Ítalski boltinn Kaka þénar 530 milljónir á ári hjá Milan Brasilíski miðjumaðurinn Kaka hjá AC Milan er tekjuhæsti leikmaðurinn í A-deildinni á Ítalíu samkvæmt ítarlegri úttekt Gazetta dello Sport. Kaka halar inn 5,9 milljónir evra í árslaun hjá Milan eða um 530 milljónir króna. Francesco Totti hjá Roma kemur næstur með 5,46 milljónir evra og þeir Zlatan Ibrahimovic, Adriano, Gianluigi Buffon og Patrick Vieira þéna allir 5 milljónir evra á ári eða 450 milljónir. Fótbolti 12.9.2007 11:52 Öll spjót beinast að Donadoni Roberto Donadoni, landsliðsþjálfari Ítalíu, segist ekki finna fyrir neitt meiri pressu en venjulega fyrir leikinn gegn Úkraínu á miðvikudag. Ítalska landsliðið þarf nauðsynlega á sigri að halda. Fótbolti 11.9.2007 21:35 Shevchenko varar Ítali við Sóknarmaðurinn Andriy Shevchenko segir að ítalska landsliðið geti búist við erfiðum leik á miðvikudag gegn Úkraínu. Þrátt fyrir að Shevchenko sé úti í kuldanum hjá Chelsea þáspilar hann með úkraínska landsliðinu. Fótbolti 10.9.2007 18:39 Ronaldo á langt í land Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá AC Milan getur ekki leikið með liði sínu á næstunni eftir að læknar í heimalandi hans komust að því að meiðsli hans eru alvarlegri en talið var í fyrstu. Ronaldo hefur ekkert komið við sögu hjá liði Milan í upphafi leiktíðar og verður væntanlega frá keppni næsta mánuðinn eða svo. Fótbolti 10.9.2007 09:39 Meiðsli herja á ítalska liðið Líkur eru á að Andrea Pirlo, miðjumaður AC Milan, muni missa af landsleik Ítalíu gegn Úkraínu á miðvikudag. Áður var ljóst að Marco Materazzi, Luca Toni og Gennaro Gattuso verða ekk með í leiknum en sá síðastnefndi tekur út leikbann. Fótbolti 9.9.2007 10:46 Jafnt hjá Ítalíu og Frakklandi Ekkert var skorað í viðureign Ítalíu og Frakklands í B-riðli undankeppni Evrópumótsins. Þessi tvö lið mættust í úrslitaleik síðustu heimsmeistarakeppni þar sem Ítalía fór með sigur af hólmi í vítaspyrnukeppni. Liðin skildu hinsvegar jöfn í kvöld. Fótbolti 8.9.2007 21:25 Ég er enginn Maradona Argentínskir fótboltamenn geta vart sparkað bolta í Evrópu án þess að byrjað sé að bera þá saman við kónginn sjálfan, Diego Maradona. Þessu hefur Ezequiel Lavezzi, leikmaður Napoli, fengið að kynnast en hann er ekki ánægður með samanburðinn. Fótbolti 7.9.2007 18:01 Julio Cruz framlengir við Inter Julio Cruz, sóknarmaður Inter, hefur framlengt samningi sínum við liðið til 2009. Þessi 32 ára leikmaður skoraði sjö mörk í fimmtán leikjum á síðasta leiktímabili en hann átti við meiðsli að stríða. Fótbolti 7.9.2007 17:44 Reglurnar hertar á Ítalíu Ítölsk knattspyrnuyfirvöld tilkynntu í dag að leikmenn eða þjálfarar liða í deildarkeppnum í landinu fengju heimaleikjabann rétt eins og óþekkir stuðningsmenn ef þeir gerðust sekir um ofbeldisfulla hegðun. Leikmenn fara venju samkvæmt í leikbönn ef þeir fá rauð spjöld, en hafa til þessa fengið að fylgjast með leikjunum úr áhorfendastúkum þrátt fyrir leikbönn. Þessir menn verða nú að láta sér það nægja að fylgjast með liðum sínum í sjónvarpi. Fótbolti 6.9.2007 15:14 Deilt um Vieira Landsliðsþjálfarar og þjálfarar félagsliða eru ekki bestu vinir um þessar mundir enda landsleikjahelgi framundan. Franska knattspyrnusambandið og ítalska liðið Inter deila nú um hvort Patrick Vieira sé leikfær um helgina. Fótbolti 5.9.2007 18:23 Dunga: Adriano þarf að þroskast Carlos Dunga, landsliðsþjálfari Brasilíu, hefur biðlað því til brasilíska sóknarmannsins Adriano að hann fari beinu brautina og finni sitt gamla form. Adriano hefur verið að berjast við vandræði í einkalífinu og hafa þau haft áhrif á frammistöðu hans á vellinum. Fótbolti 5.9.2007 17:47 Lið í Serie-B hóta verkfalli Lið í Serie-B deildinni á Ítalíu hóta því að fara í verkfall ef samningar munu ekki nást um sjónvarpsréttinn á deildinni. Ekki er sýnt frá næstefstu deild Ítalíu í sjónvarpi þar á landi eftir að félögin neituðu tilboði frá ítölsku Sky sjónvarpsstöðinni. Fótbolti 4.9.2007 19:31 Adriano á ekki sjö dagana sæla Brasilíski sóknarmaðurinn Adriano er úti í kuldanum hjá Ítalíumeisturum Inter. Þessi stóri og stæðilegi leikmaður var ekki valinn í leikmannahóp Inter fyrir Meistaradeild Evrópu og mun að öllum líkindum skipta um lið í janúar. Fótbolti 3.9.2007 18:24 Jafnt hjá Milan og Fiorentina AC Milan og Fiorentina gerðu 1-1 jafntefli í ítölsku Serie-A deildinni í dag. Brasilímaðurinn Kaka kom heimamönnum yfir með marki úr vítaspyrnu en Adrian Mutu jafnaði metin í seinni hálfleik og þar við sat. Fótbolti 3.9.2007 18:08 Þjálfari Catania missti stjórn á skapi sínu Það þurfti að draga þjálfara ítalska liðsins Catania, Silvio Baldini, í burtu þegar lið hans gerði 2-2 jafntefli gegn Parma. Fimm mínútum fyrir leikslok fékk Baldini brottvísun frá dómara leiksins en áður en hann fór í burtu sparkaði hann að þjálfara Parma. Fótbolti 26.8.2007 16:06 Emil í byrjunarliði Reggina Íslenski landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Reggina sem gerði 1-1 jafntefli gegn Atalanta í dag. Þetta var fyrsti leikur Reggina í deildinni en Emil var tekinn af velli á 69. mínútu leiksins. Fótbolti 26.8.2007 15:59 Meistararnir byrja á jafntefli Sjö leikir fóru fram í fyrstu umferð ítölsku Serie-A deildarinnar í dag. Ítalíumeistararnir í Inter hefja tímabilið á jafntefli gegn Udinese 1-1 á heimavelli þar sem Dejan Stankovic kom Inter yfir en Udinese jafnaði í lok leiksins. Fótbolti 26.8.2007 14:38 Juventus byrjar með glans Keppni er hafin á Ítalíu en augu flestra beindust að viðureign Juventus og Livorno. Juventus er komið aftur í Serie-A eftir árs veru í B-deildinni. Liðið gerði sér lítið fyrir og vann Livorno 5-1 þar sem David Trezeguet skoraði þrennu. Fótbolti 25.8.2007 20:22 Endurkoma Juventus í kvöld Keppni í efstu deildinni á Ítalíu hefst í kvöld með tveimur leikjum. Margir bíða spenntir eftir því að sjá hvernig Juventus mun vegna gegn Livorno. Juventus er komið aftur í Serie-A eftir ársdvöl í næstefstu deild. Fótbolti 25.8.2007 14:13 Zlatan hefur ekki áhuga á að yfirgefa Inter Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic segir að hann sé ánægður hjá Inter og ekki á leið frá félaginu. Chelsea og Real Madrid eru sögð hafa áhuga á leikmanninum. Zlatan stóð sig vel á síðasta tímabili og hjálpað Inter að vinna deildina. Þrátt fyrir að hafa unnið deildina í fyrra eru ennþá sögusagnir um að leikmaðurinn vilji fara frá Inter. Fótbolti 22.8.2007 18:22 AC Milan byrjar án Ronaldo Evrópumeistarar AC Milan þurfa líklega að byrja tímabilið á Ítalíu án sóknarmannsins Ronaldo. Þessi brasilíski snillingur á við meiðsli að stríða og hefur lítið sem ekkert getað æft undanfarnar vikur. Ólíklegt er að hann verði tilbúinn í slaginn á sunnudag þegar Milan mætir Genoa í fyrsta leik sínum á tímabilinu. Fótbolti 21.8.2007 20:27 Nedved hafnaði Inter í sumar Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved hefur greint frá því að hann hafnaði tilboði frá meisturum Inter Milan í sumar. Nedved er sem fyrr á mála hjá Juventus og spilað með liðinu í næstefstu deild á Ítalíu á síðustu leiktíð. Fótbolti 17.8.2007 17:33 Ronaldo verður tilbúinn þegar tímabilið byrjar Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri AC Milan, segir að brasilíski snillingurinn Ronaldo verði búinn að ná sér af meiðslum áður en tímabilið byrjar á Ítalíu. Ronaldo hefur verið meiddur síðan í lok síðasta tímabils og hefur ekki tekið þátt í neinum leikjum á undirbúningstímabili liðsins. Fótbolti 8.8.2007 18:56 AC Milan vann í vítaspyrnukeppni. Evrópumeistarar AC Milan unnu rússneska liðið Lokomotiv í Moskvu í leik um þriðja sætið á knattspyrnumóti í Moskvu í dag. Fótbolti 5.8.2007 17:54 Nesta hættur með landsliðinu Ítalski varnarmaðurinn Alessandro Nesta hefur tilkynnt að hann sé hættur að spila fyrir landsliðið. Nesta, sem er 31 árs gamall, vann meistardeildina á síðasta tímabili með AC Milan eftir sigur á Liverpool, og hann var einnig hluti af landsliði Ítala sem urðu heimsmeistarar síðasta sumar. Fótbolti 1.8.2007 14:55 Juventus neitar tilboði City í Chiellini Manchester City hefur mistekist að landa ítalska U21 landsliðsmanninnum Giorgio Chiellini frá Juventus. Giovanni Cobolli Gigli, forseti Juventus staðfestir að Juventus hafi hafnað tilboði City. Leikmaðurinn hefur ekki farið leynt með þrá sína fyrir að spila á Englandi en Gigli segir að hann verði ekki seldur. Fótbolti 31.7.2007 14:26 Berlusconi neitar að gefast upp á Shevchenko Silvio Berlusconi, forseti AC Milan, neitar að gefast upp á að fá Andriy Shevchenko aftur til liðsins. Shevchenko fór til Chelsea frá Milan fyrir síðasta tímabil en náði ekki að standa undir væntingum þar. Miklar vangaveltur hafa verið um hvað hvað verði um leikmanninn og hefur hann verið orðaður við endurkomu til Milan. Fótbolti 23.7.2007 20:24 Adriano leitaði í flöskuna Brasilíski stjörnuframherjinn Adriano hjá Inter Milan hefur viðurkennt að vandamál hans á síðustu leiktíð megi rekja til óhóflegrar áfengisneyslu. Adriano missti föður sinn og skildi við konu sína með stuttu millibili og segist hafa leitað huggunar í flöskunni. Fótbolti 21.7.2007 16:43 Milan hefur gefist upp á að landa Eto´o og Ronaldinho Varaforseti AC Milan segir félagið vera búið að gefast upp á að reyna að kaupa þá Samuel Eto´o og Ronaldinho frá Barcelona. Þetta staðfesti hann í viðtali við netsíðu Gazzetta dello Sport í dag og segir ástæðuna einfaldlega þá að leikmennirnir séu alls ekki til sölu. Blaðið Gazetta dello Sport hélt því fram í dag að Milan hefði gert 50 milljón evru tilboð í Eto´o, en varaforsetinn hafnaði því. Fótbolti 19.7.2007 16:23 Totti hótar að segja sig úr leikmannasamtökunum Francesco Totti, fyrirliði Roma á Ítalíu, hefur nú hótað að segja sig úr leikmannasamtökunum þar í landi vegna deilu í tengslum við það hvenær keppni hefst í A-deildinni í sumar. Deildin á að byrja 26. ágúst, eða seinna en flestar aðrar deildarkeppnir í Evrópu. Þetta segir Totti að komi niður á ítalska landsliðinu í undankeppni EM. Fótbolti 18.7.2007 17:11 « ‹ 180 181 182 183 184 185 186 187 188 … 198 ›
Kaka þénar 530 milljónir á ári hjá Milan Brasilíski miðjumaðurinn Kaka hjá AC Milan er tekjuhæsti leikmaðurinn í A-deildinni á Ítalíu samkvæmt ítarlegri úttekt Gazetta dello Sport. Kaka halar inn 5,9 milljónir evra í árslaun hjá Milan eða um 530 milljónir króna. Francesco Totti hjá Roma kemur næstur með 5,46 milljónir evra og þeir Zlatan Ibrahimovic, Adriano, Gianluigi Buffon og Patrick Vieira þéna allir 5 milljónir evra á ári eða 450 milljónir. Fótbolti 12.9.2007 11:52
Öll spjót beinast að Donadoni Roberto Donadoni, landsliðsþjálfari Ítalíu, segist ekki finna fyrir neitt meiri pressu en venjulega fyrir leikinn gegn Úkraínu á miðvikudag. Ítalska landsliðið þarf nauðsynlega á sigri að halda. Fótbolti 11.9.2007 21:35
Shevchenko varar Ítali við Sóknarmaðurinn Andriy Shevchenko segir að ítalska landsliðið geti búist við erfiðum leik á miðvikudag gegn Úkraínu. Þrátt fyrir að Shevchenko sé úti í kuldanum hjá Chelsea þáspilar hann með úkraínska landsliðinu. Fótbolti 10.9.2007 18:39
Ronaldo á langt í land Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá AC Milan getur ekki leikið með liði sínu á næstunni eftir að læknar í heimalandi hans komust að því að meiðsli hans eru alvarlegri en talið var í fyrstu. Ronaldo hefur ekkert komið við sögu hjá liði Milan í upphafi leiktíðar og verður væntanlega frá keppni næsta mánuðinn eða svo. Fótbolti 10.9.2007 09:39
Meiðsli herja á ítalska liðið Líkur eru á að Andrea Pirlo, miðjumaður AC Milan, muni missa af landsleik Ítalíu gegn Úkraínu á miðvikudag. Áður var ljóst að Marco Materazzi, Luca Toni og Gennaro Gattuso verða ekk með í leiknum en sá síðastnefndi tekur út leikbann. Fótbolti 9.9.2007 10:46
Jafnt hjá Ítalíu og Frakklandi Ekkert var skorað í viðureign Ítalíu og Frakklands í B-riðli undankeppni Evrópumótsins. Þessi tvö lið mættust í úrslitaleik síðustu heimsmeistarakeppni þar sem Ítalía fór með sigur af hólmi í vítaspyrnukeppni. Liðin skildu hinsvegar jöfn í kvöld. Fótbolti 8.9.2007 21:25
Ég er enginn Maradona Argentínskir fótboltamenn geta vart sparkað bolta í Evrópu án þess að byrjað sé að bera þá saman við kónginn sjálfan, Diego Maradona. Þessu hefur Ezequiel Lavezzi, leikmaður Napoli, fengið að kynnast en hann er ekki ánægður með samanburðinn. Fótbolti 7.9.2007 18:01
Julio Cruz framlengir við Inter Julio Cruz, sóknarmaður Inter, hefur framlengt samningi sínum við liðið til 2009. Þessi 32 ára leikmaður skoraði sjö mörk í fimmtán leikjum á síðasta leiktímabili en hann átti við meiðsli að stríða. Fótbolti 7.9.2007 17:44
Reglurnar hertar á Ítalíu Ítölsk knattspyrnuyfirvöld tilkynntu í dag að leikmenn eða þjálfarar liða í deildarkeppnum í landinu fengju heimaleikjabann rétt eins og óþekkir stuðningsmenn ef þeir gerðust sekir um ofbeldisfulla hegðun. Leikmenn fara venju samkvæmt í leikbönn ef þeir fá rauð spjöld, en hafa til þessa fengið að fylgjast með leikjunum úr áhorfendastúkum þrátt fyrir leikbönn. Þessir menn verða nú að láta sér það nægja að fylgjast með liðum sínum í sjónvarpi. Fótbolti 6.9.2007 15:14
Deilt um Vieira Landsliðsþjálfarar og þjálfarar félagsliða eru ekki bestu vinir um þessar mundir enda landsleikjahelgi framundan. Franska knattspyrnusambandið og ítalska liðið Inter deila nú um hvort Patrick Vieira sé leikfær um helgina. Fótbolti 5.9.2007 18:23
Dunga: Adriano þarf að þroskast Carlos Dunga, landsliðsþjálfari Brasilíu, hefur biðlað því til brasilíska sóknarmannsins Adriano að hann fari beinu brautina og finni sitt gamla form. Adriano hefur verið að berjast við vandræði í einkalífinu og hafa þau haft áhrif á frammistöðu hans á vellinum. Fótbolti 5.9.2007 17:47
Lið í Serie-B hóta verkfalli Lið í Serie-B deildinni á Ítalíu hóta því að fara í verkfall ef samningar munu ekki nást um sjónvarpsréttinn á deildinni. Ekki er sýnt frá næstefstu deild Ítalíu í sjónvarpi þar á landi eftir að félögin neituðu tilboði frá ítölsku Sky sjónvarpsstöðinni. Fótbolti 4.9.2007 19:31
Adriano á ekki sjö dagana sæla Brasilíski sóknarmaðurinn Adriano er úti í kuldanum hjá Ítalíumeisturum Inter. Þessi stóri og stæðilegi leikmaður var ekki valinn í leikmannahóp Inter fyrir Meistaradeild Evrópu og mun að öllum líkindum skipta um lið í janúar. Fótbolti 3.9.2007 18:24
Jafnt hjá Milan og Fiorentina AC Milan og Fiorentina gerðu 1-1 jafntefli í ítölsku Serie-A deildinni í dag. Brasilímaðurinn Kaka kom heimamönnum yfir með marki úr vítaspyrnu en Adrian Mutu jafnaði metin í seinni hálfleik og þar við sat. Fótbolti 3.9.2007 18:08
Þjálfari Catania missti stjórn á skapi sínu Það þurfti að draga þjálfara ítalska liðsins Catania, Silvio Baldini, í burtu þegar lið hans gerði 2-2 jafntefli gegn Parma. Fimm mínútum fyrir leikslok fékk Baldini brottvísun frá dómara leiksins en áður en hann fór í burtu sparkaði hann að þjálfara Parma. Fótbolti 26.8.2007 16:06
Emil í byrjunarliði Reggina Íslenski landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Reggina sem gerði 1-1 jafntefli gegn Atalanta í dag. Þetta var fyrsti leikur Reggina í deildinni en Emil var tekinn af velli á 69. mínútu leiksins. Fótbolti 26.8.2007 15:59
Meistararnir byrja á jafntefli Sjö leikir fóru fram í fyrstu umferð ítölsku Serie-A deildarinnar í dag. Ítalíumeistararnir í Inter hefja tímabilið á jafntefli gegn Udinese 1-1 á heimavelli þar sem Dejan Stankovic kom Inter yfir en Udinese jafnaði í lok leiksins. Fótbolti 26.8.2007 14:38
Juventus byrjar með glans Keppni er hafin á Ítalíu en augu flestra beindust að viðureign Juventus og Livorno. Juventus er komið aftur í Serie-A eftir árs veru í B-deildinni. Liðið gerði sér lítið fyrir og vann Livorno 5-1 þar sem David Trezeguet skoraði þrennu. Fótbolti 25.8.2007 20:22
Endurkoma Juventus í kvöld Keppni í efstu deildinni á Ítalíu hefst í kvöld með tveimur leikjum. Margir bíða spenntir eftir því að sjá hvernig Juventus mun vegna gegn Livorno. Juventus er komið aftur í Serie-A eftir ársdvöl í næstefstu deild. Fótbolti 25.8.2007 14:13
Zlatan hefur ekki áhuga á að yfirgefa Inter Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic segir að hann sé ánægður hjá Inter og ekki á leið frá félaginu. Chelsea og Real Madrid eru sögð hafa áhuga á leikmanninum. Zlatan stóð sig vel á síðasta tímabili og hjálpað Inter að vinna deildina. Þrátt fyrir að hafa unnið deildina í fyrra eru ennþá sögusagnir um að leikmaðurinn vilji fara frá Inter. Fótbolti 22.8.2007 18:22
AC Milan byrjar án Ronaldo Evrópumeistarar AC Milan þurfa líklega að byrja tímabilið á Ítalíu án sóknarmannsins Ronaldo. Þessi brasilíski snillingur á við meiðsli að stríða og hefur lítið sem ekkert getað æft undanfarnar vikur. Ólíklegt er að hann verði tilbúinn í slaginn á sunnudag þegar Milan mætir Genoa í fyrsta leik sínum á tímabilinu. Fótbolti 21.8.2007 20:27
Nedved hafnaði Inter í sumar Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved hefur greint frá því að hann hafnaði tilboði frá meisturum Inter Milan í sumar. Nedved er sem fyrr á mála hjá Juventus og spilað með liðinu í næstefstu deild á Ítalíu á síðustu leiktíð. Fótbolti 17.8.2007 17:33
Ronaldo verður tilbúinn þegar tímabilið byrjar Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri AC Milan, segir að brasilíski snillingurinn Ronaldo verði búinn að ná sér af meiðslum áður en tímabilið byrjar á Ítalíu. Ronaldo hefur verið meiddur síðan í lok síðasta tímabils og hefur ekki tekið þátt í neinum leikjum á undirbúningstímabili liðsins. Fótbolti 8.8.2007 18:56
AC Milan vann í vítaspyrnukeppni. Evrópumeistarar AC Milan unnu rússneska liðið Lokomotiv í Moskvu í leik um þriðja sætið á knattspyrnumóti í Moskvu í dag. Fótbolti 5.8.2007 17:54
Nesta hættur með landsliðinu Ítalski varnarmaðurinn Alessandro Nesta hefur tilkynnt að hann sé hættur að spila fyrir landsliðið. Nesta, sem er 31 árs gamall, vann meistardeildina á síðasta tímabili með AC Milan eftir sigur á Liverpool, og hann var einnig hluti af landsliði Ítala sem urðu heimsmeistarar síðasta sumar. Fótbolti 1.8.2007 14:55
Juventus neitar tilboði City í Chiellini Manchester City hefur mistekist að landa ítalska U21 landsliðsmanninnum Giorgio Chiellini frá Juventus. Giovanni Cobolli Gigli, forseti Juventus staðfestir að Juventus hafi hafnað tilboði City. Leikmaðurinn hefur ekki farið leynt með þrá sína fyrir að spila á Englandi en Gigli segir að hann verði ekki seldur. Fótbolti 31.7.2007 14:26
Berlusconi neitar að gefast upp á Shevchenko Silvio Berlusconi, forseti AC Milan, neitar að gefast upp á að fá Andriy Shevchenko aftur til liðsins. Shevchenko fór til Chelsea frá Milan fyrir síðasta tímabil en náði ekki að standa undir væntingum þar. Miklar vangaveltur hafa verið um hvað hvað verði um leikmanninn og hefur hann verið orðaður við endurkomu til Milan. Fótbolti 23.7.2007 20:24
Adriano leitaði í flöskuna Brasilíski stjörnuframherjinn Adriano hjá Inter Milan hefur viðurkennt að vandamál hans á síðustu leiktíð megi rekja til óhóflegrar áfengisneyslu. Adriano missti föður sinn og skildi við konu sína með stuttu millibili og segist hafa leitað huggunar í flöskunni. Fótbolti 21.7.2007 16:43
Milan hefur gefist upp á að landa Eto´o og Ronaldinho Varaforseti AC Milan segir félagið vera búið að gefast upp á að reyna að kaupa þá Samuel Eto´o og Ronaldinho frá Barcelona. Þetta staðfesti hann í viðtali við netsíðu Gazzetta dello Sport í dag og segir ástæðuna einfaldlega þá að leikmennirnir séu alls ekki til sölu. Blaðið Gazetta dello Sport hélt því fram í dag að Milan hefði gert 50 milljón evru tilboð í Eto´o, en varaforsetinn hafnaði því. Fótbolti 19.7.2007 16:23
Totti hótar að segja sig úr leikmannasamtökunum Francesco Totti, fyrirliði Roma á Ítalíu, hefur nú hótað að segja sig úr leikmannasamtökunum þar í landi vegna deilu í tengslum við það hvenær keppni hefst í A-deildinni í sumar. Deildin á að byrja 26. ágúst, eða seinna en flestar aðrar deildarkeppnir í Evrópu. Þetta segir Totti að komi niður á ítalska landsliðinu í undankeppni EM. Fótbolti 18.7.2007 17:11