út í hött. Þeir hvetja lánþega til að greiða ekki. Forstjóri FME segir að greiðsla í samræmi við tilmælin feli ekki í sér samþykki á nýjum lánaskilmálum. Innlent 30.6.2010 18:33
Herjólfur lagður frá höfn Skemmdir á Herjólfi voru ekki eins alvarlegar og leit út í fyrstu. Herjólfur er lagður aftur frá höfn í seinni ferð sína til Þorlákshafnar. Innlent 30.6.2010 18:02
Herjólfur vélarvana Kafarar búa sig nú undir að kanna skemmdir á Herjólfi sem varð vélarvana í innsiglingunni við Vestmannaeyjar. Báturinn er fullhlaðinn fólki og bílum. Innlent 30.6.2010 17:21
Spássían yfir alla síðuna Sumarkiljurnar, játningar útrásarvíkinga og The Wire eru meðal umfjöllunarefna í Spássíunni, nýju tímariti um bókmenntir og listir. Lífið 29.6.2010 20:01
Skorar á þjófa að skila barnamyndum „Ég er búin að halda í vonina að löggan finni eitthvað, en það hefur ekki gerst,“ segir leikkonan Hrefna Hallgrímsdóttir, Skrítla úr Skoppu og Skrítlu. Brotist var inn í fjölskyldubílinn við heimili Hrefnu í Kópavogi á mánudaginn í síðustu viku. Á meðal þess sem var stolið var myndavél sem geymir myndir af síðasta hálfa ári í lífi fjölskyldunnar. Lífið 29.6.2010 19:59
Ólöf Jara leikur eiginkonu Buddy Holly í Austurbæ „Þetta leggst mjög vel í mig. Ég er mjög spennt fyrir sýningunni,“ segir Ólöf Jara Skagfjörð. Lífið 29.6.2010 20:02
Mannréttindi í stað útrásar Ég upplifi það þannig að útrásarvíkingarnir hafi troðið svo miklum skít yfir landið að efnahagskerfið hrundi. Upp úr því reis þjóðfélag mannréttinda í stað peningadýrkunar." Þetta sagði glöð og reif kona við mig á sunnudagskvöldið. Hún var kát vegna þess að hún hafði lifað sögulegan viðburð, sem og reyndar við öll. Hún varð, fyrr um daginn, jöfn á við þær konur sem frekar vilja sofa hjá karlmönnum. Sjálf er hún lesbísk. Bakþankar 29.6.2010 20:30
Öruggar strandveiðar Útkall –F2-Gulur – bátur vélarvana“ eða „Útkall –F2-Gulur – bátur dottinn út úr tilkynningaskyldu“ eru útköll sem björgunaraðilar hafa fengið í vaxandi mæli eftir að vora tók. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, skipa- og flugfloti Landhelgisgæslunnar sem og skip og bátar á viðkomandi svæðum fara þegar til aðstoðar eða leitar að viðkomandi bátum. Halda menn ekki aftur til hafnar fyrr en vandamálið hefur verið leyst og hafa þá margir tugir manna komið að lausn málanna hverju sinni. Björgunaraðilar á Íslandi hafa aldrei talið það eftir sér að fara til aðstoðar eða leitar og geta sjómenn þakkað það fórnfúsa starf sem allir þessir aðilar fara í hvenær sem kall berst. Skoðun 29.6.2010 20:15
Vituð ér enn… Menn þrætazt á um orsakir Hrunsins á Íslandi. Landsstjórnarmenn, sem aðalábyrgð bera, vísa gjarnan á heimskreppu í því sambandi og reyna með þeim hætti að villa um fyrir almenningi. Skoðun 29.6.2010 20:15
Nútímalegt Alþingi Alþingi, löggjafarvaldið, er ein mikilvægasta stofnun réttarríkisins. Starfshættir Alþingis hafa verið mjög til umræðu og skoðunar meðal almennings á síðustu misserum, sérlega í kjölfar bankahrunsins. Skoðun 29.6.2010 20:14
Taldi hraunmolann uppsprettu ógæfu Breskur ferðamaður hefur skilað aftur hraunmola sem hann tók héðan í leyfisleysi. Taldi molann uppsprettu allrar sinnar ógæfu. Molanum hefur verið skilað aftur og var flogið með þyrlu á gosstöðvarnar. Gömul þjóðtrú er tengd steinum. Innlent 29.6.2010 22:52
Græða almennir lántakendur? Ég myndi telja það afskaplega ósanngjarna niðurstöðu ef samningsvextirnir verða látnir standa.“ Fráleit niðurstaða að myntkörfulánasamningarnir standi óbreyttir án gengistryggingar.” Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra um hin ólögmætu gengistryggðu lán, 25. júní, 2010. Skoðun 29.6.2010 20:14
Draumur Vigdísar Fyrir þrjátíu árum kusu Íslendingar Vigdísi Finnbogadóttur til forseta, og sýndu með því eindæma víðsýni og sjálfstæði gagnvart hefðinni, sem verið hefur öðrum þjóðum fyrirmynd æ síðan. Við höfum gjarnan talið okkur stolta þjóð, hreykna af náttúru okkar og sögu, en flest það sem við erum stoltust af hlotnaðist okkur ekki fyrir eigin tilverknað. Sjálf hef ég gert mér grein fyrir því að sá gjörningur sem við Íslendingar höfum afrekað á minni fimmtíu ára ævi og ég er stoltust af er einmitt sú staðreynd að við kusum Vigdísi til forseta árið 1980. Skoðun 29.6.2010 20:15
Harmar umræðu um bíl Anna Skúladóttir, fjármálastjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hefur skilað lúxusbifreið þeirri sem hún fékk til umráða hjá fyrirtækinu. Í bréfi sem hún sendi starfsmönnum á innri vef fyrirtækisins kemur fram að bíllinn kostaði sjö milljónir króna. Innlent 29.6.2010 22:57
Ættleiðingar á eigin vegum til skoðunar Ragna Árnadóttir hefur óskað eftir skýrslu þar sem skoðað verður hvort leyfa eigi ættleiðingar án aðkomu félags. Skortur er á tækifærum til ættleiðingar. Innlent 29.6.2010 22:52
Ríkið tók of háar skuldir banka yfir Formaður viðskiptanefndar segir fullyrðingu AGS um of marga banka sýna að ríkið hafi tekið of háar skuldir yfir með bönkunum. Eignasafnið hafi verið á allt of háu verði. Hagfræðiprófessor segir að bönkunum muni fækka. Viðskipti innlent 29.6.2010 22:52
Alvarlega brenndur eftir slys Einn maður er alvarlega slasaður eftir sprengingu í Járnblendiverksmiðjunni Elkem á Grundartanga í gærkvöldi. Maðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi. Samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeildinni liggur maðurinn þar alvarlega slasaður og þungt haldinn. Innlent 29.6.2010 22:56
Töldu stjórnmálin vera kaup kaups Jón Sigurðsson segir félagasamtök hafa reynt að bjóða Framsóknarflokknum atkvæði fyrir greiða fyrir kosningar 2007. Flokkurinn hafi á þeim tíma verið lamaður af illdeilum og beri meðábyrgð á aðdraganda og forsendum hrunsins. Innlent 29.6.2010 22:53
Margir eiga von á þakkarbréfi Hvatningarátakið Til fyrirmyndar náði hámarki í gær. Þá safnaðist fjöldi fólks saman í Iðnó til þess að skrifa þakkarbréf til þeirra sem eru taldir hafa verið til fyrirmyndar. Innlent 29.6.2010 22:55
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið