Íslenski handboltinn

Fréttamynd

Sorglegt tap gegn Króötum

Ég er afar ánægður og stoltur með strákana. Þeir léku frábærlega vel en því miður náðum við ekki að innbyrða stig sem við áttum sannarlega skilið," sagði Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U21 árs landsliðs Íslands við Fréttablaðið í Zagreb í gær eftir að Íslendingar töpuðu fyrir Króatíu, 2-1, í undankeppni HM.

Sport
Fréttamynd

U-21 árs liðið leikur við Holland

Á hádegi hófst leikur 21árs landsliðs Íslands og Hollands í handknattleik í Laugardalshöll en leikurinn er liður í undankeppni HM. Úrslitakeppnin fer fram í Ungverjalandi í ágúst næstkomandi. Ísland leikur á morgun við Úkraínu og á sunnudag við Austurríki. Allir leikirnir fara fram í Laugardalshöll.

Sport
Fréttamynd

Fimm marka sigur á Pólverjum

Landslið Íslands og Póllands í handknattleik mættust í dag í Laugardalshöll í fyrsta vináttuleik þjóðanna af þremur nú um páskana. Leikið var í Laugardalshöll. Ísland vann með 38 mörkum gegn 33 en staðan í hálfleik var 20-14 fyrir Ísland.

Sport
Fréttamynd

Einar og Birkir sáu um Pólverja

Íslenska landsliðið í handknattleik lék á alls oddi í sínum fyrsta heimaleik undir stjórn Viggós Sigurðssonar þegar það mætti Pólverjum í vináttulandsleik í gær. Fyrstu mínútur leiksins lofuðu ekkert sérstaklega góðu en svo datt íslenska liðið í gírinn svo um munaði. Það skildi Pólverja fljótlega eftir í rykinu og leit aldrei til baka

Sport
Fréttamynd

Pólverjar sigruðu HK naumlega

Pólska landsliðið í handknattleik, sem mætir Íslendingum í þremur vináttulandsleikjum í Laugardalshöll um helgina, sigraði HK í æfingaleik í Digranesi í gær með 34 mörkum gegn 33. Haukur Sigurvinsson var markahæstur í liði HK með 9 mörk og Elías Már Haraldsson skoraði 6.

Sport
Fréttamynd

Öruggur útisigur Ciudad Real

Ólafur Stefánsson skoraði fjögur mörk þegar Ciudad Real sigraði Cantabria 33-26 á útivelli í spænsku fyrstu deildinni í handknattleik í gærkvöldi. Ciudad Real er í þriðja sæti deildarinnar með 39 stig en Barcelona og Portland eru í tveimur efstu sætunum með 42 stig.

Sport
Fréttamynd

Róbert og Gísli atkvæðamiklir

Róbert Gunnarsson skoraði 8 mörk þegar Århus sigraði Ringsted 35-28 í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Gísli Kristjánsson skoraði 7 mörk og var markahæstur í liði Fredericia þegar liðið tapaði fyrir GOG 32-26 en Gísli hefur þótt leika vel í dönsku úrvalsdeildinni í vetur.

Sport
Fréttamynd

Peterson semur við Grosswallstadt

Alexander Peterson, leikmaður Düsseldorf og íslenska landsliðsins í handknattleik, hefur samið við úrvalsdeildarliðið Grosswallstadt til tveggja ára. Hann gengur til liðs við félagið í haust. Fyrir hjá Grosswallstadt eru Einar Hólmgeirsson og Snorri Steinn Guðjónsson en sá síðarnefndi hyggur á vistaskipti.

Sport
Fréttamynd

Æfingaleikir við Pólverja

Leikirnir við Pólverja eru liður í undirbúningi karlalandsliðsins fyrir umspilsleikina gegn Hvít-Rússum í sumar, þar sem leikið verður um sæti á EM í Sviss sem haldið verður í janúar á næsta ári.

Sport
Fréttamynd

Patrekur úr leik hjá Minden

Patrekur Jóhannesson, leikmaður Minden í Þýskalandi, leikur ekki meira með félaginu á þessari leiktíð vegna meiðsla. Patrekur hefur átt við meiðsli að stríða í hægra hné vegna brjóskeyðingar. Patrekur samdi við Minden til vors 2007 en þýskir fjölmiðlar greina frá því að félagið vilji gera starfslokasamning við Patrek.

Sport
Fréttamynd

Setja markið hátt

Íslenska U-21 árs liðið verður í eldlínunni um páskahelgina þegar það tekur þátt í undankeppni HM en riðillinn verður leikinn í Laugardalshöll.

Sport
Fréttamynd

Flensburg á toppinn í Þýskalandi

Flensburg tók í gær forystu í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik þegar liðið sigraði Fullingen á útivelli, 32-29. Flensburg er með 44 stig í fyrsta sæti en Kiel sem vermir annað sætið með 42 stig, en liðið á tvo leiki til góða.

Sport
Fréttamynd

Baldvin inn í landsliðið

Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari A - landsliðs karla í handknattleik hefur kallað Baldvin Þorsteinsson úr Val inn í landsliðið fyrir vináttulandsleiki gegn Póllandi nú um páskana. Baldvin kemur inn í hópinn í stað Loga Geirssonar en hann á við meiðsli að stríða.

Sport
Fréttamynd

Logi ekki með landsliðinu

Logi Geirsson, landliðsmaður í handknattleik, er meiddur á þumalfingri hægri handar og verður ekki með landsliðinu gegn Pólverjum um páskana. Logi gat ekki leikið með Lemgo gegn Magdeburg um helgina vegna meiðslanna.

Sport
Fréttamynd

Hafði hægt um sig gegn Valladolid

Ólafur Stefánsson skoraði fjögur mörk þegar Ciudad Real sigraði Valladolid 32-28 á útivelli í spænska handboltanum í gær. Mirza Dzomba var markahæstur hjá Ciudad með sjö mörk en liðið er núna í 4. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Portland og Barcelona sem eru með 40 stig.

Sport
Fréttamynd

Einar Örn í ham gegn Post Schwerin

Einar Örn Jónsson skoraði átta mörk þegar Wallau Massenheim vann Post Schwerin 39-31 í þýska handboltanum í gær. Alexander Peterson skoraði sex mörk þegar Düsseldorf sigraði Wetzlar 29-23. Róbert Sighvatsson skoraði fjögur fyrir Wetzlar. Jalesky Garcia skoraði fjögur mörk fyrir Göppingen sem tapaði fyrir Wilhelmshavener 24-23. Gylfi Gylfason skoraði eitt mark fyrir Wilhelmshavener.

Sport
Fréttamynd

Haukar tóku titilinn

Íslandsmeistarar Hauka tryggðu sér heimavallarrétt út úrslitakeppninni í dag þegar þeir tryggðu sér deildarmeistaratitilinn með góðum sigri á nýkrýndum bikarmeisturum ÍR, 31-29.

Sport
Fréttamynd

Haukastúlkur deildarmeistarar

Haukastúlkur tryggðu sér í dag deildarmeistaratitilinn í handbolta þegar þær rótburstuðu ÍBV í toppslag deildarinnar með 14 stiga mun, 35-21. Hanna G. Stefánsdóttir var markahæst Hauka með 10 mörk. Í átta liða úrslitum mætast Haukar og Fram, ÍBV-Víkingur, Stjarnan Grótta/KR og FH-Valur.

Sport
Fréttamynd

ÍBV pakkað saman

Það var aðeins eitt lið á vellinum þegar Haukar tóku á móti ÍBV í hreinum úrslitaleik um sigur í DHL-deild kvenna. Haukastúlkur tóku frumkvæðið strax í upphafi og gáfu það aldrei eftir. Þegar upp var staðið unnu Haukastúlkur stórsigur, 35-21, og var sigurinn síst of stór hjá Haukastúlkum

Sport
Fréttamynd

Rúnar hættur að þjálfa Eisenach

Þýski netmiðilinn <em>Handwall-World</em> greinir frá því í morgun að Rúnar Sigtryggsson hafi tilkynnt forráðamönnum Eisenach að hann sé hættur þjálfun liðsins. Eisenach vann Huttenberg 43-29 í gærkvöldi og er liðið í 5. sæti 2. deildar suður. Rúnar, sem einnig leikur með liðinu, tók við þjálfarastöðunni þegar Eisenach var í bullandi fallhættu

Sport
Fréttamynd

Heimavöllurinn mun reynast drjúgur

Fjórir hörkuleikir eru á dagskrá í kvöld og ljóst að mótanefnd HSÍ hefur unnið gott starf fyrir mótið með uppröðun sinni á leikjum.

Sport
Fréttamynd

Dreymdi mig símtalið við Viggó?

Þegar Viggó Sigurðsson tilkynnti landsliðshóp sinn fyrir vináttulandsleikina gegn Pólverjum um páskana brá einum handboltamanni mikið.

Sport
Fréttamynd

Fram í úrvalsdeildina

Fram lagði FH í hörkuspennandi leik, 22-21 í 1. deild karla í handbolta í kvöld og þar með efsta sætið í deildinni. Fram er þar með búið að landa sæ ti í úrvalsdeildinni. Jón Björgvin Pétursson var markahæstur Fram með 11 mörk og skoraði sigurmarkið 8 sekúndum fyrir leikslok. Tveir aðrir leikir fóru fram í deildinni í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Fram yfir gegn FH

Þrír leikir eru nú í gangi í 1. deild karla í handbolta en þeir hófust allir kl. 19.15. Fram er yfir gegn FH í hálfleik, 12-11 í toppslag deildarinnar en FH er efst með 15 stig og Fram með 14. Aðrar viðureignir í kvöld eru Stjörnunnar og Selfoss í Ágarði og Afturelding tekur á móti Gróttu/KR að Varmá.

Sport
Fréttamynd

Vilhjálmur í landsliðshópnum

Þau mistök urðu hjá HSI að Vilhjálmur Halldórsson, handknattleiksmaður úr Val, var ekki á leikmannalistanum sem tilkynntur var á blaðamannafundinum í gær. Vilhjálmur er því í hópnum sem mætir Póllandi þrisvar yfir páskana.

Sport
Fréttamynd

Snorri og Garcia fóru hamförum

Snorri Steinn Guðjónsson og Jaliesky Garcia, sem báðir hlutu náð fyrir augum Viggó Sigurðssonar landsliðsþjálfara í gær, fóru hamförum með félagsliðum sínum í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöld.

Sport
Fréttamynd

12 mörk Róberts dugðu ekki

Tólf mörk Róberts Gunnarssonar dugðu skammt fyrir Århus sem tapaði fyrir Frederica, 37-32, á heimavelli í gær. Gísli Kristjánsson skoraði sex mörk fyrir Frederica.

Sport