Box Þakklátur Guði fyrir hnefaleikana Íslandsmótið í hnefaleikum fer fram um helgina. Meðal keppenda er hinn 18 ára gamli Sigurjón Arnórsson sem lærði box af afa sínum, Matthíasi Matthíassyni, sem 81 árs að aldri er enn að æfa hnefaleika. Sport 20.4.2006 18:32 HBO ætlar að gera Hatton að stórstjörnu Ameríski kapalsjónvarpsrisinn HBO hefur lofað breska hnefaleikaranum Ricky Hatton að gera hann að stórstjörnu í Bandaríkjunum. Hatton hefur lengi dreymt um frægð og frama í Bandaríkjunum og nú hefur HBO lofað honum að gera hann jafn stóran þar í landi og hann er í heimalandinu. Hann berst við Luis Collazo í Bandaríkjunum þann 13. maí. Sport 12.4.2006 08:57 Mayweather vann Judah Heimsmeistarinn Floyd Mayweather tryggði stöðu sína sem einn allra besti boxari heims þegar hann sigraði Zab Judah á stigum í bardaga þeirra í Las Vegas í nótt. Mayweather var sannarlega betri í bardaganum og hirti IBF-beltið af Judah með sigrinum. Mayweather er ósigraður í 35 bardögum. Sport 9.4.2006 16:31 Mayweather mætir Judah Bardagi Floyd Mayweather og Zab Judah verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í nótt og hefst útsendingin klukkan eitt eftir miðnættið. Mayweather hefur aldrei tapað bardaga og ætlar sér að hirða IBF-beltið af Judah, en Mayweather er almennt álitinn besti hnefaleikari heims í dag, pund-fyrir-pund. Sport 8.4.2006 15:49 Hatton mætir Collazo Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton ætlar upp um einn þyngdarflokk þegar hann mætir bandaríska veltivigtarmeistaranum Luis Collazo í Boston þann 13. maí næstkomandi. Hatton er handhafi IBF og WBA meistaratitlanna í léttveltivigt, en ætlar nú að þyngja sig og leitast við að bæta við sig einum titli í viðbót á bandarískri grundu. Sport 23.3.2006 18:10 Rahman ætlar að ganga frá Toney WBC meistarinn í þungavigt, Hasim Rahman, segist muni ganga frá áskoranda sínum Andrew Toney þegar þeir mætast í hringnum í Atlantic City á laugardagskvöldið. Bardaginn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Sport 16.3.2006 18:06 Calzaghe og Lacy boxa í beinni í kvöld Áhugamenn um hnefaleika bíða spenntir eftir boxbardaga Walesverjans Joe Calzaghe og Bandaríkjamannsins Jeff Lacy. Þeir mætast í Manchester í kvöld um titil WBO og IBF heimssambandanna í léttmillivigt. Bardaginn byrjar laust eftir klukkan 11 í kvöld og hann verður sýndur beint á Sýn. Sport 4.3.2006 15:43 Mosley of mikið fyrir Vargas "Sugar" Shane Mosley hafði betur á tæknilegu rothöggi í 10. lotu í bardaga sínum við Fernando Vargas í Las Vegas í nótt, en bardaginn var sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Vargas sýndi hetjulega baráttu, en hann varð að játa sig sigraðan að hluta til vegna þess að vinstra auga hans var svo bólgið að hann sá ekki út um það. Sport 26.2.2006 08:05 Khan stefnir á titil á næsta ári Breska hnefaleikaundrið Amir Khan hefur sett stefnuna á titil í hnefaleikum um þetta leiti á næsta ári, en hann keppir aðeins sinn sjötta bardaga sem atvinnumaður á laugardaginn þegar hann mætir Jackson Williams í London. Sport 22.2.2006 17:53 Toney vill berjasti við Lewis Hnefaleikarinn James Toney segist þess fullviss að hann geti lokkað fyrrum heimsmeistarann Lennox Lewis til að taka hanskana fram að nýju til að berjast við sig ef hann nær að vinna Hasim Rahman í titilbardaga þeirra í næsta mánuði. Sport 14.2.2006 15:05 Mayweather með stórar yfirlýsingar Bandaríski hnefaleikarinn Floyd Mayweather er með skýr skilaboð til hins breska Ricky Hatton sem ætlar að hasla sér völl í Bandaríkjunum á næsu mánuðum. "Ef Hatton ætlar að berjast við mig, fer eins fyrir honum og Prinsinum á sínum tíma. Ef hann fer inn í hringinn með mér, verður hann laminn og kemur aldrei til Bandaríkjanna aftur," sagði Mayweather. Sport 10.2.2006 19:05 Khan mætir Williams í Norwich Nú hefur verið tilkynnt að næsti andstæðingur undrabarnsins Amir Khan verði Jackson Williams og munu þeir eigast við þann 25. febrúar næstkomandi í London. Bardagi þeirra verður háður á undan viðureign Danny Williams og Matt Skelton í þungavigt. Sport 7.2.2006 14:16 Khan rotaði Martynov á 75 sekúndum Vonarstjarna Breta í boxinu, unglingurinn Amir Khan, rotaði andstæðing sinn Vitali Martynov eftir aðeins 75 sekúndur í fimmta bardaga sínum sem atvinnumaður í Nottingham í gærkvöld. Þetta var fyrsti sex lotu bardagi Khan á ferlinum, en hann þurfti ekki nema eina til að ganga frá Hvít-Rússanum. Sport 29.1.2006 16:18 Gatti sigraði Damgaard Hnefaleikarinn Arturo Gatti þurfti að hafa mikið fyrir því að leggja hinn danska Thomas Damgaard í Atlantic City í nótt, en Gatty var dæmdur sigur í tíundu lotu í bardaga sem á tíðum var hrein og klár slagsmál. Damgaard sýndi mikla keppnishörku og tók við miklum barsmíðum, en þurfti að lokum að játa sig sigraðan í bardaganum, sem var í beinni útsendingu á Sýn í nótt. Sport 29.1.2006 15:46 Bardaga Castillo og Corrales frestað Þriðja bardaga þeirra Diego Corrales og Luis Castillo hefur verið frestað eftir að Corrales meiddist á æfingu á dögunum, en meiðsli hans munu þurfa nokkrar vikur til að jafna sig. Því verður ekki af því að þeir mætist aftur 4. febrúar eins og til stóð. Sport 18.1.2006 17:01 Hatton ætlar að berjast við þá stóru Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton hefur nú gefið út hverjir óskamótherjar hans séu fyrir árið 2006, en hann ætlar sér stóra hluti í Bandaríkjunum á árinu eftir að hafa mestmegnis barist við landa sína fram að þessu. Sport 18.1.2006 16:51 Óvíst með bardaga Hopkins og Jones Draumabardagi þeirra Bernard Hopkins og Roy Jones Jr gæti nú verið í hættu, því illa gengur að semja um peningahliðina á bardaganum, sem fyrirhugaður var þann 11. mars næstkomandi. Báðir hnefaleikarar mega að vísu muna fífil sinn fegurri, en þó var talið víst að húsfyllir yrði þegar þessir fyrrum kóngar í sínum þyngdarflokki mættust aftur í hringnum. Sport 13.1.2006 17:57 Keppir í fyrsta sinn við útlending Vonarstjarna breskra hnefaleika, hinn 19 ára gamli Amir Khan, keppir í fyrsta skipti við útlendan andstæðing á atvinnumannsferli sínum í Nottingham þann 28. janúar nk. Hann mun keppa við hinn 21 árs gamla Vitali Marynov, en Englendingar vonast til að Khan verði orðinn stórstjarna í hnefaleikaheiminum á næsta ári. Sport 13.1.2006 16:38 Líklegur til afreka á HM Kínverska snókerundrið Ding Junhui fór á kostum á HM í gær og er talinn líklegur til afreka. Sport 13.1.2006 09:46 Mayweather vill berjast við Hatton á árinu Þjálfari hnefaleikarans Floyd Mayweather segir að bardagi milli Mayweather og Ricky Hatton á árinu sé nú mjög raunhæfur möguleiki, ekki síst eftir að Zab Judah tapaði óvænt fyrir Carlos Baldomir á dögunum. Hatton hefur lengið viljað berjast í Bandaríkjunum til að verða sér út um meiri peninga og hróður á heimsvísu og nú lítur út fyrir að sá draumur gæti orðið að veruleika fljótlega. Sport 11.1.2006 14:44 Jones og Hopkins berjast aftur Hinir frábæru hnefaleikamenn Roy Jones Jr og Bernard Hopkins hafa samþykkt að mætast í hringnum í vor, en þeir félagar börðust síðast árið 1993. Þar hafði Roy Jones betur, en eftir það skildu leiðir og þeir urðu báðir óumdeildir meistarar í sinni þyngd í meira en áratug. Sport 26.12.2005 02:21 Drátturinn í Meistaradeildinni beint á NFS Í dag klukkan 11:00 verður dregið í 16 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Áhugasömum er bent á að hægt er að sjá dráttinn í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni NFS. Stöðinni er hægt að ná á rás 6 á Digital Ísland hjá 365 eða hér á Vísi VefTV. Sport 16.12.2005 09:45 Stjarnan í undanúrslit Stjarnan komst í kvöld í undanúrslit SS-bikarkeppninnar í handbolta þegar liðið lagði Þór á Akureyri, 28-30. Leikurinn var jafn og spennandi allt frá upphafi en Stjarnan leiddi með einu marki í leikhléi, 16-17. Sport 7.12.2005 23:32 Manchester United úr leik Manchester United er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir tap gegn Benfica í Portúgal. Paul Scholes kom United yfir á 6. mínútu en Geovanni og Beto skoruðu mörk Benfica. United hefði nægt jafntefli í leiknum þar sem Villarreal sigraði Lille en United var aldrei líklegt til að jafna í leiknum. Sport 7.12.2005 23:27 Jermaine Taylor er konungur millivigtarinnar Jermaine Taylor varði titil sinn sem óumdeildur meistari í millivigt hnefaleika í nótt þegar hann sigraði Bernard Hopkins öðru sinni síðan í júlí. Allir þrír dómararnir skoruðu bardagann 115-113 Taylor í vil og þó Hopkins hafi ekki verið sáttur við niðurstöðuna, var hún ótvíræð í þetta sinn eftir að úrslitin í fyrri bardaganum höfðu verið nokkuð loðin. Sport 4.12.2005 14:29 Hopkins ætlar að ganga frá Taylor "Böðullinn" Bernard Hopkins ætlar að setja á svið sýningu í kvöld þegar hann mætir Jermain Taylor öðru sinni í bardaga þar sem krýndur verður óumdeilanlegur konungur millivigtarinnar í hnefaleikum. Hopkins, sem hafði ekki tapað á ferlinum fyrr en hann tapaði fyrir Taylor, sagði að sigur mótherja síns hafi verið rán um hábjartan dag og ætlar að sýna það og sanna í kvöld að hann sé sá besti. Sport 3.12.2005 19:44 Berst ekki næsta hálfa árið Hnefaleikarinn Ricky Hatton mun ekki berjast næsta hálfa árið vegna ljótra skurða sem hann hlaut í bardaganum við Carlos Maussa um síðustu helgi. Hatton hafði mikla yfirburði í bardaganum en skarst mjög illa eftir að höfuð þeirra skullu saman og þurfi að fara á sjúkrahús til að láta gera að sárum sínum eftir bardagann. Sport 29.11.2005 18:51 Blóðugur sigur hjá Ricky Hatton Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton er heimsmeistari hjá IBF og WBC samböndunum eftir öruggan en blóðugan sigur gegn Carlos Maussa í Sheffield í nótt. Þrátt fyrir að hljóta ljóta skurði við bæði augu mjög snemma í bardaganum, var sigur Hatton aldrei í hættu og hann vann á rothöggi í níundu lotu. Sport 27.11.2005 14:05 Taylor er bara "gervimeistari" Hnefaleikarinn Bernard Hopkins, eða "Böðullinn" eins og hann er jafnan kallaður, segir að andstæðingur sinn Jermain Taylor sé ekkert annað en gervimeistari og ætlar að gersigra hann þegar þeir mætast í hringnum þann 3. desember næstkomandi. Sport 23.11.2005 16:47 Biður Klitschko afsökunar Hnefaleikafrömuðurinn umdeildi Don King hefur beðið Úkraínumanninn Vitali Klitschko afsökunar á miður fallegum orðum sem hann lét falla í garð Klitschkos í kjölfar þess að hann dró sig úr bardaganum gegn Hasim Rahman. Sömu meiðsli leiddu siðan til þess að Klitschko lagði hanskana á hilluna. Sport 22.11.2005 19:50 « ‹ 29 30 31 32 33 ›
Þakklátur Guði fyrir hnefaleikana Íslandsmótið í hnefaleikum fer fram um helgina. Meðal keppenda er hinn 18 ára gamli Sigurjón Arnórsson sem lærði box af afa sínum, Matthíasi Matthíassyni, sem 81 árs að aldri er enn að æfa hnefaleika. Sport 20.4.2006 18:32
HBO ætlar að gera Hatton að stórstjörnu Ameríski kapalsjónvarpsrisinn HBO hefur lofað breska hnefaleikaranum Ricky Hatton að gera hann að stórstjörnu í Bandaríkjunum. Hatton hefur lengi dreymt um frægð og frama í Bandaríkjunum og nú hefur HBO lofað honum að gera hann jafn stóran þar í landi og hann er í heimalandinu. Hann berst við Luis Collazo í Bandaríkjunum þann 13. maí. Sport 12.4.2006 08:57
Mayweather vann Judah Heimsmeistarinn Floyd Mayweather tryggði stöðu sína sem einn allra besti boxari heims þegar hann sigraði Zab Judah á stigum í bardaga þeirra í Las Vegas í nótt. Mayweather var sannarlega betri í bardaganum og hirti IBF-beltið af Judah með sigrinum. Mayweather er ósigraður í 35 bardögum. Sport 9.4.2006 16:31
Mayweather mætir Judah Bardagi Floyd Mayweather og Zab Judah verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í nótt og hefst útsendingin klukkan eitt eftir miðnættið. Mayweather hefur aldrei tapað bardaga og ætlar sér að hirða IBF-beltið af Judah, en Mayweather er almennt álitinn besti hnefaleikari heims í dag, pund-fyrir-pund. Sport 8.4.2006 15:49
Hatton mætir Collazo Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton ætlar upp um einn þyngdarflokk þegar hann mætir bandaríska veltivigtarmeistaranum Luis Collazo í Boston þann 13. maí næstkomandi. Hatton er handhafi IBF og WBA meistaratitlanna í léttveltivigt, en ætlar nú að þyngja sig og leitast við að bæta við sig einum titli í viðbót á bandarískri grundu. Sport 23.3.2006 18:10
Rahman ætlar að ganga frá Toney WBC meistarinn í þungavigt, Hasim Rahman, segist muni ganga frá áskoranda sínum Andrew Toney þegar þeir mætast í hringnum í Atlantic City á laugardagskvöldið. Bardaginn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Sport 16.3.2006 18:06
Calzaghe og Lacy boxa í beinni í kvöld Áhugamenn um hnefaleika bíða spenntir eftir boxbardaga Walesverjans Joe Calzaghe og Bandaríkjamannsins Jeff Lacy. Þeir mætast í Manchester í kvöld um titil WBO og IBF heimssambandanna í léttmillivigt. Bardaginn byrjar laust eftir klukkan 11 í kvöld og hann verður sýndur beint á Sýn. Sport 4.3.2006 15:43
Mosley of mikið fyrir Vargas "Sugar" Shane Mosley hafði betur á tæknilegu rothöggi í 10. lotu í bardaga sínum við Fernando Vargas í Las Vegas í nótt, en bardaginn var sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Vargas sýndi hetjulega baráttu, en hann varð að játa sig sigraðan að hluta til vegna þess að vinstra auga hans var svo bólgið að hann sá ekki út um það. Sport 26.2.2006 08:05
Khan stefnir á titil á næsta ári Breska hnefaleikaundrið Amir Khan hefur sett stefnuna á titil í hnefaleikum um þetta leiti á næsta ári, en hann keppir aðeins sinn sjötta bardaga sem atvinnumaður á laugardaginn þegar hann mætir Jackson Williams í London. Sport 22.2.2006 17:53
Toney vill berjasti við Lewis Hnefaleikarinn James Toney segist þess fullviss að hann geti lokkað fyrrum heimsmeistarann Lennox Lewis til að taka hanskana fram að nýju til að berjast við sig ef hann nær að vinna Hasim Rahman í titilbardaga þeirra í næsta mánuði. Sport 14.2.2006 15:05
Mayweather með stórar yfirlýsingar Bandaríski hnefaleikarinn Floyd Mayweather er með skýr skilaboð til hins breska Ricky Hatton sem ætlar að hasla sér völl í Bandaríkjunum á næsu mánuðum. "Ef Hatton ætlar að berjast við mig, fer eins fyrir honum og Prinsinum á sínum tíma. Ef hann fer inn í hringinn með mér, verður hann laminn og kemur aldrei til Bandaríkjanna aftur," sagði Mayweather. Sport 10.2.2006 19:05
Khan mætir Williams í Norwich Nú hefur verið tilkynnt að næsti andstæðingur undrabarnsins Amir Khan verði Jackson Williams og munu þeir eigast við þann 25. febrúar næstkomandi í London. Bardagi þeirra verður háður á undan viðureign Danny Williams og Matt Skelton í þungavigt. Sport 7.2.2006 14:16
Khan rotaði Martynov á 75 sekúndum Vonarstjarna Breta í boxinu, unglingurinn Amir Khan, rotaði andstæðing sinn Vitali Martynov eftir aðeins 75 sekúndur í fimmta bardaga sínum sem atvinnumaður í Nottingham í gærkvöld. Þetta var fyrsti sex lotu bardagi Khan á ferlinum, en hann þurfti ekki nema eina til að ganga frá Hvít-Rússanum. Sport 29.1.2006 16:18
Gatti sigraði Damgaard Hnefaleikarinn Arturo Gatti þurfti að hafa mikið fyrir því að leggja hinn danska Thomas Damgaard í Atlantic City í nótt, en Gatty var dæmdur sigur í tíundu lotu í bardaga sem á tíðum var hrein og klár slagsmál. Damgaard sýndi mikla keppnishörku og tók við miklum barsmíðum, en þurfti að lokum að játa sig sigraðan í bardaganum, sem var í beinni útsendingu á Sýn í nótt. Sport 29.1.2006 15:46
Bardaga Castillo og Corrales frestað Þriðja bardaga þeirra Diego Corrales og Luis Castillo hefur verið frestað eftir að Corrales meiddist á æfingu á dögunum, en meiðsli hans munu þurfa nokkrar vikur til að jafna sig. Því verður ekki af því að þeir mætist aftur 4. febrúar eins og til stóð. Sport 18.1.2006 17:01
Hatton ætlar að berjast við þá stóru Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton hefur nú gefið út hverjir óskamótherjar hans séu fyrir árið 2006, en hann ætlar sér stóra hluti í Bandaríkjunum á árinu eftir að hafa mestmegnis barist við landa sína fram að þessu. Sport 18.1.2006 16:51
Óvíst með bardaga Hopkins og Jones Draumabardagi þeirra Bernard Hopkins og Roy Jones Jr gæti nú verið í hættu, því illa gengur að semja um peningahliðina á bardaganum, sem fyrirhugaður var þann 11. mars næstkomandi. Báðir hnefaleikarar mega að vísu muna fífil sinn fegurri, en þó var talið víst að húsfyllir yrði þegar þessir fyrrum kóngar í sínum þyngdarflokki mættust aftur í hringnum. Sport 13.1.2006 17:57
Keppir í fyrsta sinn við útlending Vonarstjarna breskra hnefaleika, hinn 19 ára gamli Amir Khan, keppir í fyrsta skipti við útlendan andstæðing á atvinnumannsferli sínum í Nottingham þann 28. janúar nk. Hann mun keppa við hinn 21 árs gamla Vitali Marynov, en Englendingar vonast til að Khan verði orðinn stórstjarna í hnefaleikaheiminum á næsta ári. Sport 13.1.2006 16:38
Líklegur til afreka á HM Kínverska snókerundrið Ding Junhui fór á kostum á HM í gær og er talinn líklegur til afreka. Sport 13.1.2006 09:46
Mayweather vill berjast við Hatton á árinu Þjálfari hnefaleikarans Floyd Mayweather segir að bardagi milli Mayweather og Ricky Hatton á árinu sé nú mjög raunhæfur möguleiki, ekki síst eftir að Zab Judah tapaði óvænt fyrir Carlos Baldomir á dögunum. Hatton hefur lengið viljað berjast í Bandaríkjunum til að verða sér út um meiri peninga og hróður á heimsvísu og nú lítur út fyrir að sá draumur gæti orðið að veruleika fljótlega. Sport 11.1.2006 14:44
Jones og Hopkins berjast aftur Hinir frábæru hnefaleikamenn Roy Jones Jr og Bernard Hopkins hafa samþykkt að mætast í hringnum í vor, en þeir félagar börðust síðast árið 1993. Þar hafði Roy Jones betur, en eftir það skildu leiðir og þeir urðu báðir óumdeildir meistarar í sinni þyngd í meira en áratug. Sport 26.12.2005 02:21
Drátturinn í Meistaradeildinni beint á NFS Í dag klukkan 11:00 verður dregið í 16 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Áhugasömum er bent á að hægt er að sjá dráttinn í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni NFS. Stöðinni er hægt að ná á rás 6 á Digital Ísland hjá 365 eða hér á Vísi VefTV. Sport 16.12.2005 09:45
Stjarnan í undanúrslit Stjarnan komst í kvöld í undanúrslit SS-bikarkeppninnar í handbolta þegar liðið lagði Þór á Akureyri, 28-30. Leikurinn var jafn og spennandi allt frá upphafi en Stjarnan leiddi með einu marki í leikhléi, 16-17. Sport 7.12.2005 23:32
Manchester United úr leik Manchester United er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir tap gegn Benfica í Portúgal. Paul Scholes kom United yfir á 6. mínútu en Geovanni og Beto skoruðu mörk Benfica. United hefði nægt jafntefli í leiknum þar sem Villarreal sigraði Lille en United var aldrei líklegt til að jafna í leiknum. Sport 7.12.2005 23:27
Jermaine Taylor er konungur millivigtarinnar Jermaine Taylor varði titil sinn sem óumdeildur meistari í millivigt hnefaleika í nótt þegar hann sigraði Bernard Hopkins öðru sinni síðan í júlí. Allir þrír dómararnir skoruðu bardagann 115-113 Taylor í vil og þó Hopkins hafi ekki verið sáttur við niðurstöðuna, var hún ótvíræð í þetta sinn eftir að úrslitin í fyrri bardaganum höfðu verið nokkuð loðin. Sport 4.12.2005 14:29
Hopkins ætlar að ganga frá Taylor "Böðullinn" Bernard Hopkins ætlar að setja á svið sýningu í kvöld þegar hann mætir Jermain Taylor öðru sinni í bardaga þar sem krýndur verður óumdeilanlegur konungur millivigtarinnar í hnefaleikum. Hopkins, sem hafði ekki tapað á ferlinum fyrr en hann tapaði fyrir Taylor, sagði að sigur mótherja síns hafi verið rán um hábjartan dag og ætlar að sýna það og sanna í kvöld að hann sé sá besti. Sport 3.12.2005 19:44
Berst ekki næsta hálfa árið Hnefaleikarinn Ricky Hatton mun ekki berjast næsta hálfa árið vegna ljótra skurða sem hann hlaut í bardaganum við Carlos Maussa um síðustu helgi. Hatton hafði mikla yfirburði í bardaganum en skarst mjög illa eftir að höfuð þeirra skullu saman og þurfi að fara á sjúkrahús til að láta gera að sárum sínum eftir bardagann. Sport 29.11.2005 18:51
Blóðugur sigur hjá Ricky Hatton Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton er heimsmeistari hjá IBF og WBC samböndunum eftir öruggan en blóðugan sigur gegn Carlos Maussa í Sheffield í nótt. Þrátt fyrir að hljóta ljóta skurði við bæði augu mjög snemma í bardaganum, var sigur Hatton aldrei í hættu og hann vann á rothöggi í níundu lotu. Sport 27.11.2005 14:05
Taylor er bara "gervimeistari" Hnefaleikarinn Bernard Hopkins, eða "Böðullinn" eins og hann er jafnan kallaður, segir að andstæðingur sinn Jermain Taylor sé ekkert annað en gervimeistari og ætlar að gersigra hann þegar þeir mætast í hringnum þann 3. desember næstkomandi. Sport 23.11.2005 16:47
Biður Klitschko afsökunar Hnefaleikafrömuðurinn umdeildi Don King hefur beðið Úkraínumanninn Vitali Klitschko afsökunar á miður fallegum orðum sem hann lét falla í garð Klitschkos í kjölfar þess að hann dró sig úr bardaganum gegn Hasim Rahman. Sömu meiðsli leiddu siðan til þess að Klitschko lagði hanskana á hilluna. Sport 22.11.2005 19:50
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið